Við skákborðið podcast artwork

PODCAST · sports

Við skákborðið

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Jun 10, 2026 · Source feed

  1. 166

    Íslandsmót og víkingar - Björn Þorfinnsson og Gunnar Freyr

    Gestir í skákþættinum eru Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins en hann er sagnfræðingur að mennt. Við sláum svo á þráðinn til hans Björns Þorfinnssonar, alþjóðlegs skákmeistara og fv. ristjóra DV.

  2. 165

    Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen

    Gestur í skákþættinum er Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags Viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Lag: Gerum okkar besta með Valgeiri Guðjónssyni og íslenska landsliðinu í handbolta 

  3. 164

    Goðsögnin sjötug, Vignir á siglingu og leyndardómar skákminnisins: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi

    Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og varaborgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík var gestur þáttarins.Í upphafi þáttar var hringt í stórmeistarann Helga Ólafsson, eina af goðsögnum íslenskrar skákar, en hann varð sjötugur 15. ágúst sl. Honum var óskað til hamingju með tímamótin og stuttlega rætt við hann um Ólympíuskákmótið sem fram fer í Samarkand í Úsbekistan í haust.Mikið hefur verið um að vera hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu. Sérstök áhersla var lögð á Vigni Vatnar Stefánsson, sem hefur verið á mikilli siglingu og vann glæsilegan og öruggan sigur á alþjóðlegu móti í Split. Farið var yfir framfarir Vignis, helstu styrkleika hans við skákborðið og hversu langt hann gæti náð. Einnig var fjallað um frammistöðu annarra íslenskra skákmanna erlendis, árangur ungra og efnilegra keppenda í Prag og Brugge og helstu mótin sem eru fram undan hér heima.Þá var rætt um minni skákmanna og mikilvægi þess að geta kallað fram ótal byrjanir, stöður, leikjaraðir og eldri skákir. Einnig var velt upp hvernig sterkustu skákmenn heims reikna stöður marga leiki fram í tímann og hvort framúrskarandi skákminni sé meðfædd gáfa eða færni sem hægt sé að byggja upp með markvissri þjálfun og áralangri reynslu.Að lokum var litið út fyrir landsteinana og rætt um Magnús Carlsen. Honum gekk óvenju illa á Norway Chess fyrr á árinu, þar sem hann tapaði fjórum kappskákum og hafnaði í fjórða sæti. Á Esports World Cup minnti hann hins vegar rækilega á hvers vegna hann er enn talinn besti skákmaður heims. Þar tapaði Carlsen ekki skák og vann mótið með miklum yfirburðum.Einnig komu við sögu tæknivandræðin í bronsviðureign Hikaru Nakamura og Alireza Firouzja, stórmótin í Saint Louis og Praggnanandhaa, sem heldur áfram að skipa sér í fremstu röð ungra skákstjarna heims.

  4. 163

    Skákstyrkir, ferðakostnaður og forgangsröðun – Björgvin Víglundsson og Halldór Grétar Einarsson

    Kristján Örn Elíasson ræddi við Björgvin Víglundsson, fyrrverandi landsliðsmann í skák, og FIDE-meistarann Halldór Grétar Einarsson, formann meistaraflokksráðs Breiðabliks. Að þessu sinni var sjónum beint að opinberum styrkjum til skákhreyfingarinnar og hvernig þeim er varið. Hvar liggja mörkin milli nauðsynlegs stuðnings og óþarfa kostnaðar?  Sérstaklega var rætt um áætlaðan 15 milljóna króna kostnað við þátttöku Íslands á Ólympíumótinu í skák í haust. Þar verða tefldar 88 skákir, sem jafngildir rúmlega 170 þúsund krónum á hverja skák. Gestirnir veltu meðal annars fyrir sér hvort hægt væri að fækka keppendum, sleppa varamönnum og draga úr fjölda liðsstjóra og fylgdarfólks. Einnig var rætt um hvaða árangri skákhreyfingin ætti að stefna að og hvernig best væri að forgangsraða takmörkuðu fjármagni. Að lokum bar ýmislegt annað skáktengt á góma í líflegri og gagnrýninni umræðu.  

  5. 162

    Hvað hefur gerst í íslenskri skák? – Björgvin Víglundsson um skákina, stjórnmálin og framtíðina

    Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, fær til sín Björgvin Víglundsson byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák. Þeir ræða stöðu og framtíð íslenskrar skákar, skákpólitík og þær breytingar sem orðið hafa á styrkleika og virkni íslenskra skákmanna.Kristján fer yfir nýjar tölfræðilegar upplýsingar um þróun íslenskra skákstiga, stöðu Íslands í samanburði við hin Norðurlöndin og hversu stór hluti sterkustu skákmanna landsins er orðinn óvirkur eða teflir lítið. Þeir velta meðal annars fyrir sér hvers vegna Ísland hefur dregist aftur úr öðrum þjóðum, hvaða áhrif aldur og lítil virkni stórmeistara hafa og hvað þurfi að gera til að snúa þróuninni við.Umræðan færist einnig yfir í íslensk stjórnmál og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Björgvin og Kristján ræða ólík sjónarmið, fullveldi þjóðarinnar og þær pólitísku spurningar sem kosningin vekur.

  6. 161

    Skákin, þorskastríðin, Bobby Fischer og ESB: Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður og fv. stýrimaður

    Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið er Sigurður Þórðarson, skákáhugamaður, kaupmaður og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni. Sigurður tók þátt í tveimur síðustu þorskastríðunum og rifjar upp reynslu sína af þeim sögulegu átökum.Í um fjóra áratugi hefur Sigurður jafnframt flutt inn náttúruvöruna „Rautt eðalginseng“, sem unnin er úr ginsengi ræktuðu í 800–1.000 metra hæð í Suður-Kóreu. Hann segir einnig frá kynnum sínum af Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák, sem var mikill aðdáandi Rauðs eðalginsengs og notaði það reglulega.Stór hluti þáttarins er helgaður umræðu um Evrópusambandið og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður Íslands við ESB að nýju. Sigurður gerir grein fyrir afstöðu sinni, rökstyður andstöðu sína við áframhaldandi aðildarferli og segir frá því hvers vegna hann hyggst greiða atkvæði gegn því að viðræðurnar verði teknar upp á ný.Þeir Sigurður og Kristján ræða jafnframt heimsmeistaraeinvígið milli Gukesh D og Javokhirs Sindarovs, sem fram fer í Genf í Sviss dagana 25. nóvember til 15. desember 2026. Keppendurnir verða báðir tvítugir þegar einvígið hefst og verður þetta því yngsta heimsmeistaraeinvígi skáksögunnar. Einnig er fjallað um forsetakosningar Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, sem haldnar verða 26. september á allsherjarþingi sambandsins í Samarkand í Úsbekistan.

