EPISODE · Aug 27, 2019 · 29 MIN
#6 Ofurhlauparinn Tobbi og Dalvík/Reynir efstir í 3. deild
from Taktíkin · host N4
Þorbergur Ingi Jónsson og Sævar Helgason mæta hér í settið til að ræða UTMB. Ásamt þeim mættu Atli Fannar Írisarson, Jóhann Örn Sigurjónsson og Sveinn Þór Steingrímsson frá Meistaraflokki Dalvík/Reynis í settið til Skúla Braga til að ræða ótrúlegt gengi liðsins á tímabilinu. Ultra Trail du Mont Blanc eða UTMB er 170 km hlaup með 10.000 metra hækkun kringum Mont Blanc. Þorbergur Ingi Jónsson, einnig þekktur sem Tobbi, var einn af 2.581 keppendum sem hélt af stað í þessa miklu þrekraun sem alls ekki allir ná að klára alla leið í endamarkið. Skömmu fyrir hlaupið lenti Tobbi í því að togna á kálfa og var mjög tvísýnt um hvort hann gæti yfir höfuð tekið þátt. Þrátt fyrir að vera ekki búinn að ná sér að fullu lagði hann af stað í hlaupið en meiðslin gerðu það að verkum að hann þurfti að passa uppá að hlífa sér í hverju skrefi. Ofan á meiðslin lenti hann í því eftir tæpa 100 km að geta ekki nært sig sem skyldi, sem varð til þess að hann hneig á endanum niður og héldu margir að þá væri þetta búið spil. Með ótrúlegri þrautseigju og góðum stuðningi tókst honum þó að koma sér aftur á fætur og enda hlaupið í 32. sæti á rétt tæpum 26 klukkustundum. Sem verður að teljast magnaður árangur miðað við aðstæður. Dalvík/Reynir sigraði 3. deildina í knattspyrnu karla og spilar því í 2. deild á næsta tímabili. Atli Fannar Írisarson og Jóhann Örn Sigurjónsson ungir leikmenn liðsins mættu í settið til þess að ræða sigurvímuna á Dalvík, tækifærin í neðri deildunum, stöðuna á liðinu og landsbyggðafótboltann á Íslandi. „Við sjáum það að það eru ekkert öll lið sem mæta með fullskipuð lið norður til okkar en við förum alltaf með allt sem við eigum suður,“ sagði Atli Fannar í Taktíkinni í gær. „Það eru nokkrir klúbbar í borginni sem að eru kannski ekki að leggja allt í þetta með að fara með fullan hóp út á land, eins og liðin á landsbyggðinni gera. Bara eins og með Sindra frá Höfn og Einherja, þeir fara alltaf með alla sína leikmenn, alveg eins og við förum með alla okkar leikmenn til Reykjavíkur,“ bætti síðan Jóhann við. Dalvík/Reyni var spáð fallsæti í 3. deildinni í upphafi tímabilsins. Þeim tókst þó heldur betur að sýna fram á að spár eru oft ekkert annað en spár. Þeir fóru alla leið sigruðu 3. deildina og spila því í 2. deild á næsta tímabili. Glæsilegur árangur! Sveinn Þór Steingrímsson þjálfari liðsins var mættur í settið til þess að gera upp tímabilið. „Þessi árangur núna í sumar. Þetta ætti að kveikja svolítið í bæjarbúum og bæjarstjórn að gera meira. Að gera betur næst, því við hljótum að vera alltaf að horfa upp á við. Það bara hlýtur að vera.“
What this episode covers

NOW PLAYING
#6 Ofurhlauparinn Tobbi og Dalvík/Reynir efstir í 3. deild
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.