EPISODE · Jun 22, 2026 · 16 MIN
Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu
from Þetta helst
Kona sem tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í landinu var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fór fram í Háskóla Íslands. Konan heitir Moira Millán og tilheyrir ættbálki sem heitir Mapuche. Moira hefur setið í fangelsi vegna þessarar baráttu sinnar og segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun. Hún býr í bæ sem heitir Corcovado í Patagoniu. Þetta helst ræddi við hana um baráttuna við Javier Milei, forseta Argentínu, sem meðal annars vill breyta lögum um jökla landsins til að heimila námuvinnslu þar. Einnig er rætt við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku, um stöðuna í Argentínu og baráttu frumbyggja landsins við argentínska ríkið. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
NOW PLAYING
Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 2, 2026 ·47m
Jul 1, 2026 ·59m
Jun 26, 2026 ·26m
Jun 25, 2026 ·63m
Jun 25, 2026 ·56m