EPISODE · Jul 7, 2026 · 30 MIN
„Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB
from Gímaldið · host Gímaldið
Evrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Þetta segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar.Við aðild EES árið 1994 opnuðust dyr íslenska þekkingarsamfélagsins að umtalsverðum styrkfjárhæðum og hafa Íslendingar verið mjög farsælir með styrkveitingar á undanförnum áratugum.Árin 2021–2027 er áætlað að íslenska ríkið greiði rúmlega 5 milljarða í rannsóknaráætlanir ESB en heimtur Íslendinga við styrkveitingar hafa verið umtalsvert meiri síðustu áratugi. Aðild að ESB myndi litlu breyta í heildarsamhenginu við styrkveitingar en Íslendingar fengju loks sæti við borðið og tækju þátt í ákvarðanatöku sem nú er nær eingöngu í höndum aðildarríkja ESB. Aðild að ESB myndi einnig opna dyr Íslendinga fyrir svokölluðum uppbyggingarsjóðum sem hafa styrkt innviði ESB-ríkja sem standa efnahagslega verr og eru með veika innviði. Íslenska ríkið hefur greitt háar fjárhæðir í þessa sjóði en ekki haft aðgang að þeim. Sjóðirnir hafa veitt styrki til uppbyggingar vegakerfis, atvinnulífs og fleira. Aðild að ESB hefði áhrif á aðra málaflokka eins og mögulega innviðauppbyggingu í landinu. Kostnaður íslenska ríkisins myndi ekki aukast verulega við aðild að ESB miðað við þær fjárhæðir sem nú þegar eru greiddar til styrktaráætlana Evrópusambandsins vegna EES-samningsins. Umsjón: Helga ArnardóttirÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Embed this episode
NOW PLAYING
„Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.