48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar episode artwork

EPISODE · Feb 10, 2021 · 1H 37M

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar

from Virðing í uppeldi · host medvitadirforeldrar

Í þessum þætti birtum við upptöku af fjarbókaklúbbi um snilldarbókina The Explosive Child eftir dr. Ross Greene. Guðrún Inga Torfadóttir sat sveitt í nokkra daga yfir að því er henni fannst ofvaxna verkefni að gera bókinni skil og heimfæra CPS-fræði Ross Greene yfir á aðra hluti sem við ræðum um í þessu hlaðvarpi, eins og RIE og almennt virðingarríka framkomu við börn. Frábærir gestir mættu sem betur fer og gátu gefið fyllingu í ágrip Guðrúnar Ingu og góðar samræður fóru fram og reynslusögur fengu að fljóta. Það voru þær Ágústa Margrét Arnardóttir, Elsa Borg Sveinsdóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Margrét Thelma Líndal, Perla Hafþórsdóttir og Sif Grétarsdóttir sem tóku til máls. Við mælum eindregið með hlustun á þennan þátt, hvaðan sem þú ert að koma ef þú á annað borð annast börn. „Barnið þitt er ekki með hegðunaráskoranir öllum stundum allan sólarhringinn. Barnið á erfitt stundum, sér í lagi þar sem aðstæður krefjast aðlögunarhæfni, sveigjanleika, sjálfstjórnar og færni í að leysa úr vandamálum."Ross segir að þegar barn hafi færnina til að mæta þessum aðstæðum, þá geri það það. En af því að barnið skorti færni, þá mæti barnið miklum erfiðleikum við að bregðast væntingum umhverfisins og ræður ekki við aðstæður. Og því segir Ross – og þetta er rauði þráðurinn í gegnum alla bókina: „Börn gera vel ef þau geta."

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 10, 2021

Embed this episode

NOW PLAYING

48. Bókaklúbbur - The Explosive Child krufin til mergjar

0:00 1:37:51

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Virðing í uppeldi?

This episode is 1 hour and 37 minutes long.

When was this Virðing í uppeldi episode published?

This episode was published on February 10, 2021.

Can I download this Virðing í uppeldi episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!