PODCAST · music
Árið er
by RÚV
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Episodes
-
Árið er 2020 - þriðji hluti
Hjaltalín snýr aftur, Moses Hightower flytur lyftutónlist, Hildur Guðna vinnur öll verðlaun sem hægt er að vinna, Ultraflex dúóið á plötu ársins í raftónlist og Sólstafir bestu rokkplötu ársins. Bæði Sycamore Tree og Krummi feta kántrýslóð, útrás Reykjavíkurdætra heppnast vel, Of Monsters & Men...
-
Árið er 2020 - annar hluti
Önnur plata GDRN kemur út, Baggalútur skilar kveðju, Friðrik Ómar & Jógvan lifa sveitalífi og Luigi upplifir breytta tíma. Gugusar klárar grunnskólann með fyrstu plötunni, Laufey Lín sendir frá sér sitt fyrsta lag, Rakel Mjöll fer með Dream Wife í 18. sæti breska listans og Stuðmenn halda upp á...
-
Árið er 2020 - fyrsti hluti
Bríet á vinsælasta íslenska lag ársins, Margrét Rán syngur með GusGus, Krassasig brýtur heilann, Jío Pé & Króli óska sér og þjóðin syngur heima með Helga. Ásgeir Trausti er sáttur við lífið og tilveruna, Daði Freyr vinnur Söngvakeppnina en fær ekki að fara í Eurovision, Auður sendir frá sér…
more -
Árið er 2019 - seinni hluti
Auður er söngvari og flytjandi ársins, Floni upplifir falskar ástir, Júníus Meyvant fer yfir landamærin og Fannar í Hipsumhaps syngur um lífið sem hann langar í. Hildur sér ljósið í lagahöfundabúðum, Bríet stundar dagdrykkju bláedrú, Lára Rúnars finnur rótina, Gróa er í glimmerheimi og Une Misére...
-
Árið er 2019 - fyrri hluti
Hatari veldur usla í Eurovision, Huginn og Herra snúa bökum saman og Of Monsters & Men ná topp 10 í Bandaríkjunum í þriðja sinn. Vök er í myrkrinu með poppplötu ársins, Cell7 snýr aftur með hip-hop plötu ársins og Grísalappalísa kveður með rokkplötu ársins. Helgi Hrafn stendur á krossgötum…
more -
Árið er 2018 - seinni hluti
GDRN landar fernum tónlistarverðlaunum, Flóni ákallar guð og Bríet fagnar 19 ára afmæli með plötu. ClubDub skýst upp á stjörnuhimininn, Reykjavíkurdætur reppa heiminn og Kælan mikla hitar upp fyrir The Cure. Bagdad bræður mala í kassanum, Teitur Magnússon ornar sér, Dr. Spock klæðist leðri og…
more -
Árið er 2018 - fyrri hluti
Birnir fer út í geim, Jói Pé og Króli fara í átt að tunglinu, Huginn er eini strákurinn, Herra Hnetusmjör er hetjan úr hverfinu og Aron Can ætlar aldrei heim. Prins Póló notar þriðja kryddið, Berndsen flytur tregafullt fullorðinspopp og haustvindar blása um Svavar Knút. Bræðurnir Friðrik Dór og…
more -
Árið er 2017 - þriðji hluti
Sturla Atlas syngur um 101 Boys, Floni fer út að leika, Birnir mætir til leiks, Joey Christ fer sóló og Joey Cypher er lag ársins. Mammút sópar til sín verðlaunum, Hatari heillar og hneykslar, Legend finnur hljóminn sinn, Milkhouse fær sér hunang og Salka Sól grenjar með Baggalúti. HAM syngur um...
-
Árið er 2017 - annar hluti
Páll Óskar bankar upp á hjá aðdáendum, Snorri Helgason vinnur með íslenskan tónlistararf, Dísa Jakobs syngur með Stuðmönnum á meðan Ragga Gísla semur þjóðhátíðarlag og Milkywhale syngur um paradísarfugla. Björk skrifar ástarbréf til bjartsýninnar, Birgir Steinn springur út á Spotify og Auður...
