Leiðin okkar allra podcast artwork

PODCAST · religion

Leiðin okkar allra

Öll erum við á andlegri vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur eða koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása og Bolli fá til sín ólíkt fólk úr ýmsum áttum, sem þó eiga svo margt sameiginlegt - eins og raunin er með okkur flest - í yfirveguðu spjalli um það sem þroskar manninn þó á hann reyni líka. Sögur af vonum sem veita nýja sýn á trú og tilgang, brot úr veruleikanum sem hafa þá tilhneigingu til að raðast saman þannig að einhvernveginn stækkar allt við það eitt að maður reyni að skilja eitthvað í því. Sögur af kjarki, kærleika og þeirri kyngi sem fylgir því að finna Krist á veginum, hvort sem hann bara kallaði til manns eða reisti óvænt við - þið vitið. Umsjónarmenn eru Arnaldur Máni Finnsson, Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason. Þátturinn er tekinn upp í Stúdíó Stað og gefinn út af Kirkjuvarpi Þjóðkirkjunnar, Katrínartúni, Reykjavík. Upphafsstef og söngur, Þorsteinn Einarsson. Þakkir Einar G

  1. 11

    Aftur af stað: Ég hef einu sinni grátið... - Leiðin okkar allra

    Kynning á næstu seríu Leiðarinnar okkar allra. Fer í loftið um helgina...Ása Laufey og Bolli Pétur hafa flutt sig um hljóðstofu og settust á dögunum með Þóri Guðmundssyni í turninn Víðförla, á horni Vonarstrætis og Lækjargötu. Leiðin okkar allra, á leið í loftið á ný!

  2. 10

    Verði ljós, elskan: Soffía Bjarnadóttir - jólaþáttur

    Til hátíðarbrigða fá Ása og Bolli skáldið Soffíu Bjarnadóttur til sín til að grufla í ljósinu, sannleikanum og fegurðinni með henni. Þau ræða skrif og skáldskap, skáldskap sem veruleika og reynslu, uppsprettu innblástursins - aðferð skrifa sem verkfæri heilunnar og lífsins göngu frá ljósi til ljóss, í gegnum skynvillur skóga. Tilefnið er vissulega nýútkomin ljóðabók Soffíu, Verði ljós, elskan - sem bókaforlagið Angústúra gefur út. Soffía er verkefnastjóri bókmennta hjá Bókasöfnum Reykjavíkur, skáld og kennari í ritlist, með meistaragráður í bæði ritlist og bókmenntafræði. Hún á tvö börn, Emil og Líneik Þulu og býr í Reykjavík. Þátturinn kemur út á vetrarsólhvörfum og er jólaþáttur Leiðarinnar okkar allra. Hann er auðvitað tileinkaður öllum þeim sem geta ekki verið með sínum nánustu á jólum vegna faraldursins.Arnaldur, Ása Laufey og Bolli Pétur óska ykkur gleðilegra jóla og friðar í hjarta yfir hátíðarnar.

