Með lífið í lúkunum podcast artwork

PODCAST · health

Með lífið í lúkunum

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

  1. 164

    Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45)

    Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf?Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum. Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan.Njótið vel!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  2. 163

    120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma.Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  3. 162

    Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44)

    Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur. „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf. Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi.Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  4. 161

    119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni

    In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self.Pia Marangoni’s InstagramThe Fiercely Fueled PodcastA huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle. 🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty).💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  5. 160

    118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi. Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd.Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  6. 159

    117. How Challenges Fuel Growth. (Resilience, self-sabotage, self-love and building habits). Katie Boshko

    In this inspiring interview, Katie shares her journey through injury, mental health, and resilience, offering deep insights into mindset, habits, and holistic health. Discover how her experiences shaped her approach to coaching and life, emphasizing the importance of self-love, connection, and perseverance.She also shares practical strategies to enhance your well-being, performance, and self-love through stories and expert advice, helping you build habits for a fulfilling life. Follw Katie on Instagram A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Nutrilenk. 🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty).💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  7. 158

    116. Við þurfum að finna veikleikana okkar til að finna hugrekkið. (Mia Magic, langveik börn, hugarfar og andleg heilsa). Þórunn Eva G. Pálsdóttir

    Viðmælandi þáttarins er hin dásamlega Þórunn Eva stofnandi Mía Magic. Þær Erla ræða um lífið og tilveruna, andlega heilsu, heilsubrest, langveik börn, hugarfar, hugrekki og margt fleira. Hvað er Mia Magic? Það er íslenskt góðgerðarfélag sem einbeitir sér að því að gleðja og styðja langveik börn og foreldra þeirra. Félagið gefur út fræðslubækur um sjúkdóma og aðgerðir sem hjálpa börnum að skilja algenga sjúkdóma og inngrip á þeirra forsendum, svo sem Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki. Félagið sendir einnig út Míubox til að létta undir með fjölskyldum og veitir fagfólk viðurkenningu með Míuverðlaunum.Þórunn Eva var valinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 en fyrir framlag sitt til góðgerðarmála.  Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  8. 157

    Næringarpælingar og heilsulæsi (Heilsumoli 43)

    Erla er að gera smá ,,tilraun" á sjálfri sér þessa dagana. Hún er að breyta til í mataræði sínu og borða eins og ráðlagt er fyrir íþróttakonur á besta aldri (sem eru að lyfta þungt). Þetta er frábrugðið því mataræði sem hún hefur tamið sér hingað til og talið vera æskilegt fyrir góða heilsu.  Það er nauðsynlegt að gera tilraunir að sjálfum sér og prófa sig áfram því að það er ekki það sama sem hentar öllum. Við berum ábyrgð á eigin heilsu og það er því mikilvægt að læra að þekkja góðar upplýsingar og ráðleggingar frá öllu bullinu sem er í umferð. Það er mikilvægt að hlusta á líkamann, innsæið og skynsemina. Hvað er líkaminn að segja okkur? Erum við þreytt eða slöpp? Getur það verið vegna þess hvernig ég er að gera eitthvað sem hefur þessi neikvæðu áhrif á heilsuna mína? Er ég kannski að sofa allt of lítið? Er ég ekki að hitta fólk/vini? Er ég að borða rusl? Er ég að hreyfa mig of lítið eða of mikið? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  9. 156

    115. Hvernig lifum við lengur? (Næringarlæsi, gjörunnin matvæli, trefjar, hugleiðsla og bláu svæðin). Helga Arnardóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Helgu Arnardóttur fjölmiðlakonu, handritshöfund og heilsuáhrifavald um langlífi, próteinæðið í heiminum, mikilvægi trefja, gagnsemi þyngdarstjórnunarlyfja, lífsbreytandi áhrif hugleiðslu, gjörunnin matvæli og hvað við getum gert til þess auka líkurnar á því að lifa vel og lengi. Helga hefur meðal annars gert þættina Lifum lengur og Blóðbönd sem ég mæli mikið með að þið horfið á. Helga hefur einnig gert kvikmyndirnar Birta og Röskun ásamt eiginmanni sínum Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Töfrandi nám í markþjálfun💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  10. 155

    Hver er HeilsuErla 2.0? (Heilsumoli 42)

    Hver er HeilsuErla? Er hún enn sama manneskjan og tók upp kynningarþáttinn í júlí 2023? Í þessum Heilsumola veltir Erla því fyrir sér hvernig hún varð ,,jáhrifavaldur" í eigin lífi og hvernig hún hefur vaxið og þroskast með aukinni þekkingu, reynslu og viðtölum. Ert þú jáhrifavaldur í eigin lífi? Ert þú með lífið í lúkunum?Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  11. 154

