36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan episode artwork

EPISODE · May 15, 2020 · 53 MIN

36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan

from Heimskviður

Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um alvarlegt kynferðisofbeldi af konu sem var aðstoðarmaður hans snemma á tíunda áratugnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Biden er ásakaður um óviðeigandi framkomu í garð kvenna, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er sakaður um kynferðisofbeldi. En þrátt fyrir þessar alvarlegu ásakanir, er lítið fjallað um málið í fjölmiðum vestra, þ.e. í þeim fjölmiðlum sem þykja hliðhollir demókrötum. Hið sama má segja um flokksmenn Demókrata. Getur verið að þörfin fyrir að koma Trump úr embætti í haust, sé meiri en krafan um að hlustað verði á konu sem telji sig hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi? Guðmundur Björn fjallar um málið og ræðir meðal annars við Silju Báru Ómarsdóttur. - Heimurinn stendur á tímamótum vegna veirufaraldurs og ný heimsmynd er að verða til. Enginn veit ennþá hvernig hún verður en ekki er víst að það heimsskipulag sem reis úr rústum stríðshrjáðrar veraldar um miðja síðustu öld verði áfram við lýði. Vera Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna, og Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, velta fyrir sér nýrri heimsmynd í viðtölum við Bergljótu Baldursdóttur. - Hvað gerði Michael Jordan að stærstu stjörnu bandaríska körfuboltans og íþrótta um allan heim, og hvað hefði breyst ef Jordan hefði nýtt þau völd og áhrif sem í þessu fólust til að bæta heiminn, og styðja til dæmis við réttindabaráttu svartra af krafti, sama krafti og gerði hann að þeim langbesta á vellinum, í stað þess að sitja á hliðarlínunni. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um síðasta dans Jordans. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan

0:00 53:23

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 53 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on May 15, 2020.

What is this episode about?

Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um alvarlegt kynferðisofbeldi af konu sem var aðstoðarmaður hans snemma...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!