Skip to content
Seinni níu podcast artwork

PODCAST · sports

Seinni níu

by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 6, 2026 · Source feed

Episodes

  1. #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi

    Við fengum goðsögnina Karen Sævarsdóttur í heimsókn til okkar og þá fyrr hefði verið. Karen vann það einstaka afrek að verða Íslandsmeistari átta ár í röð frá árinu 1989 til 1996. Móðir hennar varð einnig þrisvar Íslandsmeistari og því eiga þær mæðgur 11 titla. Karen segir okkur frá mögnuðum…

    more
  2. #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel

    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Matreiðslumaðurinn Jói Fel heiðraði okkur með nærveru sinni og sagði okkur frá golfferli sínum. Jói byrjaði í golfi fyrir nokkrum árum en þá voru allir æskuvinir hans byrjaðir í íþróttinni. Það tók hann smá tíma á ná tökum á íþróttinni...

  3. #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð

    Við erum staddir í golfferð og tókum auðvitað upp þátt af Seinni níu. Aron Elí Sævarsson og Axel Óskar Andrésson komu í spjall en þeir eru einmitt staddir með okkur í golfferð á Los Moriscos á Spáni þar sem fer mjög vel um okkur. Í þættinum förum við yfir það hvernig upplifun það er að vera í...

  4. #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf

    Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur. Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra…

    more
  5. #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun

    Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn. Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og...

  6. #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari

    Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska. Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.

  7. #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi

    Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila. Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af...

  8. #126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun

    Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með...

  9. #125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins

    Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í...

  10. #124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi

    Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn. Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með…

    more
  11. #123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo

    Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni. Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú...

  12. #122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu

    Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum. Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í...

  13. #121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás

    Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar. Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access...

  14. #120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt

    Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum. Höddi Magg byrjaði að spila golf um...

  15. #119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver

    Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni. Hrafnkell er að...

  16. #118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube

    Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir. Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á...

  17. #117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni

    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu, því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni. Gunna Dís er með 37 í forgjöf, er meðlimur…

    more
  18. #116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið

    Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu...

  19. #115 - Fannar þrífst á skömmum á golfvellinum

    Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla. Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær...

  20. #114 - Baddý og öll fjölskyldan hefur farið holu í höggi á sama golfvell

    Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet. Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr...

  21. #113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð

    Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto. Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð...

  22. #112 - Saklaus lygi kom Ólafi Hand í vandræði á Myrtle Beach

    Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár. Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur...

  23. #111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag

    Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli. Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft...

  24. #110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum

    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína. Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll...

  25. #109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni

    Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar. Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og...

  26. #108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar. Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og...

  27. #107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005

    Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari. Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti…

    more
  28. #106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters. Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða...

  29. #105 - Seinni níu x Steve Dagskrá

    Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem skipa tvíeykið í hlaðvarpinu Steve dagskrá, komu í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þeir hafa haldið úti sínu vinsæla hlaðvarpi frá árinu 2018 og hafa verið að færa sig upp á skaftið á golfvöllum landsins að undanförnu. Í þættinum er komið...

  30. #104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins

    Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf. Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún...

  31. #103 - Broddi er hnitmiðaður kylfingur

    Við fengum heimsmeistara og ólympíufara í Seinni níu því badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson kom í heimsókn til okkar. Hann keppti á Ólympíuleikunum árið 1992 og var nánast ósigrandi í íþróttinni hér á landi á sínum tíma. Núna á golfið hug hans allan og leikur hann bæði í Nesklúbbnum og á...

  32. #102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins

    Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar. Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á...

  33. #101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf

    Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi. Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í...

  34. #100 - Þór er með pútter úr dánarbúi

    Það var mjög létt yfir okkur í Seinni níu og við fengum bæjarstjórann á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, í heimsókn til okkar. Þetta er þáttur númer 100 af Seinni níu og var auðvitað aðeins farið yfir þau tímamót. Þór er þokkalegur kylfingur með 22,2 í forgjöf en sér fram á að forgjöfin geti...

  35. #99 - Axel ætlar sér fleiri Íslandsmeistaratitla

    Við fáum til okkar frábæran gest því Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Í þættinum förum við yfir ferilinn hjá Axel en hann er nýlega tekinn við sem yfirþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili eftir atvinnumannaferil. Hann segir okkur frá hæðum og...

  36. #98 - Stebbi Hilmars er með plástur á pútternum

    Við fengum til okkar meiriháttar gest í Seinni níu því söngvarinn ástsæli Stefán Hilmarsson kom í heimsókn. Við komum víða við í þættinum en Stefán segir okkur frá golfinu sínu og hvernig það kom til að hann hóf golfiðkun. Stefán hóf að spila árið 2001 en Eyjólfur Kristjánsson dró hann í…

    more
  37. #97 - Fúsi þarf extra þykk grip

    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því handboltahetjan Sigfús Sigurðsson kemur í heimsókn til okkar. Hann ræðir aðeins við okkur um handbolta en aðallega um golf. Sigfús er með um 15 í forgjöf og hóf ungur að leika golf. Hann hætti hins vegar á unglingsaldri þar sem það...