-
Árið er 2017 - fyrsti hluti
Herra Hnetusmjör er KÓPBOI, Aron Can er með fulla vasa fjár, Bubbi Morthens skilar skömminni en Egill Ólafsson kemur af fjöllum. Guðrún Ýr Eyfjörð leggur fótboltaskóna á hilluna og tónlistarkonan GDRN tekur við, Axel Flóvent flytur til Hollands, Högni Egilsson fer sóló og það fjölgar í Kiriyama...
-
Árið er 2016 - seinni hluti
Aron Can þekkir stráginn, GKR fær sér morgunmat, Blaz Roca fýrar upp, XXX Rottweiler hundar koma með neglu, Emmsjé Gauti á Djammæli og Quarashi fagnar 20 ára afmæli. Júníus Meyvant gefur út stóra plötu, Reykjavíkurdætur valda fjaðrafoki, Elíza Newman fer í kollhnís og Hildur fer í göngutúr....
-
Árið er 2016 - fyrri hluti
Kaleo er mest spilaða hljómsveit í heimi, Emilíana Torrini gefur út plötu með belgískri sveit, Hórmónar bera sigur úr býtum í Músíktilraunum, Sturla Atlas gefur út sína þriðju plötu, Retro Stefson heldur lokatónleika en Mánar snúa aftur. Morðingjarnir djamma, CeaseTone horfir á björtu hliðarnar,...
-
Árið er 2015 - seinni hluti
Björk opnar inn í hjarta, Hljómsveitin Vök fer í hringi, Reykjavíkurdætur vekja athygli og umtal, Emmsjé Gauti og strákarnir eru á allra vörum, Sturla Atlas hamrar járnið, Gísli Pálmi dregur ekkert undan. Dikta gerir plötu í Þýskalandi, Vintage Caravan spilar endalaust, Vax framleiðir eitt lag á...
-
Árið er 2015 - fyrri hluti
Of Monsters & Men nær þriðja sæti í Bandaríkjunum, góðir hlutir gerast hægt hjá Júníusi Meyvant, Axel Flóvent og Máni Orrason slá í gegn og Úlfur Úlfur brennir allt. Bubbi syngur um konur, John Grant fær gráa fiðringinn, Friðrik Dór skálar fyrir þér og Sóley syngur yfir slagverkslúppur....
-
Árið er 2014 - seinni hluti
Amabadama fer á flug, GusGus fer til Mexíkó, Jón Jónsson gefur allt sem hann á og Samaris sendir frá sér Silkidranga. Oyama fer úr skóglápi yfir í sveimrokk, Vio tríó vinnur Músíktilraunir, Hjaltalín fer á Hraunið og Júníus Meyvant er bjartasta vonin. Pollapönkarar fara fordómalausir í…
more -
Árið er 2014 - fyrri hluti
Prins Póló hamstrar sjarma á plötu ársins, Hafdís Huld semur beint frá býli, Kiasmos dúóið heldur áfram landvinningum og Ólafur Arnalds vinnur Bafta-verðlaun. Hermigervill semur út um allan heim, Low Roar breytist í tríó, Ylja vinnur með Shahzad Ismaily og FM Belfast heldur uppi stuðinu. Nýdönsk...
-
Árið er 2013 - þriðji hluti
John Grant tekur ástfóstri við land og þjóð, Raggi Bjarna kemur við í Þjóðarbókhlöðunni, Cell 7 snýr aftur eftir 16 ára hlé og ástralska stórstjarnan Kylie Minogue syngur með Múm. Snorri Helgason breytist í hljómsveit, Ljótu hálfvitarnir syndga og syngja um athyglisprest, Skálmöld stígur á svið í...
-
Árið er 2013 - annar hluti
Hljómsveitin Kaleo slær í gegn, Sin Fang túlkar bergmál sumarsins, Lay Low talar um veðrið en Grísalappalísa spyr hver er ég? Vök vinnur Músíktilraunir, hljómsveitin 1860 rafmagnast, Samaris syngur um tunglið góða en Sigur Rós hangir á bláþræði á ísjaka og semur tónlist fyrir The Simpsons. Ólafur...
