EPISODE · Feb 10, 2025 · 2H 10M
Birkir Fjalar rokkar á vinstrinu
from Þvottahúsið · host Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt
Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlaðvarpsþætti sem heita Stokkið í eldinn þar sem þungarokkið er rætt og skilgreint niður minnstu eindir. Birkir er mikill eldmóðsmaður og tekur hlutverk sín og skyldur mjög alvarlega og kemur það best fram í hlutverki hans sem faðir þriggja barna. Hann segir það svo mikið verkefni fyrir sig að mynda þessi nauðsynlegu tengsl við börnin sín og gefa sig algjörlega í því ferli. Hann vill meina að allt annað falli á undan tíma og samneyti með börnunum sínum og gerir sér grein fyrir að ef ekki er haldið rétt á spilinum í þessum málum geti maður sitið uppi með sárt ennið þjakaður af skömm og sektarkennd.
Embed this episode
What this episode covers
Send us Fan Mail Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlaðvarpsþætti sem heita Stokkið í eldinn þar sem þungarokkið er rætt og skilgreint niður minnst...
Ready to play
Birkir Fjalar rokkar á vinstrinu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.