37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína episode artwork

EPISODE · May 22, 2020 · 52 MIN

37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína

from Heimskviður

Í þrítugasta og sjöunda þætti Heimskviða er fjallað um skíðabæinn alræmda, Ischgl í Austurríki. Stjórnarandanstæðingar í Austurríki segja að hagsmunatengsl ferðaþjónustunnar í Tírol og yfirvalda í Austurríki skýra sinnuleysi gagnvart útbreiðslu Covid-19 í bænum. Þúsundir taka nú þátt í hópmálsókn og fara fram á bætur frá Austurríska ríkinu vegna veikindanna en ýmislegt bendir til þess að ferðamálayfirvöld á skíðasvæðunum hafi leynt veikindum bæði starfsmanna og ferðamanna frá því í byrjun febrúar, löngu áður en íslensk yfirvöld vöruðu við smitum sem voru rakin til skíðasvæða alpanna. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Eftir þrennar kosningar á innan við ári, er loks komin ný ríkisstjórn í Ísrael. Í forsetisráðherrastólnum situr þó áfram gamall refur, Benjamín Netanjahú. Að minnsta kosti næsta hálfa árið eða svo, þar til Benny Gantz tekur við stjórnartaumunum. Gantz hefur verið harður andstæðingur Netanjahús en þeir hafa loks tekist að sættast á að mynda saman ríkisstjórn. En hvers vegna hefur þetta tekið svona langan tíma? Hvers vegna ná þessir ólíku stjórnmálamenn saman núna og hvaða áhrif mun þessi ríkisstjórn hafa á frekari landtökubyggðir á Vesturbakkanum? Guðmundur Björn segir frá. Fjölmiðlar í Kína fylgdust í vikunni með langþráðum endurfundum ungs manns og foreldra hans. Þau höfðu ekki hist í 32 ár eða frá því að syninum var rænt þegar hann var tveggja ára gamall. Þúsundum barna er rænt á ári hverju í Kína, og þau ganga kaupum og sölum. Birta Björnsdóttir fjallar um kínversk barnarán. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína

0:00 52:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 52 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on May 22, 2020.

What is this episode about?

Í þrítugasta og sjöunda þætti Heimskviða er fjallað um skíðabæinn alræmda, Ischgl í Austurríki. Stjórnarandanstæðingar í Austurríki segja að hagsmunatengsl ferðaþjónustunnar í Tírol og yfirvalda í Austurríki skýra sinnuleysi gagnvart útbreiðslu...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!