Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands episode artwork

EPISODE · Mar 20, 2025 · 20 MIN

Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands

from Spegillinn

Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra eignaðist barn 23 ára, með sextán ára pilti, sem heldur því fram að sambandið hafi hafist þegar hann var fimmtán ára. Hann segir hana hafa leitt trúarlegt unglingastarf, sem hann tók þátt í. Fyrir viku fékk forsætisráðuneytið erindi á sitt borð, þar sem forsætisráðherra er upplýstur um málavexti. Sendandi þess segist hafa fengið á sama tíma upplýsingar um að öll erindi væru trúnaðarmál. Ásthildur Lóa fékk hins vegar upplýsingar um inntak þess og hver það var sem sendi það. Hún bæði hringdi í viðkomandi og mætti síðan á heimili hans óboðin. Ævar Örn Jósepsson ræðir við stjórnmálafræðingana Evu Heiðu Önnudóttur og Eirík Bergmann Einarsson. Landgrunn Íslands á Reykjaneshrygg nær 576 sjómílur frá grunnlínu langt út fyrir þær tvö hundruð sjómílur sem efnahagslögsagan nær. Strandríki eiga öll landgrunn allt að 200 sjómílum frá grunnlínum en að uppfylltum ákveðnum skilyrðum geta þau átt landgrunn þar fyrir utan. Í síðustu viku staðfesti landsgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna íslenskt landgrunn á Reykjaneshrygg eftir nærri aldarfjórðungs aðdraganda. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Birgi Hrafn Búason, deildarstjóra á laga og stjórnsýsluskrifstofu utanríkisráðuneytisins, sem leiddi sendinefnd Íslands í lokahnykk þessarar vinnu sem staðið hefur frá aldamótum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 20, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands

0:00 20:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Spegillinn?

This episode is 20 minutes long.

When was this Spegillinn episode published?

This episode was published on March 20, 2025.

Can I download this Spegillinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!