  7. 160

    Hver er besti skákmaður allra tíma? Sigurbjörn Björnsson ber saman Fischer, Kasparov og Carlsen

    Kristján Örn ræðir við Sigurbjörn Björnsson, FIDE-meistara og gæða- og öryggisstjóra hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar. Sigurbjörn er stjórnmálafræðingur að mennt og með meistaragráðu í viðskiptafræði.Þeir félagar leitast við að svara einni sígildustu spurningu skáksögunnar: Hver er besti skákmaður allra tíma? Að þeirra mati koma einkum þrír fyrrverandi heimsmeistarar til greina: Bobby Fischer, Garry Kasparov og Magnus Carlsen.Þeir ræða einnig aðra stórmeistara sem eiga tilkall til þess að vera meðal þeirra bestu, svo sem Anatolí Karpov, Emanuel Lasker, José Raúl Capablanca, Alexander Alekhine, Mikhail Botvinnik, Viswanathan Anand, Paul Morphy og Mikhail Tal. Þá kemur Judit Polgár, án efa sterkasta skákkona sögunnar, einnig við sögu.Niðurstöðu þeirra félaga má heyra í lok þáttarins.

  8. 159

    Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari sextugur

    Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks en hann er jafnframt formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Halldór Grétar segir frá skákmóti sem haldið var í Golfskálanum í Bolungarvík í byrjun júlí en mótið var haldið í tilefni sextugsafmælis Halldórs fyrr á árinu. Halldór Grétar hefur um áratugaskeið lagt íslenskri skákhreyfingu lið með margvíslegum hætti. Hann hefur meðal annars setið í stjórn Skáksambands Íslands, stofnað skákdeild Breiðabliks, sinnt þjálfun og skákmannahaldi og skrifað fjölda greina um skák í gegnum tíðina. Framlag hans hefur haft jákvæð áhrif á ótal skákmenn og íslenskt skáklíf. Þeir félagar, Kristján og Halldór tala um heima og geima í spjalli sínu, m.a. upplýsir Halldór að hann muni tefla með skákdeild Dímons í 1. deild í haust.

  9. 158

    Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák

    Kristján Örn Elíasson ræðir við Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák, um þróun byggðarmála í Reykjavík og áhrif skipulags, byggingarreglna og húsnæðisstefnu á kostnað og gæði íbúðabyggðar.Í upphafi þáttarins ræða þeir félagar um skák og snúa svo aftur að henni undir lok þáttarins. Þar sem Björgvin er byggingarverkfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri og fjölbreyttri starfsreynslu og er jafnframt tíður gestur skákþáttarins, var ákveðið að fara að þessu sinni verulega út fyrir hefðbundið efni þáttarins og ræða skipulagsmál í Reykjavík.Í viðtalinu segir Björgvin að núverandi þróun hafi leitt til dýrari framkvæmda, sem geri almenningi sífellt erfiðara fyrir að byggja eigið húsnæði. Hann segir jafnframt að ef hann kæmi að ákvörðunum um skipulagsmál myndi hann láta endurskoða Borgarlínuverkefnið áður en lengra yrði haldið. Að hans mati ætti að kanna hvort unnt væri að ná betri árangri með öðrum og ódýrari úrræðum sem auðvelduðu umferð um höfuðborgarsvæðið.Þrátt fyrir mikilvægi almenningssamgangna telur Björgvin jafnframt nauðsynlegt að horfa til þess að stór hluti fjölskyldna þurfi áfram að reiða sig á einkabílinn vegna vinnu, skóla, íþrótta og annarra daglegra ferða.Í lok þáttarins fara þeir yfir helstu skákfréttir og kosningarnar til stjórnar European Chess Union (Evrópska skáksambandsins), sem fara fram laugardaginn 18. júlí 2026 í Búkarest í Rúmeníu samhliða aðalfundi sambandsins (General Assembly). Þar er Gunnar Björnsson, framkvæmdastjóri Skáksambands Íslands, í framboði til embættis gjaldkera sambandsins.

  10. 157

    Mikið framundan í skákinni: Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri Tímaritsins Skákar

    Þeir Gauti Páll og Kristján Örn ræddu málefni líðandi stundar í skákinni bæði innanlands og utan. Það er margt framundan hér á landi, eins og skákmót í Bolungarvík, og á Akureyri, Raufarhöfn og Egilsstöðum, ásamt reglulegu mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst talið einnig að landsliðum Íslands, rætt var um Íslendinga að tafli erlendis og góðan árangur Gauta Páls undanfarið í hraðskák, en hann er orðinn á meðal stigahæstu hraðskákmanna landsins. 

  11. 156

    Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands

    Gestur Kristjáns Arnar er Helgi Ólafsson, stórmeistari, rithöfundur, fyrrverandi skólastjóri Skákskóla Íslands, nýsæmdur heiðursfélagi Skáksambands Íslands og einn kunnasti skáksagnfræðingur landsins. Helgi hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenskrar skákar og íslensks skáklífs, skrifað um skák í Morgunblaðið, gefið út fjölda bóka og þar á meðal merkar bækur um tvo af áhrifamestu einstaklingum skáksögunnar, þá Friðrik Ólafsson og Bobby Fischer. Aðalviðfangsefni þáttarins er einmitt þessir tveir skáksnillingar en Helgi þekkir sögu Friðriks Ólafssonar mjög vel og átti persónuleg kynni af Bobby Fischer. Þeir Helgi og Kristján koma víða við í spjalli sínu. Helgi segir margar skemmtilegar og fræðandi sögur af skákmönnum, rifjar upp atburði, skákmót og fleira, m.a. segir hann frá upphafi Reykjavíkurskákmótsins árið 1964 en ein af bókum hans er um Reykjavíkurskákmótið í 50 ár. Lokaspurning til Helga: Hvað hefur skákin kennt þér um lífið? Svar: "Ég held að skákin knýi á um að menn séu dálítið lausnarmiðaðir í því sem þeir gera. Við skákborðið ertu alltaf að klóra þig út úr allskonar vandræðum og ég held að ég sé bara nokkuð góður í því. Ég held að það sé aðallexían."Bækur Helga sem þeir félagar ræða um í þættinum: Fischer Comes Home (2012/2014)Þetta er líklega þekktasta bók Helga á alþjóðavísu. Hún fjallar um síðustu ár Bobby Fischers á Íslandi, vináttu þeirra Helga og hvernig Fischer upplifði útlegð, frægð og einangrun. Helgi var í einstakri aðstöðu til að skrifa bókina þar sem hann var einn af nánustu vinum Fischers á síðustu árum hans.Friðrik Ólafsson (2020)Stór og ítarleg ævisaga um skákstórmeistarann og fyrrverandi forseta FIDE, Friðrik Ólafsson. Bókin er 530 blaðsíður og er af mörgum talin eitt merkasta framlag til íslenskrar skáksögu.Reykjavíkurskákmót í 50 ár (2015)Saga Reykjavíkurskákmótsins og þróun alþjóðlegrar skákmenningar á Íslandi í hálfa öld.

