33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps episode artwork

EPISODE · Apr 24, 2020 · 47 MIN

33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps

from Heimskviður

Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann að vettugi, sem getur haft alvarlegar afleiðingar. En svo getur virkt trúarlíf fólks líka haft jákvæð áhrif, bæði á andlega líðan, og auðvitað með því að hlýða yfirvöldum en um leið hjálpa öðrum. Guðmundur Björn Þorbjörnsson segir frá. Þótt eigendur streymisveitna á borð við Netflix hafi það gott um þessar mundir og horfi á áskriftartölur hækka, sitja leikarar, leikstjórar, kvikmyndatökumenn, hljóðmenn heima í stofu og bíða eftir því að hjólin geti farið að snúast að nýju. Búið er að fresta fjölmörgum frumsýningum stórmynda á borð við nýju Batman-myndina og segja má að Hollywood skjálfi og nötri. En faraldurinn hefur þó ekki stöðvað göngu eins langlífasta sjónvarpsþáttar sögunnar, eins og Hallgrímur Indriðason segir okkur frá. Á Spáni má færa rök fyrir því að fótbolti sé ígildi trúarbragða, guðirnir sem tilbeðnir eru ýmist undir merkjum Barcelona eða Real Madrid. Það hefur hins vegar ekki ríkt nein lognmolla í herbúðum Barcelona undanfarið, og ásakanir um spillingu og óstjórn farið nokkuð hátt. Pálmi Jónasson ætlar að segja okkur frá því og sögu liðsins, og nýtur þar liðsinnis Einars Arnar Jónssonar, íþróttafréttamanns. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps

0:00 47:29

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 47 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 24, 2020.

What is this episode about?

Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann að vettugi, sem getur haft alvarlegar afleiðingar. En svo getur virkt...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!