Á leiðinni heiman og heim: Kynning episode artwork

EPISODE · Dec 19, 2021 · 14 MIN

Á leiðinni heiman og heim: Kynning

from Leiðin okkar allra · host Kirkjuvarpið

Hlaðvarpsþátturinn „Leiðin okkar allra“ tekur á því að mæta fólki á ferð - og huga að. Það er horft aftur um lífsleiðina og velt fyrir sér vægi hinnar andlegu vegferðar í því ferli að halda jafnvæginu. Eins og segir í ljóði Einars Georgs Einarssonar, þá geta örlögin valdið því að einn daginn verður maðurinn að halda af stað. Við getum aldrei vitað hvað mun mæta okkur á morgun, svo það er kannski bara ágætt að velta aðeins vöngum yfir lífsgildum sínum áður en lagt er af stað. Í þessum mannlegu þáttum Kirkjuvarpsins, í umsjón Arnaldar Mána, velta Bolli Pétur og Ása Laufey því fyrir sér ásamt viðmælendum sínum hvað það kann að vera sem fær manninn til að velta vöngum yfir tilgangi lífsins leiðina á enda. Það eru sem áður ljós og skuggar, brekkur og sléttur, einn Guð og allir - eða enginn; það er fjallað um trú og trúleysi, um heilbrigðar og óheilbrigðar guðsmyndir, rýnt í sjálfið og sjálfsvitundina, hið ómeðvitaða og meðvitaða. Umfjöllunarefnið er ekki síst reynsla mannsins í stóra samhenginu, súrir og sætir sigrar og dauðadjúpar sorgir. Einhvernveginn kemur allt saman á tilviljunarkenndan en jafnframt með merkingarbærum hætti í því sem við köllum sammannlegt. Eða það segir Bolli allaveganna.Við tæklum ekki hið huglæga aðeins á hlutlægan hátt, það er gömul saga og ný; það þarf að mæta raunum sálar með hjálp í sjálfum andanum. Hvernig gerir fólk það, hver eru bjargráðin? Hér er spurt um það hvað hafi stutt við viðmælendur Leiðarinnar okkar allraen þeir koma úr ólíkum áttum, með ólíkan bakgrunn, ólíkar væntingar og þrár, ólíka menntun og reynslu. Leiðin markast alltaf af lífsreynslu okkar, undirstöðunum og þránni - en ekki síst af því hvernig leiðir við nýtum okkur til að vinna úr því sem á reynir. Ása er mikil áhugamanneskja um þær leiðir. Fróðlegt hlaðvarp um hina andlegu vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur og koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason eru sálgætar og prestar sem starfa í söfnuðum á vegum Þjóðkirkjunnar, en fá í þessum þáttum til sín fólk úr ýmsum áttum sem á þó merkilega margt sameiginlegt. Umsjónarmaður og hljóðsnyrtir er Arnaldur Máni Finnsson.Þátturinn er tekinn upp í Skrúðhúsinu, Katrínartúni 4 og gefinn út af Kirkjuvarpinu, hlaðvarpsveitu Þjóðkirkjunnar. Upphafsstef og söngur: Þorsteinn Einarsson.Ljóðið „Leiðin okkar allra“ er eftir Einar Georg EinarssonLjósmynd í logoi þáttarins á Völundur JónssonÞakkir til þeirra þriggja - og fararblessun þér til handa á leiðinni!

NOW PLAYING

Á leiðinni heiman og heim: Kynning

0:00 14:20

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Fatta familjen UR – Utbildningsradion Föräldrarådgivning när det fungerar som sämst med dem du älskar mest. En podd som hjälper dig att hantera föräldraskapets allra svåraste utmaningar. Har du problem med relationer, barn eller uppfostran? Skicka in dina frågor till våra experter på [email protected] Sterk saman Tinna Gudrun Barkardottir Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar. Hlaðvarp Myntkaupa Myntkaup Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum.Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store. Boltinn lýgur ekki Körfuboltaþátturinn Boltinn Lýgur Ekki, sem hefur verið leiðandi í körfuboltaumfjöllun á Íslandi, er kominn á Suðurlandsbrautina, heimili körfuboltans á Íslandi.Fjallað er um móður allra íþrótta á hispurslausan hátt. Íslenski boltinn í aðalhlutverki en NBA verður á sínum stað ásamt heitum tökum og góðum gestum.Það eru Véfréttin sjálf, Sigurður Orri og Tommi Steindórs sem stýra þættinum sem er í þráðbeinni á X977 alla fimmtudaga frá 16-18.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Leiðin okkar allra?

This episode is 14 minutes long.

When was this Leiðin okkar allra episode published?

This episode was published on December 19, 2021.

What is this episode about?

Hlaðvarpsþátturinn „Leiðin okkar allra“ tekur á því að mæta fólki á ferð - og huga að. Það er horft aftur um lífsleiðina og velt fyrir sér vægi hinnar andlegu vegferðar í því ferli að halda jafnvæginu. Eins og segir í ljóði Einars Georgs...

Can I download this Leiðin okkar allra episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!