Bernd Ogrodnik / Svipmynd episode artwork

EPISODE · Mar 25, 2026 · 52 MIN

Bernd Ogrodnik / Svipmynd

from Víðsjá

Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn að búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf að verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í að æfa sig á hljóðfæri, allt þar til að hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þrengdu að og hann ákvað að leggja land undir fót. Við tóku nokkur ár af ferðalögum um heiminn og ýmiskonar lærdómur. Allt þar til hann endaði á Íslandi og ákvað að hann væri í raun brúðugerðamaður. Í dag er hann heimsþekktur brúðugerðamaður og margverðlaunaður fyrir sýningar sínar. Bernd trúir staðfastlega á umbreytingar og heilunarmátt listarinnar og þegar öll leikhús lokuðu í Covid ákvað hann að breiða boðskapinn út á annan hátt. Hann stofnaði brúðugerðaskólann Worlds of Puppets á netinu en það verkefni hefur óvænt sprungið út og tekur í dag nær allan hans tíma. Hann settist einnig niður á þessum tímamótum og skrifaði bók. Við heimsækjum Bernd í þætti dagsins.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 25, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Bernd Ogrodnik / Svipmynd

0:00 52:45

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Víðsjá?

This episode is 52 minutes long.

When was this Víðsjá episode published?

This episode was published on March 25, 2026.

Can I download this Víðsjá episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!