-
Árið er 2013 - fyrsti hluti
Mammút fær andann yfir sig, mamma þarf að djamma með Baggalút, Leaves sér okkur í síðbjarmanum og Jón Jónsson skrifar undir samning hjá Epic Records. Emilíana Torrini flytur heim, Of Monsters & Men klárar tveggja ára tónleikaferð, Bubbi Morthens trúir á ljósið, Dr. Gunni tryllir þjóðina með...
-
Árið er 2012 - þriðji hluti
Moses Hightower tekur stutt skref og fer upp á háa C, Memfísmafían sötrar síðasta móhítóinn um blánótt á Kúbu og Formaður Dagsbrúnar ummyndast í Tilbury. Sigur Rós breytist úr kvartett í tríó, Múgsefjun fær ekki nóg, Magni er á heimaslóðum, Egill Ólafsson kynnir Finnsk íslenska vetrarbandalagið…
more -
Árið er 2012 - annar hluti
Retro Stefson er hampað sem líflegasta bandi landsins og Ekki vanmeta Pascal Pinon, Ylja flytur angurværa þjóðlagatónlist, Kiriyama Family heillar landann með grúvknúnu mjúkpoppi og Bubbi segir sögur úr þorpinu. Þórunn Antonía og Berndsen rugla saman reytum sínum, Friðrik Dór er vélrænn, The...
-
Árið er 2012 - fyrsti hluti
Ásgeir Trausti brýtur blað í íslenskri tónlistarsögu, Raggi Bjarna týnir tímanum með Lay Low, Lára Rúnars sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu og Obja Rasta lofar gjafir jarðar. Steed Lord hefur nóg fyrir stafni vestanhafs, Gréta og Jónsi fara í Eurovision, Biggi Hilmars fær heimþrá, Retrobot ber...
-
Árið er 2011 - þriðji hluti
Pétur Ben og Eberg rugla saman reytum sínum, Kjarr bíður eftir sumrinu, Sóley Stefáns slær í gegn á Youtube og sólóverkefnið Sin Fang Bous breytist í hljómsveitina Sin Fang. Hljómsveitin Reykjavík spilar melódísk lög undir glitrandi gítarhaug, Bubbi semur og syngur sálartónlist hljómsveitin, HAM...
-
Árið er 2011 - annar hluti
Það kemst enginn með tærnar þar sem Mugison hefur hælana, Sólstafir rokka í stinningskulda niðri í fjöru og Björk fer áfram ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun. Lay Low syngur á íslensku á sinni þriðju plötu, Daníel Ágúst fer í bingó, Nýdönsk er í nánd og GusGus flokkurinn gefur út sína áttundu...
-
Árið er 2011 - fyrsti hluti
Of Monsters & Men gerir það gott með sinni fyrstu plötu, Samaris ber sigur úr býtum Músíktilraunum og Jón Jónsson syngur sig inn í hug og hjarta íslensku þjóðarsálarinnar. Snorri Helgason heillast af vetrarsólinni, Hjálmar rafvæðast, Ragnheiður Gröndal nær áttum og Toggi flettir í dagbókinni…
more -
Árið er 2010 - þriðji hluti
Prins Póló fer niðrá strönd, Jónsi fer sóló, Ensími gefur heilræði í aldanna ró og allir eru að fá sér með Blaz Roca og Ragga Bjarna. Hvanndalsbræður vilja vera vinsælir og frægir, Friðrik Dór er alveg með'etta en Pollapönkarar hringja á vælubílinn. Elíza Newman kennir útlendingum að segja...
