EPISODE · Mar 14, 2025 · 59 MIN
#50 - Hlegið í ráðuneytinu þegar Bjarni mætti með golfsettið
from Seinni níu · host Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna er enginn annar en Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann steig nýverið úr stóli formanns Sjálfstæðisflokksins eftir að hafa leitt flokkinn frá árinu 2009. Bjarni byrjaði í golfi þegar hann var í háskólanámi í Miami og ætlar sér nú að taka golfið föstum tökum eftir að hafa spilað lítið síðustu ár – stjórnmálin voru einfaldlega að flækjast fyrir.Bjarni er með um það bil 23 í forgjöf, en markmið hans fyrir árið er að lækka hana niður fyrir 20. Stóra áskorun ársins er þó að sannfæra maka sinn um að hefja golfiðkun.Í þættinum er farið víða. Við ræðum afnám vörugjalda á golfkylfur og fatnað, sem hafði mjög jákvæð áhrif á verð golfvara í samanburði við nágrannalöndin. Bjarni segir okkur stuttlega frá samtali sínu við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem þeir áttu seint á síðasta ári. Jafnframt deilir hann skemmtilegri sögu af því þegar hann mætti með golfsettið í fjármálaráðuneytið – bjartsýnn um að hann gæti laumað sér í golf.Að lokum velur Bjarni draumahollið sitt, en Logi kynnir einnig lista yfir fimm bestu upphafsholurnar fyrir Seinni níu, sem er afar áhugaverð umræða.Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️♀️- Golfhöllin
Embed this episode
NOW PLAYING
#50 - Hlegið í ráðuneytinu þegar Bjarni mætti með golfsettið
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.