  3. 9

    Á leiðinni heiman og heim: Kynning

    Hlaðvarpsþátturinn „Leiðin okkar allra“ tekur á því að mæta fólki á ferð - og huga að. Það er horft aftur um lífsleiðina og velt fyrir sér vægi hinnar andlegu vegferðar í því ferli að halda jafnvæginu. Eins og segir í ljóði Einars Georgs Einarssonar, þá geta örlögin valdið því að einn daginn verður maðurinn að halda af stað. Við getum aldrei vitað hvað mun mæta okkur á morgun, svo það er kannski bara ágætt að velta aðeins vöngum yfir lífsgildum sínum áður en lagt er af stað. Í þessum mannlegu þáttum Kirkjuvarpsins, í umsjón Arnaldar Mána, velta Bolli Pétur og Ása Laufey því fyrir sér ásamt viðmælendum sínum hvað það kann að vera sem fær manninn til að velta vöngum yfir tilgangi lífsins leiðina á enda. Það eru sem áður ljós og skuggar, brekkur og sléttur, einn Guð og allir - eða enginn; það er fjallað um trú og trúleysi, um heilbrigðar og óheilbrigðar guðsmyndir, rýnt í sjálfið og sjálfsvitundina, hið ómeðvitaða og meðvitaða. Umfjöllunarefnið er ekki síst reynsla mannsins í stóra samhenginu, súrir og sætir sigrar og dauðadjúpar sorgir. Einhvernveginn kemur allt saman á tilviljunarkenndan en jafnframt með merkingarbærum hætti í því sem við köllum sammannlegt. Eða það segir Bolli allaveganna.Við tæklum ekki hið huglæga aðeins á hlutlægan hátt, það er gömul saga og ný; það þarf að mæta raunum sálar með hjálp í sjálfum andanum. Hvernig gerir fólk það, hver eru bjargráðin? Hér er spurt um það hvað hafi stutt við viðmælendur Leiðarinnar okkar allraen þeir koma úr ólíkum áttum, með ólíkan bakgrunn, ólíkar væntingar og þrár, ólíka menntun og reynslu. Leiðin markast alltaf af lífsreynslu okkar, undirstöðunum og þránni - en ekki síst af því hvernig leiðir við nýtum okkur til að vinna úr því sem á reynir. Ása er mikil áhugamanneskja um þær leiðir. Fróðlegt hlaðvarp um hina andlegu vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur og koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason eru sálgætar og prestar sem starfa í söfnuðum á vegum Þjóðkirkjunnar, en fá í þessum þáttum til sín fólk úr ýmsum áttum sem á þó merkilega margt sameiginlegt. Umsjónarmaður og hljóðsnyrtir er Arnaldur Máni Finnsson.Þátturinn er tekinn upp í Skrúðhúsinu, Katrínartúni 4 og gefinn út af Kirkjuvarpinu, hlaðvarpsveitu Þjóðkirkjunnar. Upphafsstef og söngur: Þorsteinn Einarsson.Ljóðið „Leiðin okkar allra“ er eftir Einar Georg EinarssonLjósmynd í logoi þáttarins á Völundur JónssonÞakkir til þeirra þriggja - og fararblessun þér til handa á leiðinni!

  4. 8

    Við erum saman í samfélaginu: Svavar Knútur Kristinsson

    Söngvaskáldið Svavar Knútur er mörgum kunnur af list sinni, en þessi hrifnæmi ljúfi Vestfirðingur hefur löngum veitt andanum greiðan aðgang að sér. Hann ræðir við Bolla og Ásu um sköpunargáfuna og kraftinn, heimspekilegar vangaveltur og hressandi sögur af sorgum og sigrum, og þó aðallega sorgum. Auðvitað. 45 ár af lífi - heillandi viðhorf til lífsins og reynslunnar.

  5. 7

    Að þekkja skugga sinn og drauma: Haukur Ingi Jónasson

    Haukur Ingi Jónasson er lektor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og formaður stjórnar MPM-náms skólans. Hann hefur komið að margþættum rannsóknum á sviði stjórnunarfræða og er meðhöfundur sex bóka á íslensku (JPV) og fimm bóka á ensku (Routledge/Taylor and Francis).Haukur lauk doktorsnámi sínu við Union Theological Seminary í New York en þar las hann sálarfræði, geðsjúkdóma- og geðlæknisfræði, sálgreiningu, analýtíska sálfræði í sögu og samtíð, og hagnýta og kennimannlega guðfræði með sérstakri áherslu á beitingu hennar í klínískri vinnu, við kennslu, í atvinnulífi og í nútíma samfélagi. Samhliða doktorsnámi stundaði Haukur klínísk nám við Harlem Family Institute, Health Care Chaplaincy og Lenox Hill-sjúkrahúsið í New York. Í doktorsritgerð sinni In a Land of a Living God, The Healing Imagination and the Icelandic Heritage, setur Haukur fram kenningu sem útskýrir virkni ímyndunaraflsins í mannshuganum. Ímyndunaraflið er skilgreint sem samsetning (e. synthesis) sálræn efnis í nýjar hugmyndir þannig að til verða táknmyndir sem standa fyrir fjarverandi hluti, geðhrif, líkamlega virkni, líkamlegt ástand, minningar, hneigðir, hvatir. Afurðir þessa eru myndir, tákn, órar, draumar, hugmyndir, hugsanir og/eða hugtök. Þá heldur hann því fram að ímyndunaraflið sé frábrugðið órum að því leiti að í stað þess að vera á skjön við veruleikann þá nýtist heilbrigt ímyndunarafl til virkrar aðlögunar að veruleikanum til dæmis í sköpun og nýsköpun ýmiskonar.