    114. Fjárhagslegt frelsi. (Sjálfstraust, fjármálahegðun og hagnýt ráð). Íris Líf Stefánsdóttir

    Viðmælandi þáttarins er Íris Líf Stefánsdóttir bókari og gleðisprengja. Þær Erla ræða um sparnað, fjárhagslegt frelsi, mikilvægi sjálfstrausts, fjármálahegðun Íslendinga, fjárhagslega heilsu og svo veitir Íris Líf hlustendum frábær fjármálaráð til að bæta heimilisbókhaldið. Íris Líf sem er aðeins 25 ára rekur eigið bókhaldsfyrirtæki, Accounta.is, og er meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Virkum. Á TikTok og Instagram deilir hún góðum ráðum um fjármál og sparnað fyrir áhugasama.Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins:  🌈 -SONETT. Lífrænt vottuð hreinsiefni. Án rotvarnarefna, ilmefna og kemískra efna💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu.🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Næsta lotunám hefst 30.apríl. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  12. 153

    113. Healthy at 98 years. (Diet, attitude, purpose, excercise and never stop moving). Zona Merryman

    In this interview Erla speaks with Zona Merryman a remarkable 98 year old lady and inspiration to everyone. She tells us how she has maintained good health over the years.Zona says that we are responsible for our own health and that our mindset is extremely important. In addition to how diet and social factors play a big role in good health, she emphasizes that we should never stop exercising and moving.She lives by herself, walks her dog several times a day and travels alone by plane from Iowa to Orlando several times a year to visit her daughter and friends.You can see a short video from the interview on Instagram A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Bio-Kult. 🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your)fegurð (beauty).💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play, and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  13. 152

    112. Að draga úr ótímabærri öldrun. (Mataræði, hormónar, bætiefni, sykurfíkn, styrktarþjálfun ofl). Þorbjörg Hafsteinsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing, næringarþerapista, rithöfund og lífsstíls þjálfara um hennar bakgrunn og nálgun á heilsu, mýtur í mataræði, hormóna og konur, ótímabæra öldrun, sykurfíkn, bætiefni, þarmaflóru, mikilvægi styrktarþjálfunar, breytingarskeið kvenna og margt fleira. Þorbjörg er einn helsti brautryðjandi landsins á sviði heilsueflingar og mataræðis og hefur í áratugi aðstoðað fólk bæði á Íslandi og í Danmörku, þar sem hún er búsett, að bæta heilsu sína og heilbrigði með fræðslu og ráðgjöf.Hún hefur gefið út margar bækur og er með ýmis námskeið í boði á thorbjorghafsteins.is💙 -HEILSUHILLAN. Bio Kult- góðgerlar eru frábær viðbót inn í daglega rútínu.🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  14. 151

    111. Öndun er mitt hjartans mál. (Streita, öndunaræfingar, ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu og meðvirkni). Lilja Steingrímsdóttir

    Í þætti vikunnar ræðir Erla við Lilju Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og öndunarkennara um streitu, gagnsemi öndunaræfinga, mikla ferðalöngun, ADHD, að eiga barn í óreglu, meðvirkni og að snúa neikvæðum hlutum upp í jákvæða.Lilja sem hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur í 44 ár segir öndun hafa bjargað lífi sínu og geðheilsu þegar hún skildi, flutti og fékk nýja vinnu allt á sama tíma. Hún kynntist þá óvænt öndunaræfingum sem hún gerði daglega í 9 ár og stundar enn 20 árum seinna. Lilja þurfti að taka þá erfiðu ákvörðun að flytja frá sonum sínum þegar þeir voru aðeins 11 og 14 ára gamlir en eina leiðin til að klippa á andlegt ofbeldi fyrrum maka, var að fara nógu langt í burtu. Næsta Öndunar námskeið hjá Art of Living/IAHV verður 17.-19. apríl. Kennt er af Lilju í Grundargerði 7. Verð fyrir 42.000 fyrir vinnandi en 32.000 fyrir alla aðra og verkalýðsfélög taka venjulega þátt.Nánari upplýsingar má finna á: www.artofliving.org, www.IAHV.org og áhugasamir geta haft samband við Lilju í síma +354 6928302  eða sent henni tölvupóst [email protected]ðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM Soft Picks PRO?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Ertu á krossgötum? Prófaðu tíma í markþjálfun.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  15. 150

    110. Allt mótlæti kemur frá okkur sjálfum. (Ævintýri, ögrun og sjálfsþroski). Inga Þóra Ingadóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Ingu Þóru Ingadóttur, dásamlega stelpukonu um ævintýri lífsins, áskoranir, að ögra sjálfum sér, sjálfsvinnu, tækifæri og hvernig það er að flytja í ný lönd og kynnast ólíkri menningu. Inga er algjör nagli en samt með svo ótrúlega róandi og trausta nærveru sem skín í gegn í viðtalinu. Hún er íþróttakona, þjálfari og móðir sem brennur fyrir það að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Hún þjálfar nú hjá Mayhem perfomance coaching hjá Rich Froning sem er einn frægasti Crossfittari heims og elskar að takast á við krefjandi verkefni.Áhugasamir geta fundið Ingu á Instagram. Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað GUM batterístannburstann?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  16. 149

