64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna episode artwork

EPISODE · Feb 20, 2021 · 30 MIN

64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna

from Heimskviður

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Rússlands og Kúbu, en fjöllum þó ekkert um sósíalisma. Ráðgátan um örlög níu ungra Rússa sem fundust látin í Úralfjöllum árið 1959 gæti verið ráðin. Vinnsla við eina þekktustu Disney mynd síðari tíma virðist hafa hjálpað til við að leysa þessa lífseigu ráðgátu. Þá leituðu rannsakendur sömuleiðis í gagnabanka þekkts bílaframleiðanda við uppljóstrun málsins. Birta Björnsdóttir fjallar um málið. Þá segir Guðmundur Björn okkur frá því að til stendur að fangabúðum Bandaríkjastjórnar við Guantanamo-flóa á Kúbu verði lokað í stjórnartíð Joe Bidens. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í vikunni. 780 fangar hafa dvalið í búðunum frá því George Bush tilkynnti um opnun þeirra árið 2002. Margir vistmenn í Guantanamo voru fluttir þangað án þess að hljóta réttláta málsmeðferð, og þurft að sæta þar pyntingum. Mannréttindasamtök hafa lengi barist fyrir því að fangabúðunum yrði lokað, og meðal annars bent á að stangist á við ákvæði í stjórnarskrá Bandaríkjanna. Barack Obama hét því að loka fangabúðunum í stjórnartíð sinni, en hafði ekki erindi sem erfiði. Donald Trump vildi halda þeim opnum, en nú ætlar Joe Biden að reyna að loka þeim. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

64 | Dyatlov-leiðangurinn og lokun Guantanamo fangabúðanna

0:00 30:40

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 30 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on February 20, 2021.

What is this episode about?

Í Heimskviðum vikunnar förum við til Rússlands og Kúbu, en fjöllum þó ekkert um sósíalisma. Ráðgátan um örlög níu ungra Rússa sem fundust látin í Úralfjöllum árið 1959 gæti verið ráðin. Vinnsla við eina þekktustu Disney mynd síðari tíma virðist...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!