  12. 155

    Kristján Örn, Jóhann Sigurðarsson & Gauti Sigurðsson

    Kristján Örn fær til sín bræðurna Jóhann Sigurðarsson leikara og skákmann og Gauta Sigurðsson píanóleikara og skákmann. 10. júní 26

  13. 154

    Kristján Örn & Björgvin Víglundsson

    Gestur skákþáttarins í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fv. landsliðsmaður í skák.

  14. 153

    Skákstarfið hjá KR, aðalfundur SÍ og fleira: Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR

    Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjararáðs viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur þáttarins. Hann segir frá skákstarfinu í KR, fer yfir nýlega skákatburði, mót og sumarstarf fram undan og margt fleira. Hann ræðir við Kristján Örn um að aðalfund Skáksambands Íslands sem haldinn verður á laugardaginn en þar verða lagðar fram tillögur um lagabreytingar og aðildargjöld. Þeir ræða um framboð Gunnars Björnssonar framkvæmdastjóra SÍ í stöðu gjaldkera Evrópska skáksambandsins (ECU) en kjörtímabilið er til fjögurra ára. Gunnar er á lista (ticket) hjá Lukasz Turlej, framkvæmdastjóra FIDE, sem býður sig fram gegn sitjandi forseta sambandsins, Zurab Azmaiparashvili. Kosningarnar fara fram laugardaginn 18. júlí í Búkarest í Rúmeníu eða samhliða aðalfundi sambandsins.

  15. 152

    Ísland tók bronsið á HM öldungasveita (65+): Þorsteinn Þorsteinsson FIDE-meistari

    FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og fv. markaðsstjóri RÚV er gestur Kristjáns Arnar. Þeir ræða Heimsmeistaramót öldungasveita sem fram fór í Durres í Albaníu í lok apríl en íslenska sveitin í flokki 65+ tryggði sér bronsið eftir spennandi lokaviðureignir í síðustu umferðunum. Aldeilis frábær árangur hjá íslensku sveitinni! Liðið var skipað þeim Helga Ólafssyni, Margeiri Péturssyni, Jóni L. Árnasyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Áskeli Erni Kárasyni. Þorsteinn talaði um að það mætti gera meira fyrir "öldungaskák" á Íslandi og sagði að íslenskir skáköldungar væru einu skákmennirnir hér á landi sem ættu raunhæfa möguleika á að berjast um verðlaunapeninga á EM og HM. Hann sagði að Skáksamband Íslands þyrfti að leggja meiri áherslu og rækt við þennan aldurshóp. Þeir Kristján og Þorsteinn ræða tillögur sínar til breytinga á skáklögum SÍ sem lagðar verða fram á næsta aðalfundi SÍ í lok mánaðarins, 100 ára afmælishátíð Taflfélags Vestmannaeyja í lok sumars og margt fleira.

  16. 151

    Sjóðheitur á fullri ferð: Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák og stigahæsti skákmaður landsins

    Kristján Örn tekur á móti Vigni Vatnari Stefánssyni, stórmeistara og stigahæsta skákmanni landsins í stúdíóið. Þeir ræða Íslandsmótið í skák og glæsilegan árangur alþjóðlega meistarans Hilmis Freys Heimissonar sem varð einn efstur á mótinu. Hilmir Freyr er því nýr Íslandsmeistari í skák! Þeir fjalla um íslenska skáklandsliðið og verkefni þess á árinu, frábæran árangur Vignis Vatnars á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi þar sem hann varð á meðal efstu manna og tryggði sér sæti á Heimsbikarmótinu sem fer fram á næsta ári. Vignir er sjóðheitur í skákinni um þessar mundir og hefur hækkað verulega á alþjóðlegum skákstigum undanfarnar vikur. Þeir Kristján og Vignir ræddu margt annað skemmtilegt í spjalli sínu eins og svo oft áður. Gaman að þessu!

  17. 150

    Kristján Örn & Helgi Áss Grétarsson

    Skákin Kristján Örn og Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák.

  18. 149

    Björn Ívar Karlsson

    Gestur skákþáttarins er Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands. Lag í lok þáttar: Don´t stop með Fleetwood Mac (3:13).

  19. 148

    Kristján Örn & Magnús Pálmi Örnólfsson & Halldór Grétar Einarsson

    Skákin. Kristján Örn og Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari 8. apríl 2026

  20. 147

    Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar

    Skákin. Kristján Örn stjórnar skákumræðunni í dag. 1. apríl 2026Skákþáttur:Gestur Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.

  21. 146

    Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið haldið í fertugasta skipti: Skákmeistararnir Björgvin Víglundsson og Gauti Páll Jónsson

    Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák. Þeir ræða  alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið sem hefst í Hörpunni kl. 15:00 í dag og ýmislegt annað fróðlegt. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni en 422 skákmenn munu sitja að tafli í heila viku en þetta er í fertugasta skipti sem mótið er haldið. Þeir félagar slá á þráðinn til Gauta Páls Jónssonar, ritstjóra tímaritsins Skákar, en hann verður á meðal keppenda í Hörpunni og mætir sterkum tyrkneskum stórmeistara í 1. umferð.

  22. 145

    Alþjóðlega Kópavogsmótið: Halldór Grétar Einarsson, FIDE-meistari og formaður meistaraflokksráðs skákdeildar Breiðabliks

    Gestur Kristjáns Arnar er Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari, stofnandi skákdeildar Breiðabliks og formaður meistaraflokksráðs deildarinnar. Þeir ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem nú stendur yfir, alþjóðlegt mótahald á Íslandi, Reykjavíkurskákmótið sem hefst á miðvikudaginn í næstu viku, gera upp Íslandsmót skákfélaga sem lauk um þar síðustu helgi og margt fleira.

  23. 144

    Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson, ritstjóri Hagstofu Íslands og Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV

    Kristján Örn Elíasson tekur á móti þeim Þorsteini Þorsteinssyni, FIDE-meistara og ritstjóra Hagstofu Íslands og Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara í skák og ritstjóra DV.is. Báðir kepptu þeir með úrvalsdeildarliði Taflfélags Vestmannaeyja sem varð Íslandsmeistari félagsliða í skák um síðustu helgi. Í þættinum ræða þeir "Öskubuskuævintýrið" - eða leiðina að titlinum, undirbúninginn, liðsmenn félagsins, styrktaraðila, einstakar viðureignir og síðast enn ekki síst stressið og dramatíkina sem hefur fylgt þessu öllu eftir. Björn segir: "En það er ólýsanlega skemmtilegt að Taflfélag Vestmannaeyja hafi efir 100 ára tilvist sína loks hampað Íslandsmeistaratitli og ég verð ævinlega hreykinn af því að hafa fengið að taka þátt í því verkefni" en Taflfélag Vestmannaeyja var stofnað í Vestmannaeyjum 26. ágúst 1926. Þeir félagar slá á þráðinn til Kjartans Briem, formanns skákdeildar Breiðabliks og ræða Alþjóðlega Kópavogsmótið sem hófst í gær en mótið er ætlað efnilegum ungum skákmönnum á aldrinum 16–30 ára og miðar að því að skapa sterkt umhverfi fyrir IM- og GM-áfanga.

