Bandaríkin og Venesúela, Úkraína og svar NTÍ við bréfi ráðuneytis episode artwork

EPISODE · Dec 12, 2025 · 20 MIN

Bandaríkin og Venesúela, Úkraína og svar NTÍ við bréfi ráðuneytis

from Spegillinn

Náttúruhamfaratrygging Íslands óttast að það skaði bæði traust og trúverðugleika hennar ef hún þurfi að sækja bætur til sinna endurtryggjenda vegna kostnaðar við björgunaraðgerðir í Grindavík, eins og hugmyndir fjármálaráðuneytisins ganga út á. Þetta kemur fram í svarbréfi stjórnar stofnunarinnar sem hún sendi ráðuneytinu í september. Mörg ár hefði tekið að byggja upp þetta samband og traust - ekki síst í ljósi náttúruhamfaranna í Grindavík, iðgjöld myndu hækka og erfitt yrði fyrir Náttúruhamfaratryggingu að endurnýja eða finna ný tryggingafélög. Bandaríkjastjórn hefur verið með Venesúela og stjórnvöld þar - og alveg sérstaklega forsetann Nicolás Madúró - í sigtinu síðustu mánuði, beitt miklum þrýstingi og jafnvel ofbeldi, samanber 22 árásir á báta meintra eiturlyfjasmyglara sem hafa kostað minnst áttatíu mannslíf frá því í september, feikistóra og öfluga flotadeild sem lónar rétt utan landhelgi Venesúela, bein áköll um afsögn forsetans og stjórnar hans og hótanir um alvarlegar afleiðingar ef hann situr áfram. Afar flókin staða er uppi í viðræðum um vopnahlé og frið í Úkraínu þessa dagana. Stjórnvöld í Hvíta húsinu eru að melta tillögur sem Úkraínuforseti og þrír aðrir evrópskir leiðtogar sendu fyrr í vikunni - og vangaveltur hafa verið uppi um hvort stjórnvöld í Kyiv fallist á að gefa eftir landssvæði í austurhluta Úkraínu, þar sem Bandaríkjastjórn vill koma á hlutlausu svæði.

NOW PLAYING

Bandaríkin og Venesúela, Úkraína og svar NTÍ við bréfi ráðuneytis

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on December 12, 2025.

What is this episode about?

Náttúruhamfaratrygging Íslands óttast að það skaði bæði traust og trúverðugleika hennar ef hún þurfi að sækja bætur til sinna endurtryggjenda vegna kostnaðar við björgunaraðgerðir í Grindavík, eins og hugmyndir fjármálaráðuneytisins ganga út á....

Can I download this Spegillinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!