Artemis II tunglverkefnið var sviðsett episode artwork

EPISODE · Apr 21, 2026 · 27 MIN

Artemis II tunglverkefnið var sviðsett

from Álhatturinn

Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnustu sviðsetningu og blekkingarleik sögunnar?Opinbera sagan segir að Artemis 2 sé mönnuð geimferð, en hvers vegna var henni skotið á loft á sjálfan 1. apríl? Er skuggavaldið hreinlega að hlæja framan í okkur á sjálfan alþjóðlega hrekkjadeginum? Strákarnir rýna í myndatökur úr hylkinu sem sýna undarleg sjónarhorn þar sem enginn hefði átti að vera; hver hélt  á myndavélinni og „panna“ yfir á jörðina með svona mikilli nákvæmni ef allir geimfararnir voru í mynd? Voru hinir meintu geimfarar bara leikarar frá  „Central Casting“ eða raunverulegir geimfarar? Strákarnir rýna í feril Christina Koch og velta því fyrir sér hvernig hún hefur tíma til að vera bæði geimfari og leikkona með IMDb-prófíl.Hvers vegna er háskerpumyndin svona „fullkomin“ á köflum en líkist svo camcorder-upptöku frá 1998 þegar lendingin í hafinu á sér stað? Hvar er gufan og sjóðandi vatnið þegar hylkið, sem á að hafa náð 5.000 gráðu hita, lendir í sjónum? Og hvernig geta starfsmenn strandgæslunnar snert hylkið með berum höndum án þess að brenna sig? Er NASA hreinlega hætt að reyna að fela grænskjáinn og CGI-brellurnar?Svo eru það hin einkennilegu mismæli og framkoma geimfaranna á blaðamannafundum. Hvers vegna verða þeir flóttalegir þegar spurt er út í stjörnurnar eða Van Allen geislunarbeltið? Hvað á konan við með setningunni “þið eruð áhöfnin”(e:you are the crew)? Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í Artemis-áætlunina. Þeir ræða meintar myndatökur Stanley Kubrick, týndu segulböndin og spyrja hversu lengi er hægt að halda úti þessu sjónarspili þegar eldflaugarnar sjást bókstaflega „beygja“ út af leið og hverfa út í hafið í stað þess að fara upp í himinhvolfið.Þetta CGI-geimfarar og svo margt, margt fleira í Álhattinum.Support the showUM ÁLHATTINNÍ þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka.Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 21, 2026

Embed this episode

Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnu...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

Ready to play

Artemis II tunglverkefnið var sviðsett

0:00 27:55

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Álhatturinn?

This episode is 27 minutes long.

When was this Álhatturinn episode published?

This episode was published on April 21, 2026.

Can I download this Álhatturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!