EPISODE · Aug 27, 2019 · 28 MIN
#7 Skautafélag Akureyrar - Jón Benedikt, Hafþór Andri, Gunnar Aðalgeir og Jónína Margrét
from Taktíkin · host N4
Þátturinn er tileinkaður Skautafélagi Akureyrar Jón Benedikt Gíslason, Hafþór Andri Sigrúnarson, Gunnar Aðalgeir Arason og Jónína Margrét Guðbjartsdóttir eru gestir Skúla Braga að þessu sinni í Taktíkinni. SA Víkingar taka þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins og ferðast á miðvikudag til Sofíu í Búlgaríu. SA Víkingar eru í A-riðli sem fram fer í Sofiu en keppnin hefst á föstudag. Í riðli með SA eru Irbis-Skate frá Sofíu í Búlgaríu, Zeytinburnu frá Istanbul í Tyrklandi og HC Bat Yam í Tyrkland. „Þetta verður erfitt en við verðum bara að taka á þessu. Við erum vanir þessu úr landsliðinu, þar sem að það eru fimm leikir á sjö dögum, tveir hvíldardagar þarna inná milli,“ sagði Hafþór Andri Sigrúnarson meðal annars í þættinum. Bikarkeppni ÍHÍ – Lýsisbikarinn 2018 er nú nýlega lokið, en úrslitaleikirnir voru spilaðir á Akureyri. „Þetta heppnaðist ágætlega fyrir okkur. Við unnum og það er náttúrlega það sem við viljum gera. Það sem kannnski mestu máli skiptir er samt undirbúningurinn. Við erum að fara að taka þátt í Evrópukeppninni þannig að það var gott að fá tvo leiki á tveimur dögum, tvisvar. Afþví að svo erum við að fara til Búlgaríu að spila þrjá leiki á þremur dögum,“ sagði Jón Benedikt framkvæmdastjóri SA, leikmaður og landsliðsþjálfari kvenna í hokkí meðal annars. „Þú þarft að hafa einhvern vilja og þú þarft að hafa eitthvað svona hérna inní þér sem að heldur þér gangandi og ber þig áfram afþví að það kemur alveg fyrir að maður hugsi bara „ohhh það er sunnudagskvöld, ég nenni ekki á æfingu“ en þá hugsar maður okey mig langar að komast í landsliðis og mig langar að vera með. Hvað þarf ég? Þá þarf maður bara að vera með sterkan vilja og gríðarlegan áhuga til þess að halda áfram,“ sagði Jónína Margrét Guðbjartsdóttir leikmaður SA og landsliðsins í hokkí meðal annars í þættinum.
What this episode covers

NOW PLAYING
#7 Skautafélag Akureyrar - Jón Benedikt, Hafþór Andri, Gunnar Aðalgeir og Jónína Margrét
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.