PODCAST · arts
Álhatturinn
by Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn
Episodes
-
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern...
-
P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1
Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í...
-
Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi
Krabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hvernig getur ein stök stökkbreytt fruma endað sem svæsið meinvarp í...
-
Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til
Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi...
-
Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu
Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér...
-
Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7.…
more -
NBA deildin í körfubolta er töluvert rigguð
NBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint á síðustu öld og mögulega áttir þú eitthvað af körfuboltamyndum....
-
Virginia Giuffre (fórnarlamb Jeffrey Epstein) var sjálfsmyrt
Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St...
-
Fæðuráðleggingar yfirvalda snúast ekki um heilsu þína heldur gróða stórfyrirtækja
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu…
more -
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir...
-
Dauði Elvis Presley var sviðsettur
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar…
more -
Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk? Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir?...
-
Úrslitum í handbolta er reglulega hagrætt með vitneskju og samþykki Alþjóða Sambandsins
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn,...
-
Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, var dáleiddur af CIA til að fremja morðið, Zoolander style
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum. Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann…
more -
Valdastéttin mótar menntakerfið til að framleiða undirgefna borgara
Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt? En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo…
more -
Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð…
more -
Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda...
-
Mandela áhrifin eru raunveruleg, og eru ekki afleiðing sameiginlegra falsminninga
Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna. Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er...
-
Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um...
-
Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi
Hvaða rákir eru þetta sem standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn? Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er…
more -
Paul McCartney lést í bílslysi árið 1966 og var skipt út fyrir loddara
Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar. Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í...
-
Nýlenduherrar létu granda flugvél Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna
Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur…
more -
Jörðin er flöt
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga? Ef...
-
Valdarán á Seðlabanka Bandaríkjanna leiddi af sér algjöra stjórn á landinu
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt....
-
Stórfótur (e. Bigfoot) er til
Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af...
-
Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap)
Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans. Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með...
-
Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem...
-
Tæknin til að klóna fólk er raunveruleg og stjörnum & stjórnmálafólki hefur verið skipt út
Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor…
more -
WEF stefna á hinu stóru endurræsingu (e. Great Reset) á fölskum forsendum
Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl. En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum). Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls...
-
Hamskiptandi eðlufólk er meðal vor og gegnir áhrifastöðum í öllum krókum og kimum samfélagsins
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans. En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það? Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim...
-
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 var sviðsett
Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á...
-
Eigendur Manchester City hafa óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr…
more -
Handritshöfundar The Simpsons eru með dulda vitneskju um atburði framtíðarinnar, sem þau setja í þættina sína
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn...
-
Háþróuðum örbylgjuvopnum var beitt til að kveikja skógareldana á Maui
Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna? Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað…
more -
Díana prinsessa var ráðin af dögum að undirlagi Bresku konungsfjölskyldunnar
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema...
-
Leynireglan Illuminati er raunveruleg og stjórnar heiminum á bakvið tjöldin ▲
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum? Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum…
more -
Titanic var grandað vísvitandi af klíku auðjöfra sem svífast einskis
Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn? Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu...
-
P1: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 1
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra. Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim. Eru...
-
Avril Lavigne er dáin eða horfin og staðgengill hennar er loddari
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn…
more -
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2
Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að...
-
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar
Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um...
-
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef
Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know. Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og...
-
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu
Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða...
-
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2
Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta…
more -
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn....
-
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4
Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk...
-
Guðjón Heiðar er Psyop
Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í…
more -
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur
Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings…
more -
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2
Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd...
-
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1
Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum.
Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥
➡️ Áskriftarhlekkurinn:
https://pardus.is/alhatturinn
HOSTED BY
Álhatturinn
CATEGORIES
Loading similar podcasts...