Á meðal allra sterkustu skákmanna heims - Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson episode artwork

EPISODE · Sep 6, 2023 · 54 MIN

Á meðal allra sterkustu skákmanna heims - Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið að þessu sinni eru tveir af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Þeir voru á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson.Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Friðrik er eini íslenski skákmeistarinn sem lagt hefur Bobby Fischer að velli – ekki einu sinni heldur tvisvar! Árið 1980, þegar Friðrik var 45 ára gamall og var hálfnaður með kjörtímabil sitt sem forseti FIDE var honum boðið að taka þátt í afar sterku skákmóti í Buenos Aires í Argentínu. Meðal keppenda var þáverandi heimsmeistari Anatoly Karpov, Larsen, Timman, Ljubojevic, Najdorf og fleiri sterkir skákmenn. Friðrik var ekki að tvínóna við hlutina heldur sigraði heimsmeistarann, sjálfan Antoly Karpov. Slíkt hafði aldrei áður gerst í sögu FIDE, né hefur það gerst síðar, að forseti heimssambandsins hafi lagt ríkjandi heimsmeistara í kappskák. Í afmælisgrein á vefsíðu Alþjóða skáksambandsins árið 2020 þegar Friðrik varð 85 ára segir að þarna hafi Friðrik bætt enn einu glæsilega höfuðleðrinu í stórt safn sitt sem hann átti fyrir.Jóhann Hjartarson er sá íslenskra skákmanna sem mestum frama hefur náð í skákinni að Friðriki Ólafssyni frátöldum. Með sigri á millisvæðamóti árið 1987 komst hann áfram í undankeppni heimsmeistaramótsins sem haldin var í Kanada árið eftir. Þar tefldi hann einvígi við Viktor Kortsnoj, einn sterkasta skákmann heims á þeim tíma, en Kortsnoj var jafnan kallaður hinn grimmi af kollegum sínum enda tefldi hann ekki til þess að eignast vini. Kortsnoj beitti ýmsum brögðum til að koma ungum andstæðingi sínum úr jafnvægi en hafði ekki erindi sem erfiði - Jóhann sigraði! Jóhann er yfirlögfræðingur Íslenskrar erfðagreiningar.

NOW PLAYING

Á meðal allra sterkustu skákmanna heims - Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson

0:00 54:50

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 54 minutes long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on September 6, 2023.

What is this episode about?

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið að þessu sinni eru tveir af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Þeir voru á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann...

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!