66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell episode artwork

EPISODE · Mar 6, 2021 · 32 MIN

66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

from Heimskviður

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna. Tæp tvo og hálft ár eru síðan Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Khashoggi hafði talað opinskátt fyrir opnara og gagnsærra stjórnkerfi í heimalandinu, og gagnrýnt krónprinsinn Mohammed bin Salman fyrir spillingu og mannréttindabrot. Prinsinn hefur ítrekað þvertekið fyrir að hafa skipulagt, eða vitað, um morðið á Khashoggi. Það verður að teljast ólíklegt að að hæstráðandi landsins hafi ekkert vitað, og því eru bandarísk stjórnvöld sammála. Þetta kemur fram í skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar CIA um morðið á Khashoggi, sem var gerð opinber á dögunum. En hvað hún felur hún í sér? Munu Bandaríkin geta beita refsiaðgerðum gegn einum mikilvægasta bandamanni sínum í Mið-Austurlöndum? Guðmundur Björn kynnti sér málið. Flestum er eldsvoðinn í Grenfell fjölbýlishúsinu í Lundúnum sumarið 2017 enn í fersku minni en sjötíu og tvö létust þegar blokkin varð alelda á skömmum tíma. Tæpum fjórum árum eftir brunann búa um 650 þúsund Lundúnabúar búa enn í húsnæði með samskonar klæðningu og fuðraði upp í eldsvoðanum. Örvænting hefur gripið um sig í stað reiði, því þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnvalda hefur lítið verið gert fyrir þennan hóp. Birta Björnsdóttir fjallan um eldsvoðann í Grenfell og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara RÚV í Lundúnum. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

66 | Bin Salman, morðið á Khashoggi og eldsvoðinn í Grenfell

0:00 32:13

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 32 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 6, 2021.

What is this episode about?

Í Heimskviðum vikunnar höldum við Tyrklands, Sádí-Arabíu og Lundúna. Tæp tvo og hálft ár eru síðan Sádí-arabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í sendiráði Sádí-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Khashoggi hafði talað opinskátt fyrir opnara...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!