    109. A better you. (Declining nutrient status, food processing, soil degredation, absorption of supplements and wellness.) Andrew Thomas

    In this conversation, Andrew Thomas, founder of Better You, shares his personal journey from the fashion industry to the health sector, driven by his own health challenges as an asthmatic. He discusses the importance of magnesium and its role in overall health, the decline in nutritional quality of food, and the significance of vitamins and minerals in our diets. Andrew emphasizes the need for education in making informed health choices and the benefits of innovative supplementation methods, particularly for children. He concludes with a call to embrace healthy choices and supplementation positively.A huge shoutout to my sponsors <3💙 -HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Better You🌱  -SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘  -VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your)fegurð (beauty).💦  -UNGBARNASUND ERLU  (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play, and water safety for infants and children up to 2,5 years of age.TakeawaysAndrew Thomas founded Better You after a personal health journey.Magnesium is crucial for cellular function and overall health.Nutritional decline is influenced by food processing and soil quality.Education empowers individuals to make better health choices.Children's health should be prioritized in nutritional discussions.Supplements should be tailored to individual needs and deficiencies.Oral sprays can enhance absorption compared to traditional tablets.Organic products generally offer better nutritional value.Healthy dietary choices are essential for long-term health.Health is a state of feeling good and being free from discomfort.Chapters00:00 Introduction to Andrew Thomas and Better You05:57 Understanding Magnesium's Role in Health12:06 The Importance of Soil and Food Quality17:56 The Role of Education in Nutritional Choices24:11 Vitamin B12: Importance and Deficiency30:10 Vitamin D: Sources and Requirements35:34 Understanding Vitamin D Dosage and Maintenance42:20 Child-Friendly Supplements: Making Health Fun47:23 The Importance of Core Nutrients vs. Fads53:21 The Role of Astaxanthin and Natural Antioxidants01:00:04 Defining Health: A Personal Perspective01:06:55 Focusing on Children's Health and NutritionFylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  17. 148

    108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda.Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma.Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar jafningjafræðari.Hún tók fyrsta skrefið í átt að draumnum sínum síðastliðið haust þegar hún byrjaði með alveg dásamlegt hlaðvarp, Tilveruna þar sem hún ræðir við fólk sem talar hreint út um lífið og raunveruleikann, tilvistarkreppur og upprisur.Samstarfsaðilar hlaðvarpsins eru: 💙 -HEILSUHILLAN. Hefur þú prófað Better You munnúðana?🌱  -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf.Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  18. 147

    107. Óútskýrðir langvinnir verkir. (Verndarkerfi líkamans, næming, öryggi, ótti og aðlögunarhæfni taugakerfisins.) Hera Rut og Thelma Rut Hólmarsdætur

    Í þættinum ræðir Erla við samrýmdu systurnar Thelmu Rut og Heru Rut um óútskýrða langvinna verki. Þær eru báðar sjúkraþjálfarar í fæðingarorlofi og eru saman með námskeiðið Náðu stjórn á verkjum auk þess að vera með ókeypis fræðslu á Hreyfilausnir bæði á Instagram og Facebook.Í þættinum ræða þær um skilgreiningu óútskýrðra langvinnra verkja og hvað er til ráða þegar þeir eru til staðar. Það sem er afar áhugavert er að slíkir verkir eru sjaldan beintengdir skaða heldur mótast af taugakerfinu, ónæmiskerfinu, tilfinningum okkar, hugsunum, fyrri reynslu og aðstæðum í lífinu.Þá getur svefn, næring, hreyfing, félagsleg tengsl okkar og andleg líðan haft mikil áhrif á framgang verkja. ATH. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í þættinum!Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana?🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  19. 146

    Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41)

    Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum.Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  20. 145

    Magasýrur, hvers vegna skipta þær miklu máli? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 40)

    Í þessum öðrum Heilsumola af þremur ræðir Erla við Betu Reynis um magasýrur, einkenni um lágar magasýrur og einkenni ef magasýrur eru háar, hvernig við eigum að bregðast við og hvað við getum gert með mataræði til þess að hafa góð áhrif.  Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  21. 144

    Hvað er Nikkel óþol? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 39)

    Í þessum fyrsta Heilsumola af þremur ræðir Erla við Elísabetu Reynisdóttir næringarfræðing og næringarþerapista um Nikkel óþol. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  22. 143

    Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38)

    Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið.Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða eftir að hvatningin hellist yfir þig því mögulega gerist það aldrei.Í febrúar ætla ég að bjóða þér í 28 daga Heilsuáskorun. Þú setur þér EITT stórt markmið sem þú ætlar að gera daglega allan febrúar mánuð. Þetta getur verið að taka út slæman ávana sem er ekki að gagnast þér lengur og hefur neikvæð áhrif á heilsuna eða að bæta inn nýrri góðri venju.Hugmyndir eru t.d. að bæta inn daglegri hreyfingu, bæta inn grænmeti í öll mál, sleppa áfengi, sleppa viðbættum sykri, skrifa í þakklætisdagbók, taka D vítamín, nota tannþráð, sofa í 8 klst og svo framvegis. Hvernig virkar áskorunin?Þú sækir blaðið FRÁBÆR FEBRÚAR og prentar það út (Efstu tvö blöðin eru eins nema annað er með fallegri bakgrunn, þriðja blaðið er svo dæmi um hvernig fylla skal út). Þú velur þér svo eitthvað EITT sem þig hefur lengi langað til að gera og mun hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína.Þú merkir svo inn daglega (gerir X við hvern dag mánaðarins). Þar að auki getur þú sett inn allt að 8 aðrar venjur sem þig langar að gera sem allra oftast í febrúar og hakað við þær þá daga sem þú gerir þær.Eftir 28 daga verður þetta stóra markmiðið eða heilsuvenja vonandi orðinn mikilvægur hluti af þínu lífi og þú tekur þá ákvörðun um það hvort að þú haldir henni áfram eða ekki.Sama hvernig gengur, ekki gefast upp! Þó það komi einn og einn erfiður dagur, hoppaðu bara strax aftur á heilsuvagninn þinn og haltu áfram. Það væri gaman að heyra hvernig gengur. Sendu mér skilaboð á Instagram eða ef þú deilir einhverju í story þá má endilega tagga @heilsuerlaGÓÐA SKEMMTUN! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  23. 142

    106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði. Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám í Læknisfræði og P-DTR meðferðinni sem bjargaði honum og hjálpaði honum að ná heilsu aftur.  Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana?🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  24. 141

    Byrjaðu árið með stæl. (Heilsumoli 37)

    Smá pepp frá HeilsuErlu inn í árið 2026. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  25. 140

    Hjartsláttarbreytileiki (HRV). Sigrún Haraldsdóttir. (Heilsumoli 36)

    Í þessum stutta Heilsumola útskýrir Sigrún hvað Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er og hvernig við getum mælt hversu sterk Vagus taugin er og bætt svokallað Vagal tone með öndun. Heilsumolinn er framhald af viðtali nr. 105. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  26. 139

    105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið.  En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar. Vagus taugin er bæði skyn og hreyfitaug og er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins (sefkerfisins), eins konar bremsa líkamans. Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana?🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í skírnargjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  27. 138

    Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35)

    Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er. Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4.Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 sek. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  28. 137

    2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34)

    Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag. Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025. Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar.Öll eru velkomin og við ætlum að reyna að ná samtals 2026 ferðum í Himnastiganum þennan dag! Munið að margt smátt gerir eitt stórt.Hægt verður að mæta hvenær sem er yfir daginn, frá nýársdagsmorgni til miðnættis á nýársdag. Það má ganga, hlaupa eða skríða. Þeir sem mæta geta svo sett inn mynd af sér og sínum í Facebook viðburðinn og þar verður einnig hlekkur til þess að skrá fjölda ferða. Ef þið setjið í story á Instagram má endilega tagga HeilsuErluFylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  29. 136

    104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson

    Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira.Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook.Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 -HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér?🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. 20% afsláttur af brúnku með kóðanum: erla20.💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  30. 135

    103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira. Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár.Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu.Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 - HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér?🌱  - SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘  - VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.💗 - ÞÍN FEGURÐ. Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann.💦  - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  31. 134

    Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. Kári Walter og HeisluErla (Heilsumoli 33)

    Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur við aðrar íþróttagreinar. Svo ræðum við auðvitað um undirbúninginn fyrir mótið, ferðalagið á HM, keppnina sjálfa og allt í kringum það.Ég set reglulega inn frá æfingum á Instagram og áhugasamir um ólympískar lyftingar geta einnig fylgt Kára og Lyftingarsambandi Íslands (LSÍ)Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  32. 133

    102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir

    Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun?Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsvitundar. Viðbrögð okkar eru samspil af líffræðilegri næmni, sögulegri reynslu og persónuleika og samhengis í núinu /daglegri líðan. Mig langar einnig að hvetja ykkur til þess að hlusta á fyrra viðtal við Önnu um heilsumissi í kjölfar áfalls og nýju Heilsumolana um Þörfina fyrir því að hafa stjórn og sambandið við okkur sjálf. Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann.💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  33. 132

    Sambandið við okkur sjálf. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 32)

    Skemmtilegt spjall við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um tengslin eða sambandið við okkur sjálf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  34. 131