  38. #96 - 4-járnið í uppáhaldi hjá Helgu Möller

    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu því til okkar kom söngkonan ástsæla Helga Möller. Við komum víða við í þættinum en Helga hefur lengi spilað og var best með um 14 í forgjöf. Golf var stór þáttur í fjölskyldu Helgu en foreldrar hennar bjuggu til golfholur nærri sumarhúsi þeirra sem…

    more
  39. #95 - Sigmundur Ernir byrjaði sem kylfusveinn

    Við fáum til okkar góðan gest í Seinni níu þessa vikuna því Alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kom í heimsókn til okkar. Hann hefur leikið golf lengi og hóf ungur að leika golf á Akureyri. Í raun byrjaði hann ferilinn sem kylfusveinn og stundaði það af meiri krafti en sjálft golfið fyrstu...

  40. #94 - Patrik braut 10 kylfur á síðasta ári

    Við fáum til okkar skemmtilegan gest í þessari viku í Seinni níu því tónlistamaðurinn Patrik Atlason kom í heimsókn til okkar. Patrik er með um 7 í forgjöf en hann hóf að leika golf í Covid. Í þættinum er komið víða við en Patrik segir okkur frá sýn sína á golfíþróttina. Hann segir okkur meðal...

  41. #93 - Banatilræði Sigurðar Kára við forsætisráðherra í Vestmannaeyjum

    Við fáum til okkar frábæran gest í fyrsta þátt ársins 2026. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fv. þingmaður, mætti til okkar í skemmtilegt spjall um golf. Sigurður Kári er með ca 11 forgjöf um þessar mundir og dreymir um að komast í einna tölu forgjöf. Hann hefur leikið golf um árabil og...

  42. #92 - Áramótaþáttur Seinni níu

    Nú er komið að síðasta þætti ársins af Seinni níu. Líkt ogjólaþátturinn okkar þá er áramótaþátturinn uppfullur af skemmtilegum brotum úr þáttum ársins. Í þættinum er rætt kylfinga á öllu getustigi. Allt frá atvinnumönnum í golfi til byrjenda og eiginlega allt þar á milli. Meðal þeirra sem bregða...

  43. #91 - Jólaþáttur Seinni níu

    Árið 2025 hefur verið frábært hjá okkur í Seinni níu. Af því tilefni ætlum við að gefa út tvo samantektarþætti með skemmtilegum umræðum við gesti okkar á árinu. Fyrri þátturinn kemur út á aðfangadag og sá síðari á gamlársdag. Þættirnir eru báðir um tvær klukkustundir en þar reynum við þar að…

    more
  44. #90 - Óli Jó leitar að golfboltum í svartamyrkri

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og knattspyrnuþjálfari, kemur í heimsókn og ræðir aðallega um golf. Ný bók var að koma út um Ólaf þar sem hann gerir upp litríkan þjálfaraferil. Það var létt yfir Óla Jó en hann hefur leikið…

    more
  45. #89 - Bogi Nils fór í dáleiðslu til að laga vippin

    Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Bogi NilsBogason, forstjóri Icelandair, kíkir í heimsókn til okkar. Bogi er mjög flottur kylfingur með um 4,5 í forgjöf og hóf ungur að leika golf á Eskifirði þar sem hann ólst upp og er enn skráður í klúbbinn á sínum heimaslóðum. Hann er líka...

  46. #88 - Jón Bjarki braut tvær kylfur og fór svo holu í höggi

    Við fáum skemmtilegan gest til okkar í þessari viku í Seinni níu. Jón Bjarki Oddsson kemur í heimsókn en hann starfar sem kírópraktor og sinnir því fjölmörgum kylfingum sem eru að glíma við meiðsli af einhverju tagi. Jón Bjarki er hörku kylfingur með um 1 í forgjöf. Hann er með golfhermi á...

  47. #87 - Heimir Karls vann bæði Anniku og Monty

    Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu en hann hefur spilað golf um árabil. Heimir náði þeim einstaka árangri að verða bæði Íslandsmeistari í fótbolta og handbolta. Í seinni tíð hefur hann einbeitt sér að golfinu og náði best rétt undir 10 í forgjöf. Í dag er Heimir...

  48. #86 – Þórhallur fann draumahúsið á golfvellinum

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því tilokkar kemur Þórhallur Sverrisson sem er einna best þekktur fyrir að hafa leikið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Íslenski draumurinn. Myndin fagnaði 25 ára afmæli fyrir skömmu og því rifjum við aðeins upp þá frábæru kvikmynd auk þess að ræða...

  49. #85 - Kristján Þór sjankaði á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum

    Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara í heimsókn þessa vikuna þegar Kristján Þór Einarsson mætti til okkar í Seinni níu. Kristján varð Íslandsmeistari í golfi árin 2008 og 2022. Í bæði skiptin komu titlarnir í Vestmannaeyjum. Í þættinum rekur Kristján aðeins keppnisferilinn, velur fimm bestu...

  50. #84 - Reiðilestur frá Bogdan ýtti Arnari yfir í golf

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna þegarArnar Már Ólafsson, golfkennari og frumkvöðull í golfkennslu, kom í heimsókn til okkar. Arnar ræddi við okkur um golf í yfir klukkustund en hann er einn færasti golfkennari landsins og hefur þjálfað marga af bestu kylfingum Íslands. Í…

    more

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

HOSTED BY

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Seinni níu have?

Seinni níu currently has 133 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Seinni níu about?

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

How often does Seinni níu release new episodes?

Seinni níu publishes regularly with 133 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Seinni níu?

You can listen to Seinni níu on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Seinni níu?

Seinni níu is created and hosted by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson.
URL copied to clipboard!