-
Árið er 2010 - annar hluti
Valdimar brotlendir yfirgefinn í Undralandi, Retro Stefson fer til Kimbabwe, Hjálmar ganga alla leið en Rökkurró er í öðrum heimi. Hljómsveitin Lifun gefur fögur fyrirheit með hörku djöfuls fanta ást, Sálin hans Jóns míns er fyrir utan gluggann þinn og Kalli tekur síðustu lestina heim. Orri…
more -
Árið er 2010 - fyrsti hluti
Hamingjan er hjá Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar, Bjartmar og Bergrisarnir fara í gallann með Allan en Moses Hightower býr til börn í bílalest út úr bænum. Ellen Kristjáns og Pétur Ben liggja dreymandi á ströndinni, Hera Björk talar tungum, Biggi Bix er eldfimur, Rúnar Þóris stendur...
-
Árið er 2009 - þriðji hluti
Hjálmar fara til Jamaica, Ragnheiður Gröndal syngur íslensk þjóðlög og Ingó og Veðurguðirnir bjóða á gestalista. Á móti sól sér þig kannski seinna, Jógvan og Friðrik Ómar syngja vinalög og Lára Rúnars kemur á óvart. Lights On The Highway siglir um á pappírsbát, Ljótu hálfvitarnir finna lukkutroll...
-
Árið er 2009 - annar hluti
Dikta þakkar fyrir sig, Baggalútur fer á slóðir Vestur-Íslendinga, Eberg tekur eitt skref í einu og Feldberg dúettinn slær í gegn. Hafdís Huld syngur um franskan ofurhuga, Elíza Newman tekur upp í London, hljómsveitin Leaves fær sparkið og gerist plötuútgefandi og Ívar Bjarklind er með nesti og...
-
Árið er 2009 - fyrsti hluti
Hjaltalín sópar til sín verðlaunum, Jóhanna Guðrún stelur senunni í Moskvu og Árstíðir syngja sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Söngfuglinn Nanna Bryndís Hilmarsdóttir kveður sér hljóðs og Margrét Kristín Sigurðardóttir fabúlerar í fjórða sinn á plötu. Helgi Hrafn Jónsson dundar sér í…
more -
Árið er... Músíktilraunir
Rúmlega 40 ára sögu Músíktilrauna eru gerð skil í tali og tónum í þessum tæplega tveggja tíma langa þætti sem inniheldur brot úr útvarpsþáttaröðinni Árið er. Stiklað er á stóru og meðal þeirra sigursveita Músíktilrauna sem fjallað er um eru DRON, Dúkkulísur, Greifarnir, Kolrassa krókríðandi…
more -
Árið er 2008 - þriðji hluti
Sigur Rós spilar endalaust, Dísa fellur í freistni, Jeff Who óskar okkur öllum til hamingju og Buff þakkar kærlega fyrir. Lay Low gefur út aðra plötu sína, Bubbi syngur um brúnu augun þín, Memfismafían tekur upp barnaplötu og Sprengjuhöllin sendir sínar bestu kveðjur. Blaz Roca rappar um stórasta...
-
Árið er 2008 - annar hluti
KK rær út á Æðruleysinu, Dr. Spock semur sápuóperu, Mammút er með geimþrá, Ný Dönsk klifrar upp turninn og Memfismafían lætur til sín taka. FM Belfast heldur partý, Geirfuglarnir snúa aftur, Sálin fagnar 20 ára afmæli, Motion Boys dansa inn í hrunið, Steintryggur blandar tónlist úr öllum...
-
Árið er 2008 - fyrsti hluti
Emilíana Torrini er alþjóðleg stórstjarna, Björk leggur náttúrunni lið, Ragnheiður Gröndal nær áttum á ný, en hljómsveitin Hraun heldur hamingjuleitinni áfram. Retro Stefson gefur út fyrstu plötuna sína, Múgsefjun temur hagsmunatíkina, Helgi Björns kemur ríðandi að austan og Ingó & Veðurguðirnir...
-
Árið er 2007 - seinni hluti
Mugison stofnar hljómsveit, Hjálmar hætta við að hætta og Jónas Sig dansar þar sem malbikið svífur. Jakobínarína vekur bjartar vonir, Hljómsveitin Hraun segir ástarasögu úr fjöllunum og Silvía Nótt klórar í bakkann. B.Sig gefur út sína fyrstu og einu plötu, Sometime er með tromp á hendi, Mínus...