    Hvað liggur að baki þörfinni fyrir að hafa stjórn? Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 31)

    Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um þörfina fyrir það að hafa stjórn. Hvað liggur að baki? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  35. 130

    Hugleiðsla fyrir triggera. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 30)

    Á næstunni kemur út þáttur um triggera eða kveikjur. Frábært viðtal við Önnu Sigurðardóttur sem lýsir á mannlegan og um leið faglegan hátt hvað gerist í líkamanum og afhverju þegar við ,,triggerumst". Hér kemur ein stutt hugleiðsla sem hægt er að nýta við þessar aðstæður. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  36. 129

    101. Sorg er eins og öldugangur. (Íþróttir, ofþjálfun, missir, áföll, örmögnun, lífsgleði og drifkraftur). Silja Úlfarsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Silju Úlfarsdóttur um lífið, sorgina, missir, áföll, mikilvægi íþrótta, eldmóð, fyrirmyndir og margt fleira. Farið er yfir allan tilfinningaskallann frá hlátri til gráturs.Silja er að eigin sögn íþróttapönkari sem brennur fyrir málefni sem tengjast íþróttum og hefur verið mikill jáhrifavaldur í þeim málefnum síðustu ár. Hún er algjör gleðisprengja, vinur vina sinna, stórkostleg mamma og er með alveg magnaðann og smitandi drifkraft. Á nokkurra ára tímabili dundu röð áfalla yfir Silju og fjölskyldu hennar og í viðtalinu segir hún frá því hvernig það er að vinna úr slíkum áföllum, lifa með sorg og halda áfram lífinu.Silja heldur úti síðunni Klefinn.is og frábæra hlaðvarpinu KlefinnÁhugasamir geta einnig kíkt á Siljaulfars.isÞátturinn er unninn í samstarfi við:💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  37. 128

    100. Heilsuspjall fegðina. (Fyrirmyndir, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, örmögnun og lífsstíll). Dr. Guðmundur Björnsson

    Í þættinum ræðir Erla við Guðmund Björnsson föður sinn og heilsufyrirmynd um starfsferil hans sem læknir, lífstíl, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, mikilvægi þess að hugsa vel um heilsuna, vera ekki fastur í vítahring þess að þurfa að taka þátt í öllu sem er í boði, stressaðu sig ekki of mikið og taka hlutunum ekki of alvarlega.Guðmundur er sérfræðingur endurhæfingarlækningum og hefur starfað á ýmsum sviðum á sinni starfsævi, t.d. á slysadeild Borgarspítalans, í heilsugæslu og í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, á Heilsustofnun NLFÍ, Læknafélagi Íslands, rekið eigið fyrirtæki og starfað við tryggingalæknisfræði.Hann gaf út bókina Þú getur grennst og breytt um lífsstíl fyrir rúmum 20 árum um áhrif lágkolvetna mataræðis á heilsu og hefur sjálfur alltaf passað að hreyfa sig reglulega og forgangsraða svefni.  💙 Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Sumarsalati HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  38. 127

    99. Ekki vera hrædd við að gera mistök. (Móðurmissir, dugnaður, þrjóska, mörk og hættuleg ímynd ofurkonunnar). Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við hina dásamlegu Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur um lífið og tilveruna, að alast upp hjá einstæðum föður, eldmóð í starfi, mikilvægi þess að setja mörk, hvernig það er að eiga tvíbura, hættulega ímynd ofurkonunnar, metnað, dugnað og þrjósku. Ragnhildur Steinunn er líklega flestum landsmönnum kunnug enda hefur hún verið ein öflugasta sjónvarps- og dagskrárgerðarkona landsins í yfir 20 ár. Nýjasta verkefni hennar er heimildarmyndin Takk Vigdís sem hún hefur unnið hörðum höndum að síðustu mánuði. Vertu með í Facebook hóp hlaðvarpsins ef þú vilt fylgjast með á bakvið tjöldin. Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 Heilsuhillan og Nutrilenk - Lykillinn að góðri liðheilsu🌱 Spíran - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?🐘 Virkja- Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  39. 126

    Sníðum okkur stakk eftir vexti (Heilsumoli 29)

    Hugleiðingar HeiluErlu á mánudagsmorgni!Ert þú að gera of miklar kröfur til þín? Ert þú að brjóta þig niður þegar allt fer ekki eins og þig langar? Hvaða boltum ert þú að halda á lofti? Er hægt að leggja einhverja til hliðar tímabundið? Ert þú að sýna þér mildi? Ert þú að stefna á ,,vegginn"?  Hvað nærir þig? Hvað hentar þér akkúrat núna? Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  40. 125