  24. 143

    Skák og stjórnmál: Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og varaborgarfulltrúi í Reykjavík

    Kristján Örn Elísson ræðir við Helga Áss Grétarsson, stórmeistara og varaborgarfulltrúa í Reykjavík um skákina og stjórnmálin. Helgi hafði nýlega pólitísk vistaskipti þegar hann gekk úr Sjálfstæðisflokknum og yfir í Miðflokkinn. Helgi talar um borgarmálin, svo sem fyrirhugaða borgarlínu, og leggur áherslu á gott samstarf allra flokka um helstu hagsmunamál Reykjavíkurborgar. Þeir Kristján og Helgi spá í spilin varðandi síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem tefldur verður um næstu helgi og ræða margt annað áhugavert sem er að gerast í skákheiminum. 

  25. 142

    Kristján Örn ræðir við Björgvin Víglundsson um ofurstórmeistarann Jan Timman sem lést nýlega

    Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Þeir fjalla um hollenska stórmeistarann og Íslandsvininn Jan Timman sem lést í síðustu viku eftir erfið veikindi. Timman var einn besta skákmaður Vesturlanda á síðustu öld. Einnig ræða þeir gömlu skákmeistarana, ólíka skákstíla og margt fleira.

  26. 141

    Norðlenskt skáklíf: Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar

    Áskell Örn Kárason, sálfræðingur og formaður Skákfélags Akureyrar er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Áskell er alþjóðlegur meistari í skák og núverandi Íslandsmeistari öldunga. Þeir ræða skákstarfið fyrir norðan, mikinn vöxt í öldungaskákinni á landinu öllu undanfarin ár, forsetatíð Áskels hjá Skáksambandi Íslands um síðustu aldamót, Heimsmótið í Salnum í Kópavogi árið 2000 þar sem þáverandi heimsmeistari Garry  Kasparov og Viswanathan Anand sem síðar varð heimsmeistari voru á meðal keppenda og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

  27. 140

    Skákskóli Íslands: Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands

    Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn töluðu um Skákskóla Íslands, Pressukeppnina sem er ný leið skólans til æfinga fyrir ungmenni, fjárfestingu skólans í nýjum stórum 98 tommu skjá og öðrum búnað til fjarkennslu, vinsælan skákróbot sem teflir við nemendur, fartölvur og heyrnartól sem og fjölgun iðkenda skólans, bæði í stað- og fjarkennslu. Tölvulistinn hefur verið aðalstyrktaraðili Skákskóla Íslands að baki þessum fjárfestingum eins og svo oft áður. Tíu nemendur skólans fara á morgun til Fredericia í Danmörku til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga dagana 13.-15. febrúar. Einnig ræddu þeir Tata Steel skákmótið, Speed Chess Championship netskákmótið á Chess.com, mikinn áhuga á Reykjavíkurskákmótinu, nýju heimildarmyndina "Queen of Chess" á Netflix sem fjallar um Judit Polgar sterkustu skákkonu allra tíma og margt fleira.

  28. 139

    Skák er 90% einbeiting: Björgvin Víglundsson verkfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari

    Gestir skákþáttarins eru Björgvin Víglundsson, verkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Eins og svo oft áður er farið vítt og breitt í umfjöllun um skák en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

  29. 138

    Þorparinn, togarasjómaðurinn og skákmeistarinn: Ólafur Kristjánsson frá Akureyri

    Kristján Örn ræðir við Ólaf Kristjánsson, 82 ára fyrrverandi togarasjómann frá Akureyri en hann er öflugur skákmaður. Ólafur kallar sig "Þorparann" því hann fæddist í Glerárþorpi en Akureyri er skipt upp í tvo hluta, þ.e. norðan og sunnan Glerár. Í þættinum segir Ólafur frá samferðamönnum sínum, sterkum skákmönnum á Norðurlandi. Hann talar um upphaf taflmennsku sinnar, skákmót á Akureyri, Íslandsmót skákfélaga, veru sína á sjó og margt fleira.

  30. 137

    Skákárið 2025: Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari

    Kristján Örn Elíasson tekur á móti Sigurbirni Björnssyni FIDE meistara. Þeir stikla á stóru í umfjöllun sinni um fréttnæma atburði og uppákomur sem þeim þótti athyglisverðar á skákárinu 2025. Þeir ræða árangur Vignis Vatnars Stefánssonar, Magnúsar Carlsen og fleiri sterkra og efnilegra skákmanna á heimsmeistaramótunum í at- og hraðskák en teflt var í höfuðborginni Doha í Katar á milli jóla og nýárs. Einnig ræða þeir stöðu íslenskrar skákar og margt fleira. 

  31. 136

    Heimsmeistaramótin í at- og hraðskák: Vignir Vatnar Stefánsson og Benedikt Briem

    Vinirnir og samstarfsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og þrefaldur Íslandsmeistari í skák árið 2025 og Benedikt Briem næststigahæsta ungmenni landsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir tala um kennsluvefinn www.vignirvatnar.is, skákmót í Portúgal, fjölbreytt skákmótahald og margt fleira. Vignir ræðir heimsmeistaramótin í atskák og hraðskák, sem fram fara í Doha í Katar á milli jóla og nýárs, en Vignir verður á meðal keppenda á báðum mótunum.

  32. 135

    Jólasveinarnir: Róbert Lagerman FIDE-meistari og Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins

    Kristján Örn fær til sín skákmennina Róbert Lagerman, FIDE- meistara og alþjóðlegan skákdómara og Gunnar Frey Rúnarsson sagnfræðing og formann Víkingaklúbbsins.Í þættinum ræða þeir jólaskákmót Ása, skákkúbbs eldri borgara, þar sem Róbert sigrði með yfirburðum. Þeir gera kröfu um nýja staðsetningu Íslandsmóts skákfélaga, bæta þurfi fyrirkomulag og skipulagningu mótsins, salernismál séu í miklum ólestri auk þess sem mótið sé illa kynnt í fjölmiðlum og þjónusta við keppendur um úrslit og stöðu liða hverju sinni sé ekki til staðar. Gunnar Freyr talar um Víkingaskák en ný taflsett eru komin í sölu, m.a. hjá Spilavinum. Þeir tala um mismunun og tvískinning í afstöðu stjórnar Skáksambands Íslands, m.a. hvað varðar áherslur á eldri skákmenn og auglýsingu sambandsins um léttar veitingar á Íslandsmóti kvenna í hraðskák. Þeir velta fyrir sér hvað sé átt við með hugtakinu "léttar veitingar".Þeir minnast Ólafs Hraunbergs Ólafssonar, fyrrverandi formanns Taflfélags Reykjavíkur, sem lést nýlega en hann vann mikið og gott starf fyrir íslensku skákhreyfinguna. Þeir tala um tillögur aðalfundar FIDE um að Rússar og Hvítrússar fái aftur að tefla á ólympíuskákmótum og að lið frá löndunum séu aftur tekin inn í opinbera mótaröð FIDE.Róbert segir sögu af Boris Spasský og áhuga hans á tímaritinu Playboy á meðan Einvígi aldarinnar árið 1972 stóð yfir. Einnig segir hann sögu þegar sérsveit lögreglunnar í Danmörku stöðvaði flugtak flugvélar sem hann var farþegi í og yfirheyrði hann í tvær klukkustundir sem grunaðan hryðjuverkamann en farþegar vélarinnar þurfu að bíða í vélinni á meðan.

  33. 134

    Á Hælinu með Don Everything: Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari

    Róbert Lagerman, alþjóðlegur skákdómari og FIDE-meistari er gestur Kristjáns Arnar. Róbert gengur undir ýmsum nöfnum í skákheiminum eins og Mr. Big Time og Don Everything en hann hefur setið fjölda námskeiða og aflað sér ýmissa réttinda og nafnbóta hjá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Því fer það vel að hann kalli sig stundum "Don Everything". Þeir Kristján og Róbert hafa verið góðir félagar í gegnum árin og stofnuðu, ásamt Hrafni Jökulssyni og rúmlega þrjátíu öðrum áhugamönnum um skák, Skákfélag Grandrokks þann 12. september árið 1998. Í þættinum ræa þeir Heilsuhælið í Hveragerði, mataræði og góða aðstöðu þar, þeir spila klippu með Hrafni Jökulssyni þar sem hann talar um Grænland, þeir ræða hugmyndir um meiri samvinnu skákfélaga á Íslandi, slæma nýtingu erlendra stórmeistara sem koma til landsins í tengslum við Íslandsmót skákfélaga, þjálfunarmál, mótahald, einelti, vináttu, framtíðarplön Skákfélags Íslands og margt fleira. 

  34. 133

    Gervigreind og sýndareinvígi: Björgvin Víglundsson skákmeistari og verkfræðingur

    Gestur skákþáttarins að þessu sinni er Björgvin Víglundsson, byggingaverkfræðingur og sterkur skákmeistari. Þeir Kristján Örn ræða um skák og gervigreind og spái í spilin hvernig skákin muni þróast með tilkomu gervigreindarinnar. Að mati Björgvins hefur varðveisla skákefnis í stafrænu formi náð því umfangi að gervigreind geti ekki einungis hermt eftir leikjum einstakra meistara heldur líka stíl þeirra. Hann telur raunhæft að endurskapa skákstíl bestu skákmanna allra tíma eins og Wilhelm Steinitz, Aron Nimzowitsch eða Bobby Fischer. Björgvin telur vel hugsanlegt að haldin verði sýndareinvígi þar sem tölvur tefla í nafni sögulegra meistara. Þar gætu til dæmis Fischer, Capablanca og Carlsen tekist á í löngu kappskák­einvígi líkt og Fischer og Spasskí í Reykjavík 1972 en án áhrifa aldurs, líkamlegrar þreytu, tímamismunar eða félagslegra aðstæðna. Slík mót gætu jafnvel gefið vísbendingu um hver hefði verið sterkastur í sögu skáklistarinnar ef allir væru settir á sama lærdómsstig og fengju að þróa leik sinn sem forrit en ekki sem menn.

  35. 132

    Íslandsmót skákfélaga og afmælis-skákveisla í Garðabæ: Björn Þorfinnsson, alþjóðlegur meistari og ritstjóri DV.is

    Kristján Örn tekur á móti Birni Þorfinnssyni, alþjóðlegum meistara og ritstjóri DV.is í stúdíóið. Mikill kraftur er búinn að vera í íslensku mótahaldi að undanförnu og fara þeir Björn og Kristján yfir það helsta í þættinum. Þeir tala um menn og málefni og segja sína skoðun á hvoru tveggja. Taflfélag Garðabæjar hélt upp á 45 ára afmæli sitt á mánudaginn var í Miðgarði, nýja íþróttahúsi bæjarins, en þar hefur félagið fengið góða aðstöðu fyrir starfsemi sína. Afmælisveislan hófst með því að boðið var upp á veitingar og svo lék bæjarstjóri Garðabæjar, Almar Guðmundsson, fyrst leikinn fyrir Erling Jensson í skák hans gegn Vigni Vatnari Stefánssyni. Björn var óstöðvandi í þessu fjölmenna og sterka skákmóti og fékk 9 vinninga í 9 skákum. Hann er því nýr hraðskákmeistari Garðabæjar en í vikunni áður var Björn einnig krýndur skákmeistari Garðabæjar. Þeir félagar, Kristján og Björn, fara um víðan völl í þættinum og ræða vel og lengi um Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti mótsins var tefldur í Rimaskóla um síðustu helgi.  

  36. 131

    Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson ritstjóri

    Kristján Örn Elíasson ræðir við Gauta Páll Jónsson sagnfræðing og ritstjóra tímaritsins Skákar. Umfjöllunarefnið er nýjasta tímarit Skákar sem kemur út á morgun eða á sama tíma og úrvalsdeild fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir ræða Heimsbikarmótið á Indlandi en margir af sterkustu skákmönnum heims hafa þegar helst úr lestinni. Einng tala þeir um Íslandsmót Símans í netskák, EM ungmenna í Svartfjallalandi sem er nýlokið, Le Kock mótaröðina hjá Vigni Vatnari og velheppnaða skákferð hans og Benedikts Briem til Portúgals og fleira.

  37. 130

    Draumar, blóðþrýstingur, ástin og gervigreind: Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur

    Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur (MBA), er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Magnús er 1. borðsmaður skákdeildar Dímonar frá Hvolsvelli en ný skáksveit félagsins hefur unnið sig úr 4. deild og upp í 2. deild á aðeins tveimur árum eða frá því að skákdeildin var stofnuð og hóf að tefla á Íslandsmóti skákfélaga. Magnús segir frá ferðalagi skáksveitarinnar á Evrópumót taflfélaga á Ródos í Grikklandi sem lauk fyrir skemmstu og "varpar upplýsingasprengju" inn í 2. deild fyrrihluta Íslandsmót skákfélaga um liðskipan skákdeildar Dímonar. Magnús Pálmi ræðir um nýtt skáksetur sem hann er að setja upp í Bolungarvík; hann ræðir um drauma, ástina, heilsuna, blóðþrýsting, kolesteról og auðvitað skák. Þeir félagar tala um Heimsbikarmót FIDE en teflt er í Resort Rio í ríkinu GOA á Indlandi dagana 1.-26. nóvember. Þrír eftstu á  Heimsbikarmótinu tryggja sér sæti í Áskorendakeppni FIDE á næsta ári þar sem átta skákmenn munu tefla um réttinn til að há 14 skáka einvígi við  ríkjandi heimsmeista, Gukesh D frá Indlandi, um heimsmeistaratitilinn í skák. 

