99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall episode artwork

EPISODE · Mar 5, 2022 · 37 MIN

99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall

from Heimskviður

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með rótum og lagt á flótta. En leiðir margra fjölskyldna hafa skilið vegna þess að stríðið kallar á hermenn. Víða hafa ættingjar þurft að kveðja nákominn karlmann á herskyldualdri. Samkvæmt herlögum, sem nú eru í gildi í landinu, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára skyldaðir til að vera eftir í Úkraínu og verjast. Jóhannes Ólafsson fjallar um málið. Stríðið í Úkraínu hefur margvísleg önnur áhrif. Staðgöngumæðrun er óvíða jafn aðgengileg og í Úkraínu. Þúsundir úkraínskra kvenna ganga ár hvert með börn foreldra um allan heim. Ferlið er bæði flókið og því fylgja ýmsar siðferðisspurningar. Aðstæður staðgöngmæðra og foreldra barnanna sem þær ganga með verða síst einfaldari þegar stríð brýst út í landinu. Birta Björnsdóttir fjallar um þetta. Og síðast en ekki síst eru það danskir njósnaskandalar. Nokkur hneyklismál tengd dönsku leyniþjónustunni hafa komið upp á undanförnum árum. Bandalags- og eða vinaþjóðir urðu Dönum gramar er upp komst að þeir hefðu leyft bandarísku leyniþjónustufólki aðgang að dönskum fjarskiptaköplum í þeim tilgangi að hlera æðstu ráðamenn. Bogi Ágústsson segir okkur allt um þetta. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar og umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson.

NOW PLAYING

99 | Herskylda og staðgöngumæður í Úkraínu og danskur njósnaskandall

0:00 37:03

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heimskviður?

This episode is 37 minutes long.

When was this Heimskviður episode published?

This episode was published on March 5, 2022.

What is this episode about?

Rúmlega vikulangt stríðið í Úkraínu tekur eðlilega yfir flestallar fréttir þessa dagana. Innrás Rússa og afleiðingar hennar koma einnig við sögu í þættinum í dag. Frá innrás rússneskra herliðsins í Úkraínu hafa ótal Úkraínumenn rifið sig upp með...

Can I download this Heimskviður episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!