EPISODE · Jun 4, 2025 · 1H 2M
#62 - Ívar Hauks segir flesta kylfinga með of lítinn fláa á drævernum
from Seinni níu · host Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar – Ívar Hauksson, kom í spjall til okkar í Seinni níu. Ívar hefur búið á Spáni síðustu 30 árin við golfkennslu og er stundum kallaður Kóngurinn á Mar Menor.Í júní tekur Ívar að sér golfkennslu hér á Íslandi, og komast færri að en vilja. Í ár eru um 75 manns á biðlista eftir að komast undir handleiðslu Ívars, sem kennir golf frá morgni til kvölds.Ívar segir okkur frá golfferli sínum, sem hófst þegar hann var aðeins þriggja ára. Við rifjum upp nokkrar skemmtilegar sögur, og Ívar deilir einnig nokkrum góðum ráðum til kylfinga. Þar kemur meðal annars fram að flestir kylfingar séu með of lágan fláa á drævernum – að hans mati.Hann ræðir einnig ást sína á 7-trénu, sem hann segir vera að breyta leiknum. Draumahollið er á sínum stað, og þar koma við sögu afar litríkir kylfingar.Frábær þáttur með einum af okkar allra skemmtilegustu köppum í golfíþróttinni á Íslandi.Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar
Embed this episode
NOW PLAYING
#62 - Ívar Hauks segir flesta kylfinga með of lítinn fláa á drævernum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.