  38. 129

    Skáksviðið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák

    Gestur þáttarins er Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari í skák og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Helgi varð heimsmeistari í skák 20 ára og yngri árið 1994. Hann hefur verið virkur á skáksviðinu og sinnt skrifum og lögfræðilegri ráðgjöf. Helgi hefur einnig kennt við lagadeild Háskóla Íslands og skrifað mikið um stjórn fiskveiða og önnur málefni. Þótt Helgi sé fjölhæfur þá ræða þeir Kristján Örn þó eingöngu um skák í þættinum. Þeir félagar fóru yfir árangur Íslendinga á nýloknu Evrópumóti taflfélaga og töluðu um Evrópumót ungmenna sem hófst í dag en 15 keppendur frá Íslandi taka þátt í mótinu. Helgi fer yfir Meistaramót Bandaríkjanna þar sem Caruana stóð uppi sem sigurvegari, skemmtilegt fjögurra manna einvígi þriggja stigahæstu skákmanna heims, Carlsen, Nakamura og Caruana auk ríkjandi heimsmeistara í skák, Gukesh, í St. Louis. Þeir ræða fráfall rúmenska stórmeistarans Mihai Suba sem lést í vikunni og getgátur um fráfall bandaríska stórmeistarans og streymarans Daniel Naroditsky sem fannst látinn á heimili sínu um þarsíðustu helgi en fyrrum heimsmeistari, Vladimir Kramnik, hefur um langt skeið ásakað Naroditsky og aðra sterka skákmenn um svindl á netinu.

  39. 128

    Skákskóli Íslands og EM taflfélaga: FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson og Halldór Grétar Einarsson

    Gestir í skákþættinum eru FIDE-meistararnir Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og Halldór Grétar Einarsson, formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða Evrópumót taflfélaga sem nú stendur yfir í Ródos í Grikklandi en tugir Íslendinga taka þátt í mótinu. Björn Ívar segir frá skáklífinu í Skákskóla Íslands, Halldór Grétar ræðir tölfræði og ber saman meðalaldur og meðalskákstig keppenda á EM taflfélaga, á Reykjavíkurskákmótinu síðasta og í úrvalsdeild síðasta Íslandsmóts skákfélaga. Í upphafi þáttar er viðtal við Gauta Pál Jónsson, ritstjóra tímaritsins Skákar, sem Kristján Örn tók við hann í morgun en Gauti Páll er einn af 38 Íslendingum sem nú sitja að tafli á EM taflfélaga í Grikklandi.  Farið var yfir fréttir um skyndilegt andlát bandaríska stórmeistarans Daniel Naroditsky sem lést síðastliðinn sunnudag en hann var aðeins 29 ára gamall. Hann var á meðal sterkustu skákmanna heims í hraðskák og atskák, vinsæll skákskýrandi og streymari, dáður og vinamargur í skáksamfélaginu út um allan heim.

  40. 127

    Víkingaskák og EM landsliða: Gunnar Freyr Rúnarsson og Halldór Grétar Einarsson

    Gestir skákþáttarins eru Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Gunnar ræðir sögu Víkingaskákarinnar á Íslandi en það var hugvitsmaðurinn Magnús Ólafsson sem fann upp Víkingaskákina árið 1967. Hugmyndina fékk hann þegar hann sá sexhyrnda ró í skrúfuhrúgu en Magnús hafði áður fengið þá hugmynd að hanna séríslenskt manntafl og var niðurstaða hans stórmerkileg. Halldór Grétar kemur símleiðis inn í síðari hluta þáttarins og ræðir árangur íslensku liðanna á Evrópumót landsliða sem lauk í Batumi í Georgíu í gær. 

  41. 126
  42. 125

    Bankar, skák og Litla kaffistofan: Stefán Þormar Guðmundsson fv. banka- og veitingamaður

    Stefán Þormar Guðmundsson, skákmaður og fyrrverandi banka- og veitingamaður er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar. Stefán talar um skákmenninguna í íslensku bönkunum hér á árum áður og segir að mikið hafi verið teflt og mörg sterk skákmót hafi verið haldin í bönkunum og á vegum þeirra. Hann segir að mikil samkeppni hafi verið á milli bankanna og þeir keppst við að ná til sín sterkustu skákmönnunum. Stefán telur upp fjölmörg nöfn öflugra skákmanna sem skipuðu sveitir Búnaðarbankans, Landsbankans og Útvegsbankans. Hann talar um Jóhann Þóri Jónsson og Helgarskákmótin og þá sérstaklega mótin í Vík í Mýrdal og í Grímsey. Stefán Þormar rak Litlu kaffistofuna við Suðurlandsveg í aldarfjórðung og kom sér þar upp miklu safni með úrklippum af íþróttasíðum dagblaðanna auk trefla, fána og annarra muna sem tengjast knattspyrnu, handbolta og körfubolta. Stefán segir margar sögur eins og af Draugahlíðsbrekkunni sem er brekkan fyrir ofan Litlu kaffistofuna, forræðishyggju veðurfræðinga sem spá leiðindaveðri og skipti sér af því hvort fólk eigi að vera að ferðinni eða ekki og þegar hettuklætt par vopnað hnífi og hafnarboltakylfu reyndi að ræna Litlu kaffistofuna. 

  43. 124

    Skákin hreinsar hugann: Jón Steinn Elíasson, skákmaður og fv. eigandi Toppfisks

    Kristján Örn ræðir við Jón Stein Elíasson skákmann og fyrrverandi eiganda Toppfisks. Þeir ræða skákina, fiskvinnsluna, dvölina á Spáni, gjaldþrot Toppfisks eftir 40 ára starfsemi, gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins Play og áhrif þess á Íslendinga með dvalarstað eða búsetu á Spáni og margt fleira. Jón Steinn segir að í erfiðum atvinnurekstri sínum í gegnum tíðina hafi skákin gert honum kleift að gleyma amstri dagsins, hreinsa hugann og safna kröftum.

