42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan episode artwork

EPISODE · Aug 21, 2020 · 51 MIN

42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan

from Heimskviður

Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt eins og gerðist við Miðjarðarhaf fyrir fimm árum, til að óska eftir hæli í Bretlandi. Þegar hefur orðið eitt dauðsfall af þessum sökum. Stjórnmálamenn kenna glæpagengjum og öðrum stjórnmálamönnum um, en hjálparstofnanir segja sökina kerfislæga, meðal annars í samevrópsku hælisleitendakerfi. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið og ræðir meðal annars við Bridget Chapman, talsmann Kent Refugee Assistance Network, samtaka sem taka við fylgdarlausum börnum á flótta. Heimskviður halda áfram að fjalla um málefni Líbanon. Tveggja vikna útgöngubann tekur gildi í landinu í dag, vegna kórónuveirufaraldursins. En Covid-19 er aðeins ein af áhyggjum Líbana um þessar mundir. Ríkisstjórn landsins sagði nýverið af sér í kjölfar sprengingarinnar í Beirút í upphafi mánaðar þar sem 180 létu lífið. Óðaverðbólga er í landinu og atvinnuleysi mikið. Og ef þetta er ekki nóg, þá féll loks dómur í máli fjögurra sakborninga sem gefið var að sök að hafa myrt forsætisráðherra landsins árið 2005. Rannsóknin er sú umfangsmesta í sögu landsins, og óhætt er að segja að dómurinn hafi komið nokkuð á óvart. Guðmundur Björn Þorbjörnsson ræðir við arabískukennarann Ala'a Burjas sem er búsettur í Beirút, um það stormviðri sem líbanska þjóðir gengur nú í gegnum. Kvikmyndin um kínversku hetjuna Mulan verður frumsýnd fljótlega. Myndin, og sögupersónan, hafa hins vegar blandast nokkuð óvænt inn í mótmæli sem staðið hafa yfir í Hong Kong síðan í fyrra. Nú hefur þeim nefnilega verið stillt upp sem andstæðum, konunni sem mótmælir stjórnvöldum í Kína, og leikkonunni, sem leikur hetjuna Mulan í nýrri kvikmynd. Birta Björnsdóttir segir okkur frá hinni nýju Múlan. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan

0:00 51:20

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 51 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on August 21, 2020.

What is this episode about?

Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt eins og gerðist við Miðjarðarhaf fyrir fimm árum, til að óska eftir...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!