46. Hættu aldrei að láta þig dreyma. (Heilsa, húmor, hreyfing, sjálfsmynd, andleg heilsa og heimsókn í SOS Barnaþorp). Eva Ruza Miljevic episode artwork

EPISODE · May 16, 2024 · 1H 15M

46. Hættu aldrei að láta þig dreyma. (Heilsa, húmor, hreyfing, sjálfsmynd, andleg heilsa og heimsókn í SOS Barnaþorp). Eva Ruza Miljevic

from Með lífið í lúkunum

Í þættinum spjallar Erla við Evu Ruzu skemmtikraft, útvarpskonu, velgjörðasendiherra SOS með meiru um heilsu, húmor, hreyfingu, heimsókn í SOS-barnaþorp, áhugann á fræga fólkinu í Hollywood, draumastarfið, sjálfsmynd og mikilvægi þess að sinna andlegu heilsunni. Það er ekki að undra að Eva Ruza sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins því hún á afar auðvelt með að létta lund landans. Hún tekur sjálfri sér ekki of hátíðlega og það er alltaf stutt í húmorinn. Þó að hún elski að hafa sig til þá segir hún að það sé alltaf mjög stutt í króatísku sveitakonuna. Eva Ruza segist fyrst og fremst vera mamma og eiginkona, hún er mikil fjölskyldukona og segir fjölskylduna vera númer 1, 2 og 10. Hún er búin að vera með Sigga sínum í 24 ár og saman eiga þau 15 ára tvíbura.Eva er með útvarpsþátttinn Bráðavaktina á K100 með Hjálmari vini sínum og þeir sem þekkja til vita að það er aldrei lognmolla í kringum þau tvö. Hún segir húmor vera besta meðalið við andlegri og líkamlegri heilsu og að það sé engin víma betri en að hlæja eða vera í galsa. Hún segir að við megum aldrei missa húmorinn úr lífi okkar, hann er svo smitandi.Eva hugsar vel um heilsuna og byrjar alla daga á því að hreyfa sig, annað hvort á Boot camp æfingu, nokkrum ferðum í Himnastiganum í Kópavogi eða fer út að hlaupa.  Hún segist alltaf mæta á æfingu sama hversu þreytt hún sé, bæði fyrir félagsskapinn og fyrir sálina. Hún hefur líka alltaf hugsað vel um mataræðiði og hefur alveg frá unglingsaldri verið meðvituð um að líkaminn þyrfti gott ,,bensín". Eva segir að þrátt fyrir að það sem allir haldi sé hún rólegasta manneskja sem þú getur fundið, mjög heimakær en þó hvatvís með sumt og vill oft að hlutirnir gerist núna!Hún er með fallega sýn á lífið, er þakklát og segist vera að lifa drauminn sinn. Hún hvetur líka alla hlustendur til þess að hætta aldrei að láta sig dreyma!Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published May 16, 2024

Embed this episode

Í þættinum spjallar Erla við Evu Ruzu skemmtikraft, útvarpskonu, velgjörðasendiherra SOS með meiru um heilsu, húmor, hreyfingu, heimsókn í SOS-barnaþorp, áhugann á fræga fólkinu í Hollywood, draumastarfið, sjálfsmynd og mikilvægi þess að sinna andlegu heilsunni. Það er ekki að undra að Eva Ruza sé einn vinsælasti skemmtikraftur landsins því hún á afar auðvelt með að létta lund landans. Hún tekur sjálfri sér ekki of hátíðlega og það er alltaf stutt í húmorinn. Þó að hún elski að hafa sig til...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

Ready to play

46. Hættu aldrei að láta þig dreyma. (Heilsa, húmor, hreyfing, sjálfsmynd, andleg heilsa og heimsókn í SOS Barnaþorp). Eva Ruza Miljevic

0:00 1:15:33

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 1 hour and 15 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on May 16, 2024.

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!