45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit episode artwork

EPISODE · Dec 16, 2020 · 1H 16M

45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit

from Virðing í uppeldi · host medvitadirforeldrar

Í þessum þætti fékk Guðrún Inga Torfadóttir þær Siggu Dögg kynfræðing og Soffíu Bæringsdóttur fjölskylduráðgjafa og doulu með sér til að spá aðeins í sambandsslitum foreldra. Þátturinn hefst á 7 mínútna langri og krefjandi einræðu Guðrúnar, ef þú vilt sleppa við hana, um tengslatýpur og hvernig þær geta haft áhrif á hvernig samband virðist fara hring eftir hring í þvottavél af spennu, upplausn og sátt. Og þótt þess konar sambönd geti enst í mörg ár eða ævilangt þá geta þau haft neikvæð áhrif á uppeldisumhverfi barna. Sigga Dögg fór fyrr á árinu í gegnum skilnað og skrifaði um það barnabók til að geta lesið með börnunum sínum þremur. Hún kaus að einblína á og grafa upp alla þá verndandi þætti sem geta hjálpað börnum að komast í gegnum það tímabil breytinga sem skilnaðir eru. En fyrst og fremst ræddum við um hvað geti búið að baki ákvörðun um skilnað og hvort von sé fyrir sambönd sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma. Fræðsla, bæði um áhrif barneigna á sambönd, sem og um áhrif skilnaða á börn ef það er eina leiðin, getur hvort tveggja haft mjög mikið að segja skv. rannsóknum um velferð fjölskyldunnar. Það sem skipti einna mestu máli um góða aðlögun barna að skilnaði foreldra sinna eru einmitt erjurnar sem leiddu til skilnaðarins og hvort þær halda áfram eftir skilnað. Það getur samkvæmt rannsóknum skipt meira máli en skilnaðurinn sjálfur þegar kemur að líðan barna.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 16, 2020

Embed this episode

NOW PLAYING

45. Sigga Dögg og Soffía Bærings um sambandsslit

0:00 1:16:22

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Virðing í uppeldi?

This episode is 1 hour and 16 minutes long.

When was this Virðing í uppeldi episode published?

This episode was published on December 16, 2020.

Can I download this Virðing í uppeldi episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!