EPISODE · Jun 27, 2024 · 1H 4M
52. Kvenlíkaminn er algjör töffari. (Ofspenna í grindarbotni, kynlíf, breytingarskeið kvenna, þvagleki, legsig og endómetríósa.) Þorgerður Sigurðardóttir
from Með lífið í lúkunum · host HeilsuErla
Þátturinn er í boði Nettó og UnbrokenÍ þættinum ræðir Erla við Þorgerði Sigurðardóttur, kvenheilsusjúkraþjálfara um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna og hafa áhrif á lífsgæði þeirra, t.d. þvagleka, legsig, endaþarmssig, blöðrusig, ofspennu í grindarbotni og endómetríósu. Þær ræða einnig um áhrif meðgöngu og fæðingar á kvenlíkamann, mæðravernd eftir fæðingu, íþróttakonur, mikilvægi grindarbotnsæfinga og hvernig er best að framkvæma þær, kynlíf, breytingarskeið kvenna, mikilvægi slökunar og öndunar og margt fleira. Þorgerður er einn fremsti sérfræðingur landsins á sviði kvensjúkdóma- og fæðingarsjúkraþjálfunar og hefur starfað í kvenheilsu í 30 ár. Hún starfar á flestum sviðum kvenheilsusjúkraþjálfunar og býður einnig upp á mæðravernd eftir fæðingu en það er nátengt mastersrannsókn og doktorsrannsóknum hennar.Þorgerður segir að það sé mikivægt að líta á manneskjuna sem heild því sjaldan standa mál ein og sér, verkir geta t.d. verið tengdir áfallasögu eða andlegum veikindum. Þorgerður segir að margar konur haldi að þær séu einar í heiminum að glíma við eitthvert vandamál og hafa jafnvel átt þrautargöngu í heilbrigðiskerfinu. Þá segir hún að það sé mikilvægast af öllu að það sé hlustað á konur og að þær viti að það er víða til hjálp. Í flestum tilvikum er hægt að bæta heilsu, líðan og lífsgæði. Áhugasamir geta fundið upplýsingar á heimasíðu Þorgerðar og einnig á Instagram og Facebook Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Embed this episode
What this episode covers
Þátturinn er í boði Nettó og Unbroken Í þættinum ræðir Erla við Þorgerði Sigurðardóttur, kvenheilsusjúkraþjálfara um ýmis málefni sem tengjast heilsu kvenna og hafa áhrif á lífsgæði þeirra, t.d. þvagleka, legsig, endaþarmssig, blöðrusig, ofspennu í grindarbotni og endómetríósu. Þær ræða einnig um áhrif meðgöngu og fæðingar á kvenlíkamann, mæðravernd eftir fæðingu, íþróttakonur, mikilvægi grindarbotnsæfinga og hvernig er best að framkvæma þær, kynlíf, breytingarskeið kvenna, mikilvægi slökuna...
Ready to play
52. Kvenlíkaminn er algjör töffari. (Ofspenna í grindarbotni, kynlíf, breytingarskeið kvenna, þvagleki, legsig og endómetríósa.) Þorgerður Sigurðardóttir
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.