49. Nærðu þig fallega. (Vinnusemi, mikilvægi hreyfingar, lesblinda, andvana fæðing, gallstasi og sorg.) Anna Marta Ásgeirsdóttir episode artwork

EPISODE · Jun 6, 2024 · 1H 24M

49. Nærðu þig fallega. (Vinnusemi, mikilvægi hreyfingar, lesblinda, andvana fæðing, gallstasi og sorg.) Anna Marta Ásgeirsdóttir

from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur frumkvöðul, eiginkonu, móður og stjúpmóður um mótbyr og meðbyr í lífinu, vinnusemi, lesblindu, mikilvægi hreyfingar, hvernig á að næra sig fallega, andvana fæðingar vegna gallstasa, sorgina sem fylgdi og mikilvægi þess að hugsa um heilsuna. Anna Marta segir okkur fallegu söguna af því hvernig hún og Ingólfur maður hennar komu af stað góðgerðarverkefninu Ísbirninum Hring, fígúru sem léttir lund veikra barna og hefur glatt ófá hjörtu. En Hringur er lukkudýr Barnaspítala Hringsins sem kemur fram og hefur ofan af fyrir börnunum á spítalanum, skemmtir þeim og fræðir. Anna Marta er matarþjálfari og stofnandi fyrirtækisins Anna Marta sem hún rekur ásamt tvíburasystur sinni Lovísu. Bakgrunnur hennar er í líkamsrækt og heilsuþjálfun en hún hefur starfað sem þjálfari í áratugi ásamt því að vera menntaður þjónn. Hún hefur því alltaf unnið með fólki og hefur brennandi ástríðu fyrir því að bæta núvitund í matarmenningu og hreyfingu.Þó að lífið leiki við Önnu Mörtu þessa dagana þá upplifði hún mikinn mótbyr þegar hún fæddi dóttur sína Sól andvana eftir fulla meðgöngu árið 2008. Það kom síðar í ljós að Anna Marta var með gallstasa sem olli því að dóttir hennar lést. Eftir þessa lífsreynslu hefur hún gert það sem hún getur til þess að vekja umtal um þennan sjúkdóm því að það er hægt að koma í veg fyrir andvana fæðingu vegna sjúkdómsins. Hún vill ekki að neinn þurfi að upplifa það sama og hún og hvetur konur til þess að hlusta á innsæi sitt og líðan sína.Anna Marta er mjög orkumikil kona og segist alveg stundum vera til í að gefa eitthvað af þessari miklu orku. Hún segir þær systur vera mjög þjónustuglaðar og þó þær kunni að segja nei þá séu þær ekkert rosa glaðar að nota það. Hún segist ekki vera markmiðadrifin heldur lifi hún frekar eftir gildunum að blómstra í lífinu og að fylla á viskubrunninn sinn og deila úr honum sem hún gerir svo sannarlega í þessu spjalli.Þátturinn er í boði Nettó og UnbrokenFylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jun 6, 2024

Embed this episode

Í þættinum ræðir Erla við Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur frumkvöðul, eiginkonu, móður og stjúpmóður um mótbyr og meðbyr í lífinu, vinnusemi, lesblindu, mikilvægi hreyfingar, hvernig á að næra sig fallega, andvana fæðingar vegna gallstasa, sorgina sem fylgdi og mikilvægi þess að hugsa um heilsuna. Anna Marta segir okkur fallegu söguna af því hvernig hún og Ingólfur maður hennar komu af stað góðgerðarverkefninu Ísbirninum Hring, fígúru sem léttir lund veikra barna og hefur glatt ófá hjörtu. En Hrin...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

Ready to play

49. Nærðu þig fallega. (Vinnusemi, mikilvægi hreyfingar, lesblinda, andvana fæðing, gallstasi og sorg.) Anna Marta Ásgeirsdóttir

0:00 1:24:55

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Með lífið í lúkunum?

This episode is 1 hour and 24 minutes long.

When was this Með lífið í lúkunum episode published?

This episode was published on June 6, 2024.

Can I download this Með lífið í lúkunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!