    98. Settu athyglina á gnægð en ekki skort. (Þakklæti, núvitund, náttúran, hamingja og bjargráð). Erla Súsanna Þórisdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við nöfnu sína Erlu Súsönnu Þórisdóttur og þakklætisdrottningu. Erla Súsanna er með heimasíðuna Töfrakistan og gaf fyrir nokkrum árum út Þakklætisdagbókina, sem er verkfæri sem getur hjálpað þér að innleiða hugarfar þakklætis inn í daglegt líf. Erla er að eigin sögn fróðleiksfús manneskja, jarðbundin en líka fiðrildi, lífsglöð og jákvæð. Henni þykir gaman að grúska í og skoða hvað gerir lífið þess virði að lifa því. Hún stafaði sem grunnskólakennari í 13 ár og var mjög umhugað um vellíðan kennara og nemenda og kenndi nemendum t.d. jóga, hugleiðslu og núvitund. Erla segir okkur hvernig hún fékk áhuga á þakklætisfræðunum og afhverju það skiptir máli að tileinka sér þakklæti en rannsóknir hafa meðal annars sýnt fram að aukna hamingju, betri svefn, meiri samkennd, meiri hvati til þess að hreyfa sig og meiri bjartsýni.Erla hefur búið í fjórum löndum á fimm árum og segir frá því hvað hún hefur lært á hverjum stað fyrir sig og hvað hún hefur lært á öllum þessum flutningum. Þá deilir hún með okkur morgunrútínu sinn og þakklætisæfingunni Hell Yes- Hell No. Áhugasamir geta fylgt Erlu Súsönnu á Instagram eða á Töfrakistan.isÞátturinn er unninn í samstarfi við:💙 @heilsuhillan og @nutrilenk_lidstyrkur - Lykillinn að góðri liðheilsu🌱 @spiran.is - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 @virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 @thinfegurd_snyrtistofa - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 @ungbarnasunderlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  41. 124

    HEILSUÁSKORUN (Heilsumoli 27)

    Hvernig væri að breyta gömlum venjum sem eru ekki að gagnast þér lengur?Þessi áskorun snýst um að velja sér EITT atriði sem mun hafa jákvæð áhrif á heilsu þína og gera það daglega eða vikulega (fer eftir þínu markmiði) fram til 1.janúar 2026. Þú getur annað hvort bætt einhverju góðu inn í líf þitt eða tekið út eitthvað sem er að hafa neikvæð áhrif á heilsuna.  Þetta getur t.d verið að bæta inn daglegu þakklæti, hreyfingu, lesa í 15 mínútur eða taka út áfengi, sykur, hætta að taka símann með upp í rúm o.s.fr.v.EF ÞÚ BREYTIR ENGU- BREYTIST EKKERT!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  42. 123

    Ungbarnasund Erlu (Heilsumoli 28)

    Í þessum heilsumola fer Erla yfir praktísk atriði fyrir alla sem hafa áhuga á því að koma á námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu í Suðurbæjarlaug. Ungbarnasund hefur gífurlega jákvæð áhrif á heilsu barna, líkamlega, andlega og félagslega. Ungbarnasund örvar hreyfiþroska barna og styrk, stuðlar að betri svefni og matarlyst, örvar skynfæri barnsins og hækkar streituþröskuld. Einnig styrkir ungbarnasund tengslamyndun foreldra og barna sem hefur áhrif á líðan og heilsu bæði foreldra og barns til framtíðar. Ungbarnasund Erlu var stofnað af Erlu Guðmundsdóttur í júlí 2006. Erla er félagi í Busla, félagi ungbarnasundkennara á Íslandi og var ritari félagsins frá 2005-2019 og hefur verið formaður félagsins síðan árið 2019.Upplýsingar um námskeiðHvert námskeið er 6 vikur (að undanskildu sumarnámskeiði sem er 3 vikur) með skipulagðri dagskrá í sundlauginni þar sem góða skapið, brosið og stöðugt hrós eru lykilatriði. Ungbarnasund byggir á nánu sambandi foreldra og barns og þetta er því ekki síður námskeið fyrir foreldrana en börnin. Kennt er einu sinni í viku, 40-45 mínútur í senn.Byrjendanámskeið er fyrir börn 3 mánaða og eldri.  Framhaldsnámskeið 1 er fyrir börn 4-10 mánaða sem lokið hafa byrjendanámskeiði í ungbarnasund eða eldri byrjendur ogFramhaldsnámskeið 2 er fyrir börn 7 mánaða-2 ára sem lokið hafa byrjendanámskeiði og/eða framhald 1.Framhaldsnámskeið 3 er nýr hópur fyrir 1-2,5 ára börn. Hægt er að koma aftur og aftur á framhald 2 og 3.Námskeiðið fer fram í innilaug Suðurbæjarlaugar. (Hringbraut 77, Hafnarfirði). Hitastig laugarinnar er 34-36°C. Lofthiti er 25-30°C. Skiptiborð eru við innilaugina fyrir hvert barn.Nánari upplýsingar á nýrri og glæsilegri heimasíðu www.ungbarnasunderlu.isUngbarnasund Erlu er einnig á TikTok og InstagramFylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  43. 122

