5 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari episode artwork

EPISODE · Nov 1, 2023 · 59 MIN

5 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni.  Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu vikurnar sem þeir Helgi og Kristján Örn fóru yfir í þættinum.Má þar nefna að í dag hefði Hrafn Jökulsson rithöfundur, blaðamaður og skákfrömuður orðið 58 ára gamall en hann lést á síðasta ári. Vinaskákfélagið heldur glæsilegt hraðskákmót að Aflagranda 40 í Reykjavík síðar í dag til minningar um Hrafn og hafa flestir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar sem eru á landinu boðað þátttöku sína. Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, mun leika fyrsta leikinn fyrir Hjörvar Stein Grétarsson stórmeistara á efsta borði.Helgi sagði frá athyglisverðri og stórskemmtilegri grein sem hann skrifaði í síðasta tölublað Tímaritsins Skák sem hann kallar "5 ára planið" með undirfyrirsögninni "Reynslusaga miðaldra stórmeistara af endurkomu í skákheiminn". Í lok greinarinnar segir hann að aðalatriðið sé að vinna í að bæta ákvarðanir sínar og finna leiðir til að skapa erfiðleika fyrir andstæðinginn, að taka skynsamlegar ákvarðanir. Á þann hátt sé líklegast að maður hámarki árangur sinn á hverjum tíma. Annað sem þeir félagar ræddu var staðan á Íslandsmóti skákfélaga 2023-2024 sem nú er hálfnað, frábæran árangur Birkis Hallmundarsonar á HM í flokki 10 ára barna og yngri, nýlokinni sterkri mótaröð Bistro-banka í Mosfellsbæ þar sem peningaverðlaun voru ein milljón króna á glæsilegu lokamóti, Uppsala unglingamótið, Hannes Hlífar á HM 50 ára og eldri, Ofurmótið á eyjunni Mön, EM landsliða sem er fram undan og margt fleira áhugavert og skemmtilegt. 

NOW PLAYING

5 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari

0:00 59:09

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Ljósmyndaraspjallið Ólafur Jónsson Áhugaljósmyndarar spjalla um ljósmyndum við hvorn annan og við aðra ljósmyndara, atvinnu og áhugafólk. Vinnulívsgesturin Kringvarp Føroya Savnssending "Vinnulívsgesturin" er nýggj útvarpssendirøð, sum Leivur Hansen leggur til rættis, og sum er á skránni hvønn hósdag fyrrapart frá klokkan 10 til 11. Í sendingini, ið verður sent beinleiðis úr studio 5,  verður ljós varpað á stórar og smærri vinnulívsfyritøkur og týdning teirra fyri lokala eins væl og samfelag okkara sum heild. Hetta verður gjørt við stjóranum í viðkomandi fyritøku sum gesti, kryddað við tónleiki, ið gesturin velur. Slappaðu af Útvarp Saga Rúnar Þór tónlistarmaður ræðir við músíkanta og spilar lög. Mennska Bjarni Snæbjörnsson Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi.Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.Most episodes are in Icelandic and some in English.Tónlist/music: Axel Ingi ÁrnasonGrafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.www.bjarnisnae.comInstagram: bjarni.snaebjornsson---Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkjaMennska verður

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 59 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on November 1, 2023.

What is this episode about?

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni.  Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu...

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!