Á spjalli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Íslandsmeistara í skák episode artwork

EPISODE · Aug 23, 2024 · 1H 1M

Á spjalli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Íslandsmeistara í skák

from Við skákborðið · host Útvarp Saga

Það er stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák sem setst niður Við skákborðið að þessu sinn. Þeir Kristján Örn ræða um nýlokið Borgarskákmót sem lauk með sigri Helga, Ólympíuskákmótið sem haldið verður í Búdapest í Ungverjalandi dagana 10.-23. september nk. Þeir töluðu við Björn Ívar Karlsson nýráðinn skólastjóra Skákskóla Íslands sem í morgun fór utan með stóran hóp barna og unglinga á EM ungmenna í Prag í Tékklandi. Um er að ræða 23 keppendur, 4 þjálfara og fjölda aðstandenda eða alls um 60 manns. Þetta mun vera langstærsti hópur sem Skáksamband Íslands hefur sent til keppni á erlenda grund. Helgi sagði frá undirbúningi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar fyrir Ólympíumótið en hann hefur verið iðinn við að keppa á mótum erlendis í sumar, hækkað mikið á skákstigum og hefur Helgi mikla trú á okkar yngsta stórmeistara.Einnig ræddu þeir um flesta af sterkustu skákmönnum heims sem hafa verið að keppa sín á milli að undanförnu, s.s. á Saint Louis at- og hraðskákmótinu sem Alireza Firouzja vann, Sinquefield Cup mótinu sem er í fullum gangi, væntanlegt einvígi Magnúsar Carlsen og Hans Niemann í París í byrjun næsta mánaðar og heimsmeistaraeinvígi núverandi heimsmeistara kínverjans Ding Liren og indverjans Dommaraju Gukesh en það mun fara fram í Singapúr dagana 20. nóvember til 15. desember nk. Það er því hægt að fullyrða að heimsmeistaratitillinn verður áfram í Asíu.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Aug 23, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Á spjalli við Helga Áss Grétarsson stórmeistara og Íslandsmeistara í skák

0:00 1:01:47

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Við skákborðið?

This episode is 1 hour and 1 minute long.

When was this Við skákborðið episode published?

This episode was published on August 23, 2024.

Can I download this Við skákborðið episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!