    97. Sálfélagslegt öryggi og heilsa. (Vinnustaðamenning, heilsumissir og innri vöxtur). Harpa Þrastardóttir

    Í þessum þætti ræðir Erla við Hörpu Þrastardóttur, hugrakka stelpukonu um erfiða lífsreynslu sem varð til þess að hún missti heilsuna. Hún hefur nýtt þessa reynslu og aukna þekkingu til innri vaxtar og til þess að fræða og valdefla aðra. Hún stofnaði í kjölfarið Kjarkur ráðgjöf sem býður upp á alhliða ráðgjöf og fræðslu á sviði vinnuverndar svo sem mannauðsmála, stjórnunar, EKKO mála, gæðamála, umhverfismála og öryggis- og heilsumála. Allt eru þetta þættir sem fyrirtæki þurfa að huga að til þess að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær tækfæri til að vaxa.Þátturinn er unninn í samstarfi við:💙 Heilsuhilluna og Nutrilenk - Lykillinn að góðri liðheilsu🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  44. 121

    Hvað er Virkja og hvernig getur markþjálfun hjálpað þér að vaxa? (Heilsumoli 25)

    Í þessum heilsumola ræða Erla og Laufey um Virkja og hvernig markþjálfun hefur hjálpað þeim að vaxa.Virkja er einn af dyggu samstarfsaðilum hlaðvarpsins og ég get ekki mælt meira með náminu hjá þeim en eins og þið heyrið í spjallinu þá hefur það gefið mér mjög mikið. Hægt er að bóka fría 20 mínútna námskynningu á virkja.is <3 Kíktu á Virkja á Instagram Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  45. 120

    Núllstilling -8 mínútur. Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 26)

    Laufey Haraldsdóttir eigandi Virkja færir hlustendum hlaðvarpsins þessa dásamlegu gjöf. Hún leiðir okkur í gegnum 8 mínútna núllstillingu en æfinguna getur þú hlustað á hvar og hvenær sem er þegar þér hentar. Tilvalið til þess að hægja á í amstri dagsins, minnka streitu og kyrra hugann. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  46. 119

    96. Við erum bara mannleg. (Heildræn heilsa, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbygging og frelsi). Arnaldur Birgir Konráðsson

    Í þættinum ræðir Erla við Arnald Birgi Konráðsson sem er þjálfari og heilsuáhrifavaldur með yfir 20 ára reynslu. Hann hefur þjálfað bæði almenning og afreksfólk og er þekktur undir ýmsum nöfnum, m.a. Coach Birgir, Birgir Þjálfun og Biggi Bootcamp.Þau ræða um heildræna heilsu, þakklæti, taugakerfið, vöðvauppbyggingu á gamals aldri, hreyfingu, svefn, næringu, muninn á Íslendingum og Dönum og margt fleira í afar skemmtilegu og gefandi viðtali. Áhugasamir geta fundið Coach Birgi á InstagramÞátturinn er unninn í samstarfi við:💙 Nutrilenk - Lykillinn að góðri liðheilsu🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Sumarsalati HeilsuErlu? 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  47. 118

    95. Hvatberaheilsa. (Vannæring, PCOS, næringarráðleggingar, faraldsfræði, efnaskipti og fræolíur). Ragnheiður Vernharðsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Ragnheiði Vernharðsdóttur, sérnámslækni í augnlækningum og fjögurra barna móður sem er nýlega flutt heim til Íslands eftir nám í Noregi. Ragnheiður brennur fyrir bætta heilsu og vellíðan, bæði hjá sjálfri sér og öðrum og hefur í raun prófað allt milli himins og jarðar til að bæta heilsu sína. Til dæmis ólíkar tegundir mataræðis eins og vegan, grænmetisfæði og keto, fjölbreytta hreyfingu og ýmsar leiðir til sjálfsræktar. Hún skilur í dag að heilsa snýst ekki um útlit heldur líðan og jafnvægi. Ragnheiður miðlar þessu í hlaðvarpinu Baby Let’s Talk, þar sem hún kafar djúpt í vísindi og fræðin allt niður í frumur okkar, og með Baby Let’s Move appinu sem styður konur á meðgöngu og eftir fæðingu. Í viðtalinu fáum við að heyra hennar sögu, hvað knýr hana áfram og hvernig hún nálgast heilbrigði út frá bæði fræðunum og lífinu sjálfu.Hún segist ekki vilja predíka, heldur sé að miðla því sem hún hefur lært og kynnt sér í þaula og það sem virkar fyrir sig.  Áhugasamir geta fylgst með Ragnheiði á InstagramHlaðvarpið er í samstarfi við:💙 GeoSilica - 15% afsláttur með kóðanum Heilsuerla🌱 Spíruna - Ekki missa af Sumarsalati HeilsuErlu 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  48. 117