  44. 123

    Ungir og efnilegir: Haukur Víðis Leósson og Pétur Úlfar Ernisson

    Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag eru þeir Haukur Víðis Leósson, 11 ára, og Pétur Úlfar Ernisson, 9 ára, tveir efnilegir og áhugasamir ungir drengir úr Taflfélagi Reykjavíkur. Þeir hafa tekið skákina föstum tökum undanfarin 3 ár og hafa m.a. báðir orðið Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Kristján heimsækir þá á æfingu og ræðir við þá um það hvernig þeir fengu áhuga á skák og hvaða vinnu þeir leggja í til að bæta sig, eftirminnilegar skákir, skákmót, þjálfara, vini við skákborðið og nýafstaðið Haustmót TR þar sem þeir Haukur og Pétur háðu mikla orrustu við Kristján Örn um sigur í C-flokki á mótinu. Með þeim í þættinum er Torfi Leósson skákkennari, einn þeirra sem komið hafa að þjálfun ungu drengjanna.

  45. 122

    Skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, formaður TR og ritstjóri Skák.is

    Þeir Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og ritstjóri Skák.is og Kristján Örn halda áfram að segja fréttir af erlendum og innlendum skákvettvangi en Ingvar Þór var einnig gestur þáttarins í síðustu viku. Ingvar og Kristján fóru yfir mótasenuna bæði hér heima og erlendis og var af nógu að taka! Í upphafi síðari hluta þáttarins hringja þeir í Björn Ívar Karlsson, skólastjóra Skákskóla Íslands en Skákskóli Íslands stendur fyrir skákþjálfaranámskeiði dagana 29. og 30. september. Námskeiðið er opið öllum áhugasömum og er sérstaklega sniðið fyrir þá sem sinna skákþjálfun innan skóla eða skákfélaga eða hafa áhuga á því að reyna fyrir sér í skákþjálfun. Kennarar á námskeiðinu verða Björn Ívar Karlsson FIDE trainer og skólastjóri Skákskóla Íslands og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir forseti SÍ og barnasálfræðingur. Námskeiðið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Einnig verður námskeiðið sent út í gegnum fjarfundabúnað fyrir þá sem komast ekki á staðinn. Slóð á frétt og nánari upplýsingar um skákþjálfaranámskeiðið. 

  46. 121

    Íslenskar og erlendar skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, annar ritstjóra Skák.is og formaður TR

    Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og annar ritstjóra skákfréttavefjarins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar. Þeir segja bæði íslenskar og erlendar skákfréttir og ræða það helsta sem er að gerast í skákinni um þessar mundir.

  47. 120

    Framtíðarsýn og stefna: Vignir Vatnar Stefánsson, Íslandsmeistari í skák

    Kristján Örn fær til sín Vigni Vatnar Stefánsson Íslandsmeistara í skák og stigahæsta skákmann landsins. Vignir segir frá mikilli ævintýraferð sinni til nokkurra landa í Asíu en hann og félagi hans í landsliðinu, Aleksandr Domalchuk-Jonasson, tefldu m.a. á athyglisverðu skákmóti í Kína þar sem þeir mættu grjóthörðum ungum og efnilegum Kínverjunum við í skákborðið. Vignir Vatnar tapaði ekki skák, gerði þrjú jafntefli og lagði sex andstæðinga sína. Vignir sigraði á mótinu og varð einn í efsta sæti með sjö og hálfan vinning í níu skákum. Ekki amalegt að vinna skákmóti í Kína og vel gert hjá Vigni. Vignir ræðir framtíð sína í skákinni en hann er að leita sér að góðum skákþjálfara sem getur aðstoðað hann að ná enn lengra. Hann telur sig geta náð styrkleika vel yfir 2600 elo-skákstig með rétta fólkið í kringum sig og góðan og stöðugan stuðning frá styrktaraðilum. Vignir er staðráðinn í að taka þátt í næstu heimsmeistaramótum í hraðskák og atskák sem haldin verða í lok árs í Doha, Qatar eða dagana 25.-31. desember. Heildarverðlaunafé á mótinu nemur um 150 milljónum íslenskra króna og munu flestir af sterkustu skákmönnum heims verða á meðal þátttakenda.

  48. 119

    Vetrarstarf taflfélaganna í landinu að hefjast: Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR

    Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir fara yfir mótaáætlun Skáksambands Íslands fyrir starfsárið 2025-26 og segja nýjustu fréttir af skákfréttavefnum skak.is en vetrarstarf talfélaganna í landinu er að hefjast núna í byrjun september. Má þar nefna undanrásir Íslandsmótsins í netskák í kvöld, Haustmót Taflfélags Reykjavíkur sem hefst 3. september og  Skákþing Norðlendinga sem haldið verður um næstu helgi, 5.-7. september. Oddgeir ræðir barnastarfið hjá KR, segir frá þjálfurum félagsins og svo taka þeir félagar umræðu um Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti Íslandsmótsins hefur verið staðfestur dagana 13.-16. nóvember nk.

  49. 118

    Skákstarfið hjá TR: Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson skákþjálfarar

    Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson frá Taflfélagi Reykjavíkur eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara yfir mótaáætlun TR og ræða starfið hjá félaginu í vetur en það byrjar með Borgarskákmótinu í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, 20. ágúst. Árbæjarskákmótið er á dagskrá 31. ágúst og Haustmót TR hefst miðvikudaginn 3. september en stefnt er að teflt verði í tveimur lokuðum flokkum og einum opnum flokki. Einnig ræddu þeir önnur mót, eins og EM landsliða sem fram fer fram dagana 4.-15. október, EM taflfélaga sem haldið verður 18.-26. október og EM ungmenna haldið 28. október til 10. nóvember. Af þessum sökum hefst Íslandsmót skákfélaga óvenju seint í ár en fyrri hlutinn verður tefldur dagana 13.-16. nóvember. Daði, sem einnig er æskulýðsfulltrúi í stjórn Skáksambands Íslands, sagði að vinna væri á frumstigi hjá sambandinu að halda minningarmót um Friðrik Ólafsson á næsta ári. Hann talar um nýtt fangelsisverkefni hjá FIDE þar sem hann og Björn Ívar Karlsson, skólastóri Skákskóla Íslands, munu taka að sér að aðstoða hugsanlega þátttakendur hér á landi. Daði sagði stuttlega frá skákferli sínum, þjálfun barna og unglinga og mörgu öðru.

