EPISODE · Jun 16, 2026 · 14 MIN
Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist
from Þetta helst
Barnaverndaryfirvöld fengu margar ábendingar um árabil fyrir 2019 að börn sem dvöldu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði hefðu verið beitt harðræði og ótilhlýðilegum refsingum. Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur fóru meira að segja þangað árið 2015 og sóttu dreng sem talið að hefði verið refsað með óásættanlegum hætti. Starfsmaður hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar taldi meðal annars að hún yrði treg til að nota þetta fósturheimili aftur. Þessar ábendingar leiddu samt ekki til þess að leyfi fósturheimilsins til að taka við börnum yrði afturkallað. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfangsmiklum gögnum um starfsemi fósturheimilsins Gauksstaða í Garði sem geymd eru á Þjóðskjalasafninu. Gögnin ná allt frá árinu 2009 til ársins 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að tæplega 20 börn höfðu lýst reynslu sinni af heimilinu og Barnaverndarstofa kærði málið til lögreglunnar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m