71 | Skuggahliðar Amazon og skuldasöfnun Afríku episode artwork

EPISODE · Apr 17, 2021 · 26 MIN

71 | Skuggahliðar Amazon og skuldasöfnun Afríku

from Heimskviður

Í Heimskviðum vikunnar fjöllum við um tæknirisann Amazon og hin ýmsu vandamál sem steðja að ríkjum Afríku, þá sér í lagi Kenýa. Jeff Bezos ætlar síðar á þessu ári að hætta sem forstjóri bandaríska bók- og tæknirisans Amazon. Hann verður þó áfram stjórnarformaður fyrirtækisins, en Bezos hefur hagnast gríðarlega síðustu tvo áratugi og er í dag ríkasti maður heims. Stafsmenn Amazon eru 750 þúsund. Starfsfólkið, eða hluti af þeim hóp, er einmitt ástæða þess að við settum Amazon á dagskrá í þættinum í dag. Í bandarískum miðlum, og reyndar víðar, hefur grannt verið fylgst með stéttabaráttu starfsfólks Amazon. Starfsfólk Amazon er ekki í stéttarfélagi, en því vildu mörg þeirra breyta. Töldu til dæmis hag sínum betur borgið inann vébanda stéttarfélags sem hefði umboð og vald til að semja um hærri laun fyrir þau. Öld Afríku er vel á veg komin en afríkuríkjunum miðar hægt að því marki sínu að bæta lífskjör almennings. Eftir stöðugan vöxt síðustu áratuga eru erfiðleikar framundan. En það er ekki vegna faraldursins, því kreppur síðustu áratuga hafa lítið snert afríkuríkin, hvort sem þær tengjast veirum eða bönkum og bólum sem springa. Skuldum hlaðin eru mörg þeirra að þrotum komin. Keníumenn hvetja nú til þess að hætt verði að lána stjórnvöldum í landinu, því þau hafi farið fram úr sér í innviðauppbyggingu, spillingin grasseri, og stjórnvöld leiti nú til Kínverja til að bjarga sér. Förum til Keníu með Bjarna Pétri Jónssyni. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

71 | Skuggahliðar Amazon og skuldasöfnun Afríku

0:00 26:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 26 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on April 17, 2021.

What is this episode about?

Í Heimskviðum vikunnar fjöllum við um tæknirisann Amazon og hin ýmsu vandamál sem steðja að ríkjum Afríku, þá sér í lagi Kenýa. Jeff Bezos ætlar síðar á þessu ári að hætta sem forstjóri bandaríska bók- og tæknirisans Amazon. Hann verður þó áfram...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!