85 | Göngutúr í Addis Ababa og sár í norrænu samstarfi episode artwork

EPISODE · Nov 13, 2021 · 37 MIN

85 | Göngutúr í Addis Ababa og sár í norrænu samstarfi

from Heimskviður

Þann 3. nóvember í fyrra brutust út átök á milli stjórnarhersins í Eþíópíu og frelsishers Tigray, TPLF, í Tigray héraði. Átökin hafa því staðið í heilt ár. Þúsundir hafa látið lífið í átökum síðastliðin árs og yfir tvær milljónir hrakist fráa heimilum sínum, hluti íbúa landsins glímir nú við mikla hungursneyð. Á þessu ári sem hefur liðið frá því átökin hófust hafa fregnir borist af hræðilegum mannréttindabrotum, fjöldamorðum og hópnauðgunum. Nú eru það uppreisnarmennirnir sem virðast hafa yfirhöndina. Síðustu vikur færst harkalega í aukanna. Við bregðum okkur í göngutúr í Addis Ababa með Geir Konráð Theodórssyni, sem þar býr ásamt unnustu sinni og ræðum sömuleiðis við Bjarna Gíslason, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar og Helen Maríu Ólafsdóttur hjá þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu, um þessu miklu átök og framtíð Eþíópíu. Norrænt samstarf hefur löngum verið talið til fyrirmyndar í samvinnu sjálfstæðra og fullvalda ríkja. Í meginatriðum gengur það út á að borgarar ríkjanna fimm njóti sama réttar í öllum löndunum og heimamenn, vinnumarkaðurinn hefur verið sameiginlegur í meira en sextíu ár, fólk getur ferðast á milli án þess að sýna vegabréf og sótt skóla. Á nýafstöðnu Norðurlandaráðsþingi urðu fulltrúar Norðurlandanna sammála um að vilja græða sár og leysa deilur og illindi sem upp komu í kórónuveirufaraldrinun þegar þjóðirnar skelltu í lás og lokuðu landamærum án samráðs við grannþjóðirnar. Vonir standa til þess að þeirri öfugþróun sem hefur verið í norrænu samstarfi á undanförnum árum hafi verið snúið við á þingi Norðurlandaráðs. Bogi Ágústsson flytur okkur þennan pistil. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.

NOW PLAYING

85 | Göngutúr í Addis Ababa og sár í norrænu samstarfi

0:00 37:22

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 37 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on November 13, 2021.

What is this episode about?

Þann 3. nóvember í fyrra brutust út átök á milli stjórnarhersins í Eþíópíu og frelsishers Tigray, TPLF, í Tigray héraði. Átökin hafa því staðið í heilt ár. Þúsundir hafa látið lífið í átökum síðastliðin árs og yfir tvær milljónir hrakist fráa...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!