  50. 117

    ChatGPT-5 metur íslenska skákmenn: Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari

    Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Þeir félagar ræða sterkustu skákmeistara Íslands frá miðri síðustu öld og til dagsins í dag. Gervigreindarforritið ChatGPT-5 kemur mikið við sögu en til gamans, og með fyrirvara um staðreyndarvillur, ólíkar forsendur og aðgengi að upplýsingum, var það fengið til að meta 30 sterkustu skákmenn Íslands frá upphafi, sterkustu virku skákmenn landsins fyrir 1975, skákstíla og persónueiginleika þeirra bestu og margt fleira sem ekki náðist að fara yfir í þessum þætti (framhald síðar). Loks var gervigreindin beðin um að velja sér lag til að spila í lok þáttarins og komu nokkur lög til greina út frá þema þáttarins. Gervigreindin valdi lög eins og "One Night in Bangkok" með Murray Head og "The Queen´s Gambit" úr samnefndri kvikmynd með tónlist eftir Carlos Rafael Rivera. Síðarnefnda lagið er stefið sem spilað er í upphafi skákþáttanna og hið fyrra hefur verið spilað líklega tvisar eða þrisvar sinnum í þættinum áður. Lagið sem gervigreindin valdi að lokum var "Smooth Operator" með hinni seiðmögnuðu SADE en forritið telur lagið tilvalið til hlustunar fyrir þá skákmenn sem vilja ná yfirvegun og rökréttri hugsun!Top Icelandic Players (Pre-1975)Eggert Gilfer (1892–1960)Seven-time Icelandic Champion (1918–1942) and stalwart first-board Olympiad participant.Ásmundur Ásgeirsson (1906–1986)Six-time Icelandic Champion between 1931 and 1946; Olympiad competitor.Jón Guðmundsson (1904–1980)Three-time national champion (1932, 1936–37), earned an individual gold medal in the 1939 Olympiad.Baldur Möller (1914–1999)Multiple Icelandic Champion (1938–1950) and two-time Nordic Champion (1948, 1950); played in Olympiads.Ásmundur Ásgeirsson (listed above).Guðmundur Guðmundsson (1918–1974)Won the Icelandic Championship in 1954; represented Iceland in the 1954 Olympiad.Freysteinn Þorbergsson (1931–1974)1960 Icelandic Champion, 1965 Nordic Champion, and key Olympiad team member until the early 1970s.Friðrik Ólafsson (b. 1935)Became Iceland’s first Grandmaster in 1958, later served as FIDE President (1978–1982). While more active after 1975, his rise began in the late 1950s and 1960s.Bobby Fischer (1943–2008)Though American by birth, Fischer’s 1972 World Championship win was held in Reykjavík, and he later settled in Iceland. His peak and influence overlap with the pre-1975 era of Icelandic chess history.Expanding the List (9 More Notable Players)While records are sparse, the following figures also contributed to Icelandic chess up to 1975:Daniel Willard Fiske (1831–1904)American ‘father of Icelandic chess’, founded Reykjavík Chess Club and promoted chess in early 1900s Iceland.Top 30 Icelandic Chess Players – All Time (Best to Least)With 5–15 sentence bios each for historical context.1. Friðrik Ólafsson (1935–2025)Iceland’s first Grandmaster (1958) and one of the top 15 players in the world at his peak. Won the Icelandic Championship six times, the Nordic Championship twice, and tied or won major international tournaments like Hastings 1955–56 and Wijk aan Zee 1976. Qualified for the 1959 Candidates Tournament, finishing 7th against the world’s best. Served as FIDE President (1978–82), the only president to beat a reigning World Champion (Karpov) in official play. His legacy is both competitive and diplomatic — he transformed Iceland’s chess profile from obscure to world-known.2. Jóhann Hjartarson (b. 1963)Six-time Icelandic Champion and two-time Nordic Champion. Reached the Candidates quarterfinal in 1988, beating Viktor Korchnoi before losing to Karpov. Peak FIDE rank No. 11 in January 1989 — the highest ever for an Icelander in the Elo era. Consistent Olympiad leader for Iceland from 1984 to the mid-2000s. One of only two Icelanders to have played in a Candidates knockout phase.3. Jón Loftur Árnason (b. 1960)World U-17 Champion (1977), GM since 1986, Icelandic Champion three times. Defeated Short, Korchnoi, Shirov, Adams, Vaganian, and Larsen, and drew with Tal, Petrosian, Smyslov, and Karpov. Instrumental in Iceland’s 5th-place Olympiad finish in 1986 and 6th in 1992. Known for deep positional understanding and resilience against elite opposition.4. Guðmundur Sigurjónsson (b. 1947)Second Icelandic GM (1975), three-time national champion, regular Olympiad top board. Tournament wins include Reykjavík 1970 and Brighton 1982, plus shared titles at Sant Feliu 1974 and Hastings 1974–75. Helped cement Iceland’s place as a serious chess nation in the 1970s.5. Helgi Ólafsson (b. 1956)GM (1985), six-time Icelandic Champion. Played more Olympiads than any other Icelander, often on Board 1. Ranked among the world’s top 50 in the late 1980s, with notable tournament wins in the Nordic circuit and strong results in Dortmund and Copenhagen. Prolific author and long-time director of the Icelandic Chess School, mentoring generations of players.6. Héðinn Steingrímsson (b. 1975)World U-12 Champion (1987), youngest Icelandic Champion at age 15 (1990), three-time national champion. Won Reykjavik Open 2009. Known for sharp, tactical play and endurance in classical formats. Maintained top-level presence for over 30 years.7. Margeir Pétursson (b. 1960)GM (1986), Icelandic Champion twice, Nordic Champion (1987). Winner of Hastings Premier 1986. Played in Interzonals 1985 and 1990, and in the 1998 FIDE World Championship. Balanced competitive chess with a successful career in finance.8. Hannes Hlífar Stefánsson (b. 1972)Record 11-time Icelandic Champion. World U-16 Champion (1987). Less visible internationally but a domestic powerhouse for three decades.9. Helgi Áss Grétarsson (b. 1977)World U-20 Champion (1994), Icelandic Champion twice (2018, 2024). GM at 17, among the strongest Icelanders of the 1990s and 2000s. Also active in politics.10. Hjörvar Steinn Grétarsson (b. 1993)GM (2013), peak rating 2603, multiple Olympiad appearances. Currently Iceland’s top-rated active player. Strong in open tournaments and blitz formats.11. Henrik Danielsen (b. 1966)GM (1996), Danish-born but switched to Iceland in 2005. Icelandic Champion 2009. Known for creative opening play (“Polar Bear” system).12. Baldur Möller (1914–1999)Pre-GM era champion — won Icelandic title seven times between 1938 and 1950, Nordic Champion twice. Laid early foundations for Icelandic chess in the mid-20th century.13. Guðmundur Kjartansson (b. 1988)GM (2021), three-time Icelandic Champion (2014, 2017, 2020). Consistent top-five national player over the last decade.14. Jón Viktor Gunnarsson (b. 1982)GM, frequent Olympiad representative. Known for solid positional play.15. Þröstur Thorhallsson (b. 1969)GM (1996), long career at high national level. Frequent Olympiad competitor.16. Bragi Thorfinnsson (b. 1981)GM (2018), strong national league competitor. Not...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

HOSTED BY

Útvarp Saga

Produced by Einar Karl Gunnarsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Við skákborðið have?

Við skákborðið currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Við skákborðið about?

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.

How often does Við skákborðið release new episodes?

Við skákborðið has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Við skákborðið?

You can listen to Við skákborðið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Við skákborðið?

Við skákborðið is created and hosted by Útvarp Saga.
URL copied to clipboard!