Skip to content
Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd episode artwork

Feb 25, 2026 51 min

Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd

from Víðsjá

Albína Thordarson arkitekt er fædd árið 1939 í Reykjavík og það er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar Sigvaldi Thordarson rak um tíma arkitektastofu á heimili fjölskyldunnar í Hlíðunum og Albína sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða arkitekt. Teikniblöð og umræða um hönnun voru alltaf hluti af lífinu og leiðin lá rakleitt í nám í arkitektúr til Danmerkur eftir að að skyldunáminu lauk. Albína á að baki langan og fjölbreyttan feril þar sem við sögu koma einbýli, fjölbýli, skólar, skrifstofuhúsnæði, orlofshús, kaffihús og leikskólar. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands á árunum 2005–2007 og árið 2015 var hún gerð að heiðursfélaga fyrir ævistarf sitt. Fyrr í vetur hlaut hún heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir framlag sitt til byggingarlistar. Albína er gestur í Svipmynd Víðsjár í dag og við ræðum ferilinn, hús og hönnun en einnig hið byggða umhverfi sem rís í dag. Albína er ekki hrifin af stefnuleysi stjórnvalda í skiplagsmálum og finnst þar vanta alla langtímahugsun. Hún trúir því að húsnæðiskreppan sé ekki bara vegna skorts á íbúðum, heldur einnig vegna skorts á húsnæði sem fólki hugnist sem heimili. Því miður séu gæði ekki lengur sett í fyrsta sæti.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd

0:00 51:34

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 51 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on February 25, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.