  6. 6

    Í nærgætnu skjóli: Rósa Björg Brynjarsdóttir

    Rósa Björg Brynjarsdóttir umsjónarkona Skjólsins, opins húss fyrir konur í Grensáskirkju, er menntaður kennari og mannauðsstjóri, með diploma í sálgæslu. Örlögin höguðu því svo til að hún var aðeins 27 ára gömul þegar MS-sjúkdómurinn gerði vart við sig hjá henni en frá því í upphafi þessa árs hefur hún starfað að uppbyggingu og mótun Skjólsins, ásamt fleirum. Rósa Björg, móðir með tvö börn og fjölskyldu, ræðir við Ásu Laufey og Bolla Pétur um þetta leiksvið lífsins sem stöðugt krefst nýrra sviðsmynda. „Konur sem eiga í engin hús að venda eru eins ólíkar og þær eru margar,“ segir Rósa Björg, „en flestar ef ekki allar eiga það sameiginlegt að eiga áfallasögu og er ég þakklát að hafa eignast traust þeirra til að heyra þeirra sögur og fá að fylgja þeim.“

  7. 5

    Björt mey og missir: Ólafur Teitur Guðnason

    Ólafur Teitur Guðnason er höfundur bókarinnar Meyjarmissir, en hefur starfað sem blaðamaður og ráðgjafi, síðast sem aðstoðarmaður ráðherra. Ólafur hefur ritstýrt bókum og er einnig höfundar bókanna Fjölmiðlar 2004, Fjölmiðlar 2005, Fjölmiðlar 2006 og Fjölmiðlar 2007 þar sem hann leitasðist við að greina fréttaumfjöllun íslenskra fjölmiðla með gagnrýnu hugarfari.Í þættinum ræða Ása Laufey og Bolli við hann um lífið og dauðann, Engilbjörtu Auðunsdóttur, meyjarmissi, félagsskapinn Ljónshjarta og hans eigin vegferð við úrvinnslu þess áfalls að missa lífsförunaut sinn langt fyrir aldur fram.

  8. 4

    Þroskuð trú og tilgangur: Svana Helen Björnsdóttir

    Í þætti dagsins birtir hinn þekkti frumkvöðull Svana Helen Björnsdóttir framkvæmdastjóri og rafmagnsverkfræðingur, hlið á sjálfri sér sem ekki hefur borið mikið á. Hún segir frá trúarlegri mótun í æsku og hvernig mikilvæg reynsla á menntaskólaárunum markaði meðal annars þau spor í hennar starfi að vilja sinna öldrunarmálum með tækninýjungum í þágu heilbrigðisgeirans. Svana Helen hefur bæði djúpa reynslu og mikla sögu að segja af þeirri trú sem nærir hana og hvernig samtal hennar við þann Guð, sem er hafin yfir nöfn og merkimiða, og samfylgd með kirkjunni og Kristi hefur veitt henni styrk í fjölbreyttum verkefnum lífsins. Frásaga af þroskaðri trú og tilgangi lífsins. Njótið

  9. 3

    Hvítþvottur skírnarinnar er ekki allt: Arnór B. Blomsterberg

    Nói er prestur í Tjarnarprestakalli í Hafnarfirði, fv. kjötiðnaðarmaður og áhugabruggari. Arnór Bjarki á áhugaverða sögu, en hann segir okkur meðal annars frá leið sinni í gegnum róstursöm unglingsár, í gegnum áföll og til innri þarfar fyrir trú í sínu lífi. Í því er tiltekið hvernig það var að vera unglingur með brotna sjálfsmynd, leið fyrirgefningarinnar og upprisunnar í eigin lífi.