-
Árið er 2007 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Páll Óskar gerir allt fyrir ástina, Magni er í hæstu hæðum, Sprengjuhöllin er í sambandi, Hjaltalín er bjartasta vonin og Elíza útdeilir hjartagulli. Björk hvetur smælingja heimsins til að lýsa yfir...
-
Árið er 2006 - seinni hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Magni fer í Rockstar Supernova, Hafdís Huld gerir það gott á Englandi, Pétur Ben sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu og Kaninn kveður. Ragnheiður Gröndal er með þér, Fabúla svífur um á beiku skýi,...
-
Árið er 2006 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sylvía Nótt hneykslar Evrópubúa, íslenskt lag í fyrstu iPhone auglýsingunni, Brain Police ræður sænskan upptökustjóra og Nylon fer í útrás. Sigur Rós túrar um landið, Rás 2 rokkar hringinn, Ampop...
-
Árið er 2005 - seinni hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hljómsveitin Jeff Who stimplar sig inn með barfugunni , Hjálmar skipta tveimur Svíum inn á, Leaves er undir álögum og Sigur Rós segir TAKK. Bubbi Morthens gerir upp fortíðina, Baggalútur gefur út...
-
Árið er 2005 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Emilíana Torrini snýr aftur, Ampopdúettinn breytist í tríó og Dikta er í hamingjuleit. Mugison & Hjálmar taka höndum saman, Vínyll gefur loksins út plötu og Orri Harðar öðlast aftur trú. Lights On…
more -
Árið er 2004 - seinni hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hjálmar heilla með seiðandi reggítónum, partýhetjan Love Guru slær í gegn, það eru gleðitímar hjá Kalla Bjarna og Stuðmenn eru í takt við tímann. Nylon er alls staðar, Raggi Bjarna er í flottum…
more -
Árið er 2004 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Mugison semur lag ársins með vini sínum Pétri Ben, Trabant treður upp á Bessastöðum, Ske er í góðum fíling og Eivör vinnur með Vestur-íslenska tónlistarmanninum Bill Bourne. Björk syngur á...
-
Árið er 2003 - seinni hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Hljómar snúa aftur, Maus og Botnleðja tala tungum og Eberg kveður sér hljóðs. Mínus umpólast, Barði í Bang Gang er sinnar eigin gæfu smiður, Eivör slær í gegn hjá frændum sínum og Sálin frumsýnir...
-
Árið er 2003 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Birgitta Haukdal opnar hjarta í Eurovision, Botnleðja syngur Júróvísu og Dr. Gunni býður upp á snakk fyrir pakk. Emilíana Torrini semur topplag fyrir Kylie en Ragnheiður Gröndal trónir á toppnum á...
-
Árið er 2002 - seinni hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Quarashi treður upp á tónleikum á hverjum degi og Jinx heillar amerísk ungmenni. Bubbi vaknar við Gróttu með sól að morgni, Hera Hjartardóttir flýgur yfir hálfan hnöttinn og stelur senunni en Dikta...
-
Árið er 2002 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn...
-
Árið er 2001
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Svala Björgvins skrifar undir risasamning í Ameríku og Leaves fær samningstilboð frá stærstu nöfnunum í tónlistarbransanum. Björk selur tvær milljónir af Vespertine, Sigur Rós fer umhverfis jörðina á...
-
Árið er 2000
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Útrás Sigur Rósar fær fljúgandi start og Björk er tilnefnd til Óskarsverðlauna. Sálin hyggur á söngleik, Sóldögg upplifir kraftaverk, Utangarðmenn snúa aftur en lífið bíður ekki eftir Selmu Björns....
-
Árið er 1999
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Ágætis byrjun hjá Sigur Rós vekur áhuga tónlistaráhugamanna út um allan heim. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður til og Quarashi heillar ameríska bransakarla. Emilíana Torrini gerir plötu fyrir...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
HOSTED BY
RÚV
CATEGORIES
Loading similar podcasts...