PODCAST · arts
Víðsjá
by RÚV
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
Episodes
-
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Natasha S./pistill, Fasteignamartröðin/rýni
„ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari en hún opnaði sýningu á Korpúlfsstöðum um liðna helgi....
-
Sally Rooney, Hugvekja um söfn og samfélag, Ókunnugt fólk/rýni
Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga sem dúkka upp við lestur bókarinnar Hugvekjur um söfn og samfélag eftir Sigurjón Baldur...
-
Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni
Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu, og sem koma við…
more -
Jórunn Viðar og tónlist haustsins
Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða...
-
Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið
Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu Fegursta blómið fléttar hann til dæmis saman textabrotum úr skáldsögum Halldórs Laxness við...
-
Anne Carson og Ölver
Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta. Við kynnumst nýja nóbelskáldinu í dag, ræðum við Ragnar Helga…
more -
Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni
Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var fyrst sett upp í New York árið 2018 en hefur ferðast um heiminn síðan. Ný skáldsaga Steinars Braga, Frelsarinn, kemur út...
-
Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill
Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk frá ferli Nínu til sýnis, en einnig var starfandi listafólki úr hinsegin samfélaginu boðið að vinna verk á sýninguna út…
more -
Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson
Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara, fyrir dansi í naustinu. Síðar nam Skúli bassaleik við Berkley College of Music í Boston en að loknu námi flutti hann til...
-
Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía
„Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Í verkinu sameinast íslenska kabarettsenan senunni frá New York, en bandaríski hópurinn...
-
Víðsjá þrítug
Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
-
Netárásir, Svikasögur, Pollar
Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og Starafugl. Við mælum okkur mót við umsjónarmenn Lestrarklefans sem og Eirík Örn Norðdahl og ræðum þessar árásir. Karl Ágúst...
-
Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga
Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af þessu tilefni, sem kallast - Bríet, blómin og Hannes. Edda Þórarinsdóttir leikkona og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur...
-
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti ræðum við…
more -
Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton
Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá…
more -
Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan
Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru…
more -
Vaka og Varkár
Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja…
more -
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins.…
more -
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós
Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu...
-
Open og sýningarstjórnun
Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá…
more -
Robert le Diable og Breadcrumbs
Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand...
-
Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið.
Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley heimsótti hann á æfingu fyrir tónleikana sem hitti einmitt beint á afmælisdaginn. Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur…
more -
Led Zeppelin, íslenska og gríska.
Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að...
-
Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti
Í fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans. En við munum kynna okkur tónlistarmanninn að gefnu tilefni í þættinum. Nýverið kom út bókin The Sacred and the Profane…
more -
Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian
Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi.…
more -
Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis
Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles...
-
Svipmynd af Magnúsi Jóhanni
Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur nú fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára...
-
Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar
Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, er sýningarstjóri Saumó en hún...
-
Bjarmaband Frosta Fjalars, Olga Tokarczuk og rannsókn á gagnkynhneigð
Það er ekki á hverjum degi sem nær óþekktur listamaður uppgötvast í íslensku samfélagi. Hvað þá maður sem setur mark sitt á listasöguna með einkennandi abstraktverkum sem hann vann í einrúmi í nær fjóra áratugi. Í kvöld opnar í Hafnarborg einkasýning Frosta Fjalars, Bjarmaband. Sýningin veitir...
-
Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð...
-
Roman Signer á Seyðisfirði, Hljóð í ljóði og Tu Ha? Tu Bjö!
Þáttur dagsins er að mestu tileinkaður jazzi, enda Jazzhátíð í Reykjavík að hefjast í kvöld. Við kynnum okkur tvær jazzplötur sem koma út um þessar mundir, útgáfum sem verður fagnað sérstaklega á hátíðinni. Tilrauna- og rannsóknarverkefnið Tu Ha? Tu Bjö! sendi frá sér plötu um liðna helgi....
-
Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band
Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og...
-
Örn Alexander, Sjónarafl og Skriftamál einsetumannsins
Síðustu ár hefur á Listasafni Íslands verið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni í myndlæsi undir yfirskriftinni Sjónarafl. Þar fá nemendur og áhugasamir spurningar og lykla sem opna dyr að heimi myndlistar fyrir alla að njóta. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslu- og útgáfustjóri Listasafns…
more -
Margrét Hallgrímsdóttir í Viðey og Hist Highness
Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226, en klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar, Snorra Sturlusyni og Þorvaldi Gissurarsyni. Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og fyrrum þjóðminjavörður, fór fyrir fyrstu fornleifarannsókninni á minjum...
-
Jarðvegur Önnu Rúnar, Mamma mjöll og draugapennar
Á einkasýningu Önnu Rúnar Tryggvadóttur, Jarðvegi, taka á móti gestum fagurlega mótaðar vatnslitamyndir, órætt, líkamlegt landslag sem rennur til og ofan í jarðveginn. Að baki býr leynifélag kvenlegra gilda og viska sem byggir á tilfinningu, alúð og reynslu frekar en á hlutlausri, fjarlægri...
-
Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill
Fyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í...
-
Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi
Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins...
-
Davíð Þór á Gljúfrasteini
Í Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og...
-
Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker
Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að…
more -
Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill
Umbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í...
-
Brenninetla, Villistrákar og Henry Threadgill
Við mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum nú í vor og vinnur nú hörðum höndum að gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á...
-
Fuglamál, skáldskaparlist á Grænlandi og G. Weller
Marta María Jónsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður, sendi frá sér skáldsögu nú á dögunum sem nefnist Fuglamál. Bókin er fjölskyldusaga sem segir frá ungu pari sem eignast nokkuð óvenjulegt barn, Ídu, sem talar tungum, fer í undarleg flogaköst og á sér ímyndaðan vin, fuglinn Pótó. Við ræðum við...
-
Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey
Hverafugl kallast ný hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með...
-
Smáborg, háborg, Endurlit Hallsteins Sigurðssonar og listagyðjan
Um næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum...
-
Kichin, Njáluhöfundur og Himna
Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í…
more
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
HOSTED BY
RÚV
CATEGORIES
Loading similar podcasts...