  10. 2

    Móðir, missir, máttur: Þóranna Sigurbergsdóttir

    Það hyllir undir starfsloka-aldurinn hjá Þórönnu Margréti Sigurbergsdóttur, en hún hefur mikla sögu að segja af ferðum sínum og áföllum lífsins, þar sem trúin hefur oftar en ekki verið henni haldreipi. Hún og eiginmaður hennar Steingrímur Ágúst Jónsson hafa búið í Vestmannaeyjum frá því skömmu eftir gos. Þau sinna í dag ýmsum hugðarefnum, svo sem hjálparstarfi í Afríku og því að miðla af reynslu sinni og lífsgleði, og traustinu sem þau bera til Drottins í sínum raunum. Þóranna er ein höfunda bókarinnar Móður, missir, máttur - en þar fjallar hún ásamt tveimur öðrum konum um reynsluna af því að missa uppkomna syni, en sonur hennar Sigurjón Steingrímsson lést í umferðarslysi árið 1996, þá sautján ára gamall. Um það leyti sem bókin átti að koma út árið 2016 þá varð annar sonur hennar, Ríkarður, bráðkvaddur í sumarleyfisferð í tilefni af fertugsafmæli sínu. Ungur og hraustur lögreglumaður með unga fjölskyldu sína. Þóranna ræðir við Bolla og Ásu um það að missa móðinn og finna máttinn á ný. Njótið.

  11. 1

    Endurheimt með orðsins ljósa galdri: Björn Hjálmarsson

    Björn Hjálmarsson sérfræðilæknir á BUGL hefur verið ötull talsmaður fyrir nýrri nálgun í úrvinnslu áfalla, eða jafnvel endurhvarfs til fornra og gagnreyndra aðferða andlegra hefða og skapandi aðferða til að rannsaka sjálf og heim. Hann lætur sig margvísleg mál varða sem snerta á andlegri heilsu og blæbrigðum mannlífs, en sjálfur hefur hann glímt við margvíslegar áskoranir í kjölfar þess að sonur hans lést með voveiflegum hætti í Hollandi árið 2002. Hann fannst með mikla áverka á höfði en dánarorsök kom aldrei fram. Björn tók þá ákvörðun að fyrirgefa þeim sem voru ábyrgir fyrir dauða Hjálmars sonar hans, en hér fáum við að kynnast sköpunarverkum hans einnig og hugmyndum hans um aðferðir til að halda hinu mikilvæga jafnvægi.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Öll erum við á andlegri vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur eða koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása og Bolli fá til sín ólíkt fólk úr ýmsum áttum, sem þó eiga svo margt sameiginlegt - eins og raunin er með okkur flest - í yfirveguðu spjalli um það sem þroskar manninn þó á hann reyni líka. Sögur af vonum sem veita nýja sýn á trú og tilgang, brot úr veruleikanum sem hafa þá tilhneigingu til að raðast saman þannig að einhvernveginn stækkar allt við það eitt að maður reyni að skilja eitthvað í því. Sögur af kjarki, kærleika og þeirri kyngi sem fylgir því að finna Krist á veginum, hvort sem hann bara kallaði til manns eða reisti óvænt við - þið vitið. Umsjónarmenn eru Arnaldur Máni Finnsson, Ása Laufey Sæmundsdóttir og Bolli Pétur Bollason. Þátturinn er tekinn upp í Stúdíó Stað og gefinn út af Kirkjuvarpi Þjóðkirkjunnar, Katrínartúni, Reykjavík. Upphafsstef og söngur, Þorsteinn Einarsson. Þakkir Einar G

HOSTED BY

Kirkjuvarpið

Frequently Asked Questions

How many episodes does Leiðin okkar allra have?

Leiðin okkar allra currently has 11 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Leiðin okkar allra about?

Öll erum við á andlegri vegferð þar sem áföll, vegtyllur, skóleysi og skringilegar tilviljanir bæði leiða okkur í villur eða koma okkur á sporið; svo við rötum aftur leiðina heim. Ása og Bolli fá til sín ólíkt fólk úr ýmsum áttum, sem þó eiga svo margt sameiginlegt - eins og raunin er með okkur...

How often does Leiðin okkar allra release new episodes?

Leiðin okkar allra has 11 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Leiðin okkar allra?

You can listen to Leiðin okkar allra on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Leiðin okkar allra?

Leiðin okkar allra is created and hosted by Kirkjuvarpið.
URL copied to clipboard!