Skip to content
Árið er 2002 - seinni hluti episode artwork

Nov 1, 2023 1 hr 50 min

Árið er 2002 - seinni hluti

from Árið er

Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni. Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta borðar yfir sig af bleikum sjeik. Apparat Organ Quartett spilar rokk og ról í steríó, Emilíana Torrini leggur Gollum orð í munn og Santiago vekur bjartar vonir. Búdrýgindi bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Einar Tönsberg útskrifast með Lorien í Englandi og Skárren ekkert breytist í SKE. Í svörtum fötum fer sigurför um landið og spilar og syngur dag sem dimma nátt en Sign leitar að rauðu ljósi. Rappbylgja skellur á landinu. Bæjarins bestu halda sig í klúbbnum, Móri segist vera atvinnukrimmi og XXX Rottweilerhundar skulda. Múm föndrar grasi vaxin göng, KK syngur í paradís og englar himins grétu í dag en ástin vex á trjánum hjá Valgeiri Guðjóns. Meðal viðmælenda í 24. þættinum, þar sem haldið verður áfram að fjalla um íslenska tónlistarárið 2002, eru Sölvi Blöndal, Emilíana Torrini, Bubbi Morthens, Hera Hjartardóttir, Haukur Heiðar Hauksson, Franz Gunnarsson, Ágúst Bent Sigbertsson, Erpur Eyvindarson, Kjartan Kjartansson, Einar Örn Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Frank Hall og Kristján Kristjánsson. Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Árið er 2002 - seinni hluti

0:00 1:50:00

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Frequently asked questions

How long is this episode of Árið er?

This episode is 1 hour and 50 minutes long.

When was this Árið er episode published?

This episode was published on November 1, 2023.

Can I download this Árið er episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.