EPISODE · Jan 9, 2025 · 49 MIN
#41 – Brynjar Níelsson nennir ekki að æfa
from Seinni níu · host Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Fyrsti gestur ársins hjá okkur í Seinni níu er Brynjar Níelsson, fyrrverandi alþingismaður og lögmaður. Brynjar hefur spilað marga af bestu golfvöllum Bretlandseyja þó hann eigi í erfiðleikum með að muna nöfnin á þeim öllum. Brynjar var mjög góður íþróttamaður á sínum yngri árum og var mjög liðtækur í öllum boltaíþróttum. Það hefur hins vegar ekki skilað sér inn í golfið en líklega á æfingaleysi einhverja sök á máli. Í stórskemmtilegum þætti er rætt um golf og pólitík en Brynjar er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og sat á þingi fyrir flokkinn á árunum 2013 til 2021. Brynjar velur fimm þingmenn sem hann vill spila golf með og einnig er draumaholl kappans afar athyglisvert. Hjartaáfall á golfvellinum kemur einnig við sögu. Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO ⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð 🏚️ - Betri stofan fasteignasala 🏌️♀️- Golfhöllin
Embed this episode
NOW PLAYING
#41 – Brynjar Níelsson nennir ekki að æfa
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.