Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn episode artwork

EPISODE · Feb 27, 2025 · 55 MIN

Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn

from Víðsjá

Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una Jónsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræði er ein þeirra sem halda utan um málþingið, en hún vinnur að rannsóknum á sviði svokallaðra brjálaðra fræða, fræðasviðs sem er í mótun og fjallar um sögu, menningu, pólitík og baráttumál þeirra sem glíma við andlegar áskoranir. Við tökum á móti þeim Gunnhildi og Steindóri hér rétt á eftir og heyrum nánar af þessu nýja fræðasviði, málþinginu og skrifunum. Í lok þáttar fáum við líka innsýn inn í líf tveggja tónlistarkvenna sem áttu það sömuleiðis sameiginlegt að glíma við ytri og innri mótstöðu. Tilfinninganæmið gerði tónlistarkonurnar Mary Margaret O'Hara og Lauryn Hill berskjaldaðar fyrir hörku tónlistarbransans, sem mögulega varð til þess að tónlistarferill þeirra varð ekki langur. Í síðasta pistli sínum af fjórum fjallar Jelena Ciric um þær Hill og O´Hara, sem eiga það sameiginlegt að hafa aðeins gefið út eina plötu. Og um miðbik þáttar rifjum við upp umfjöllun um allt annars konar hljómplötu. Sú er glæný og tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Halla Harðardóttir hitti tónskáldið Guðmund Stein Gunnarsson síðasta haust og ræddi við hann um geislaplötuna Stífluhringurinn, og við rifjum upp þá umfjöllun í þætti dagsins. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir og Halla Harðardóttir

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 27, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn

0:00 55:18

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 55 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on February 27, 2025.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!