42. Út fyrir kassann. (Styrkleikar, sjálfsmynd, núvitund, samskipti og sjálfsrækt). Bjarni Fritzson episode artwork

EPISODE · Apr 19, 2024 · 1H 15M

42. Út fyrir kassann. (Styrkleikar, sjálfsmynd, núvitund, samskipti og sjálfsrækt). Bjarni Fritzson

from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla

Í þættinum ræðir Erla við Bjarna Fritzson rithöfund, íþróttamann og eiganda sjálfstyrkingarfyrirtækisins Út fyrir kassann um jákvæða sjálfsmynd, núvitund, samskipti, sjálfsrækt, sjálfstraust, gildi og hvernig við hjálpum börnum okkar að byggja upp góða sjálfsmynd með því að aðstoða þau við að finna sína styrkleika.Sjálfur segist Bjarni fyrst og fremst vera fjölskyldufaðir úr Breiðholtinu og íþróttanörd sem elskar að efla fólk og hjálpa því að blómstra. Hann heldur meðal annars námskeiðin Öflugir strákar, Vertu óstöðvandi fyrir ungt íþróttafólk og foreldranámskeiðið Efldu barnið þitt. Hann hefur gefið út fjölda bóka um Orra óstöðvandi og Sölku ofl.Bjarni er með B.S gráðu í sálfræði og hefur sótt framhaldsmenntun á meistarastigi í félags-vinnusálfræði og jákvæðri sálfræði. Hann er fyrrum  atvinnu- og landsliðsmaður í handbolta, þjálfari 20 ára landsliðs Íslands og meistaraflokks karla hjá ÍR.Bjarni segist ekki vilja vera fastur í einhverju formi og lætur svolítið vaða á allt. Hann reynir stöðugt að ögra sér og halda áfram að vaxa. Hann er með brennandi ástríðu að vopni í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.Bjarni notar mikið núvitund í sinni kennslu og þjálfun. Núvitund er að núllstilla sig. Í grunninn erum við að þjálfa skynfærin í að fókusa á það sem við erum að gera og það sem skiptir mál. Skilja eftir það sem er búið og það sem er að fara að gerast og allar hugsanir og detta bara inn í viðburðinn sem við erum í. Heilsa er það mikilvægasta í mínu lífi segir Bjarni. Heilsa er eitthvað sem maður tekur sem sjálfsögðu þegar maður er ungur og fattar að skiptir öllu máli þegar maður eldist. Þetta snýst um lífsgæði og að vera í jafnvægi, þ.e. heilsa er að mér líði vel og ég geti gert það sem ég vil gera. Auk þess er mikilvægt að rækta félagsleg tengsl, þau skila 30% af hamingjunni þinni en peningar aðeins 1%Bjarni bendir á að íþróttir, tómstundir og áhugamál eru mikilvæg fyrir alla og hjálpa einstaklingum að þróa með sér leiðtogahæfileika, góð samskipti og fleira sem er góð þjálfun fyrir lífið sjálft. Áhugasamir geta fundið nánari upplýsingar um námskeið og fyrirlestra Bjarna hér.Samstarfsaðilar þáttarins eru Nettó og Spíran. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 19, 2024

Embed this episode

Í þættinum ræðir Erla við Bjarna Fritzson rithöfund, íþróttamann og eiganda sjálfstyrkingarfyrirtækisins Út fyrir kassann um jákvæða sjálfsmynd, núvitund, samskipti, sjálfsrækt, sjálfstraust, gildi og hvernig við hjálpum börnum okkar að byggja upp góða sjálfsmynd með því að aðstoða þau við að finna sína styrkleika. Sjálfur segist Bjarni fyrst og fremst vera fjölskyldufaðir úr Breiðholtinu og íþróttanörd sem elskar að efla fólk og hjálpa því að blómstra. Hann heldur meðal annars námskeiðin Öfl...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

Ready to play

42. Út fyrir kassann. (Styrkleikar, sjálfsmynd, núvitund, samskipti og sjálfsrækt). Bjarni Fritzson

0:00 1:15:11

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 1 hour and 15 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on April 19, 2024.

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!