    94. Aldrei gefast upp. (Seigla, þolinmæði og óbilandi viljastyrkur 15 ára drengs). Magnús Máni Magnússon

    Í þættinum ræðir Erla við Magnús Mána Magnússon sem er aðeins 15 ára en hefur þegar sýnt meiri seiglu, þolinmæði og viljastyrk en margir upplifa á langri ævi.Sumarið 2023 breyttist líf Magnúsar á örfáum dögum. Eftir stutt veikindi missti hann mátt og alla skynjun frá bringu og niður. Bakteríusýking hafði náð alla leið inn í mænuna og olli alvarlegri bólgu sem lamaði hann.Síðastliðin 2 ár hefur hann staðið í gríðarlega krefjandi endurhæfingu með óbilandi markmið, að ná sér að fullu. Hann hefur aldrei gefist upp á því markmiði!Til þess að ná þessum árangri hefur Magnús þurft að leita sér aðstoðar erlendis, þar sem nýjustu tæknilausnir, hvatning og stuðningur eru til staðar þar sem að sumt því miður er ekki í boði hér heima.Í viðtalinu segir hann okkur frá því hvernig það var að lenda í svona óvæntri lífsbreytingu, endurhæfingunni, stuðningi vina og fjölskyldu og draumunum um framtíðina. Þetta er saga um styrk, trú og það að aldrei gefast upp.Slík endurhæfing er afar kostnarðarsöm og ef þú vilt leggja þitt af mörkum, þá er kjörið tækifæri fram undan því það styttist í Reykjavíkur maraþon sem er þann 23. ágúst. Hvert skref, hver króna og hver hlý hugsun hjálpar honum að ná draumnum sínum: að ganga óstuddur og komast aftur í sitt gamla líf.Þú finnur allar upplýsingar um hvernig þú getur styrkt hann hér og í Facebook hóp.Við skulum sameinast í að hjálpa Magnúsi að komast alla leið.Hlaðvarpið er í samstarfi við:💙 GeoSilica - 15% afsláttur með kóðanum Heilsuerla🌱 Spíruna - Ekki missa af Sumarsalati HeilsuErlu 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  49. 116

    93. Að týnast í myrkrinu. (Andleg heilsa, áskoranir, sjósund og seigla). Sigurgeir Svanbergsson

    Í þættinum ræðir Erla við Sigurgeir Svanbergsson, íslenskan sjósundskappa sem lét ekki veðrið, öldurnar né marglyttur stoppa sig þegar hann lagði upp í eitt stærsta sundævintýri sem hægt er að ímynda sér, að synda yfir Ermasundið.Markmið hans var ekki aðeins að takast á við þessa gríðarlegu áskorun heldur einnig að vekja athygli og safna áheitum fyrir Píeta samtökin, sem vinna ómetanlegt starf í forvarnar- og stuðningsstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða.Við ræddum um undirbúninginn, andlegu hliðina, kvíðann, kuldann, að týnast í myrkrinu og af hverju honum fannst mikilvægt að tengja þetta sund við málefni sem skiptir hann miklu máli. Þetta er viðtal um seiglu, tilgang og manngæsku.Hlaðvarpið er í samstarfi við:💙 GeoSilica - 15% afsláttur með kóðanum Heilsuerla🌱 Spíruna - Ekki missa af Sumarsalati HeilsuErlu 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

  50. 115

    92. Frjósemi og heilsa. (Mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur, offita, úrræði og hlutverk lífsstíls). Snorri Einarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Snorra Einarsson sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum um áhrif lífsstíls á frjósemi, mögulegar ástæður ófrjósemi, mýtur og hvaða úrræði eru í boði.                  Snorri hefur starfað við ófrjósemislækningar frá 2006 og er framkvæmdastjóri, yfirlæknir og einn af stofnendum Livio Reykjavík. Í frítímanum er það fjölskyldan og börnin fjögur sem skipa stærstan sess og ekki er það verra ef öll fjölskyldan er saman á ferðalögum, í golfi eða á skíðum.Hlaðvarpið er í samstarfi við:💙 GeoSilica - 15% afsláttur með kóðanum Heilsuerla🌱 Spíruna - Ekki missa af Sumarsalati HeilsuErlu 🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

HOSTED BY

HeilsuErla

Frequently Asked Questions

How many episodes does Með lífið í lúkunum have?

Með lífið í lúkunum currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Með lífið í lúkunum about?

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt.Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem...

How often does Með lífið í lúkunum release new episodes?

Með lífið í lúkunum has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Með lífið í lúkunum?

You can listen to Með lífið í lúkunum on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Með lífið í lúkunum?

Með lífið í lúkunum is created and hosted by HeilsuErla.
URL copied to clipboard!