EPISODE · Aug 24, 2026 · 23 MIN
#33 - Loftslagsskattar í ógöngum
from Skattaspjallið · host Samtök skattgreiðenda
Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumálum og að íslenskur almenningur muni aldrei sætta sig við að greiða fyrirséðan kostnað við aðgerðir í loftslagsmálum, sem hvíli á alþjóðlegum samþykktum. Albert segir að Ísland eigi ekki að sæta sömu ráðstöfunum í loftslagsmálum og önnur ríki í ljósi þess að ríflega 80 prósent af orkunotkun landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Samsvarandi tala hjá Evrópusambandinu er 25%. Albert segir að Íslendingar eigi ekki að vera feimnir við að grípa í taumana og frábiðja sér alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum á meðan aðrar þjóðir séu langt á eftir Íslendingum í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland eigi hins vegar að vera tilbúið að taka þátt þegar aðrar þjóðir fari að nálgast okkur.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
Embed this episode
NOW PLAYING
#33 - Loftslagsskattar í ógöngum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.