EPISODE · Apr 23, 2025 · 54 MIN
#56 - Stefán Einar varð sveiflu Geirmundar að bráð
from Seinni níu · host Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Gestur Seinni Níu þessa vikuna er enginn annar en Stefán Einar Stefánsson, sem hefur verið mjög áberandi í þjóðmálaumræðunni síðustu mánuði – bæði í hlaðvörpum og í Spursmálum á mbl.is.Stefán er að snúa aftur á golfvöllinn eftir nokkurra ára hlé og er nú skráður með 54 í forgjöf. Hann hefur þó áður náð niður í 12 í forgjöf, svo þetta eru áhugaverðir tímar fram undan.Í þættinum segir Stefán okkur frá því þegar hann byrjaði að leika golf á Patreksfirði, og síðar í Borgarnesi – þar sem golfferill hans fékk virkilega byr undir báða vængi. Uppáhaldsholan á Hamarsvelli kemur verulega á óvart!Auk þess rifjar Stefán upp atvik þegar Geirmundur Valtýsson eyðilagði teighögg hans með mjög sviplegum hætti í meistaramóti – sagan er bæði fyndin og sársaukafull.Einnig fáum við að heyra draumaholl Stefáns. Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️♀️- Golfsvítan
Embed this episode
NOW PLAYING
#56 - Stefán Einar varð sveiflu Geirmundar að bráð
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.