Þvottahúsið podcast artwork

PODCAST · society

Þvottahúsið

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland. 

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Jun 2, 2026 · Source feed

  1. 130

    Þegar maður þarf að ná áttum innan UFO

    Send us Fan MailOk, ég er búin að jafna mig á brjálæðiskast gærkvöldsins. Lendingin er alltaf sú sama. Uppljóstrunin verður að vera in the end vitundarleg pólskipti og er af andlegum toga. Það þýðir ekki að maður eigi ekki að fylgjast með hvað varðar uppljóstrun inn Goverment. Við Geimsýruhausar skoðum allt en trúum engu. Öllu ber að taka með fyrirvara. 

  2. 129

    Díatryptamín og Ayahuasca

    Send us Fan MailÍ þessum þætti fer ég ítarlega yfir eiginleika og einkenni Díatryptamín og Ayahuasca. Tengsl þessara efna við mögulegan skammtaheim UFO og NHI. Einnig í þættinum fer ég yfir tilraun sem gerð var í stúdíói Geimsýrunar með notkun DMT og lazer sem Danny Goler hefur rannsakað mikið síðustu ár. Hann vill meina að með því að stara í endurkast rauða lazers af möttu fleti og undir áhrifum DMT sértu komin í stöðu þar sem þú sérð striga efnisveruleikans og kóðana sem halda öllu saman. Þetta var reynt og viti menn, það er ekki öll vitleysan eins. 

  3. 128

    Húsið á sléttunni og endajaxlar

    Send us Fan MailÞetta mannlega horn er svo mannlegt að það nær eiginlega engri átt. Hversdagsleikinn umlykur okkur og því mikilvægt að horfast í augu við að glasið er alltaf hálffullt eða einfaldlega bara fullt. Vandamálin eru bara eitthvað ogguponsu en hvað þýðir það? Þýðir það að maður eigi bara að skammast sín fyrir að líða ekki nógu illa? Nei, svo aldeilis ekki. Ég owna þetta yndislega líf sem mætti halda að tilheyrði húsinu á sléttunni. Mér þykir vænt um ykkur Geimsýruhausar. 

  4. 127

    UFO brottnámið við Miklubraut 1995

    Send us Fan MailÍ þessum þætti fjalla ég um brottnámstilfellið við Miklubraut 1995. Þá varð par fyrir því að missa hálftíma um miðja nótt úr lífi sínu eftir að bíll þeirra var lýstur upp. Ég fór einnig yfir brottnámið við Lake Shasta, Álafoss og brjálað dæmi í Vesturbænum er kona var rifin tvisvar í svaka UFO ferðalag sömu nóttina.

  5. 126

    Hvað gerðist fyrir Jake Barber?

    Send us Fan MailHvað gerðist fyrir Jake Barber og Skywatcherteymið hans? Möguleikarnir eru tveir. Annaðhvort voru þeir gleyptir af djúpríkinu eða að þeir voru double agentar allan tímann. Hver eru tengsl við Skywatchers við skyndilega lokun á flugvellinum í El Paso í febrúar? Djúsi spurningar sem erfitt er að svara, en við reynum, getum okkur til allavega. Skoðum allt, trúum engu.

  6. 125

    Þegar UFO101 fæst staðfest

    Send us Fan MailBATTELLE, ROSWELL OG „MEMORY METAL“Í þessum þætti förum við ofan í ný gögn úr sjötta gagnadropi Department of War og sérstaklega 1952 hljóðupptöku þar sem Edward J. Ruppelt, þá yfirmaður Project Blue Book, talar um samband bandaríska flughersins við Battelle Memorial Institute.Battelle kom að Project GRUDGE og Project BEAR og rannsakaði meðal annars UFO-tilkynningar, en stofnunin hafði jafnframt á þessum árum umfangsmiklar rannsóknir á títan- og nikkelblöndum hjá Wright-Patterson.Þetta verður sérstaklega áhugavert í ljósi þess að ég skrifaði um „Memory Metal“ og Roswell í UFO 101. Nú skoðum við heimildirnar á nýjan hátt: hvað vitum við um Battelle, hvað sýna skjölin og hljóðupptakan frá 1952 — og hvernig tengist þetta rannsóknum á málmblöndum og síðar Nitinol?Geimsýran – skoðum allt, trúum engu.

  7. 124

    Útgáfuhóf og ráðstefnan Heimsljós

    Send us Fan MailMinni á að á fimmtudaginn 17 sept verður útgáfuhóf á UFO202 í Eymundsson í Smáralind. Léttar veitingar í boði, upplestur og bækurnar UFO101 og UFO202 á sérstöku útgáfuverði. Einnig minni ég á að Geimsýran verður alla helgina 19-20 sept á ráðstefnunni heimljós.is í Mosfellsbæ með bókasölu, fræðslu og fyrirlestur á sunnudeginum 20 sept kl 11. Mig hlakkar til að sjá ykkur.

  8. 123

    Lífsstíls-þátturinn tekin í mannlega horninu

    Send us Fan MailÍ þessum þætti ætla ég aðeins að breyta um gír og fara yfir eitthvað sem ég hef fengið töluvert af spurningum um upp á síðkastið – þau bætiefni sem ég er sjálfur að nota daglega.Ég er með tvo stuðningsaðila sem tengjast þessum þætti, Heilsuhornið og Betri dagar, og mér fannst því upplagt að segja aðeins frá því hvað ég er sjálfur að taka og hvers vegna.Frá Heilsuhorninu hef ég í um tvö ár verið að nota vörur frá Upakarma, sérstaklega Shilajit og Ashwagandha. Upp á síðkastið hef ég svo bætt fleiri vörum við, meðal annars NMN, SPN og Tulsi.Þetta eru allt ólík efni. NMN tengist NAD⁺-kerfinu og frumuorku, Shilajit er náttúrulegt efni úr fjallabergi sem inniheldur meðal annars fulvic acid og ýmis steinefni, Ashwagandha og Tulsi eru jurtir sem hafa lengi verið notaðar í tengslum við streitu og almenna vellíðan, og SPN er fjölþætt blanda af næringarefnum og virkum efnum.Síðan er ég að nota Life Extension Two-Per-Day, sem er nokkuð öflugt fjölvítamín, og Medox, sem er norskt anthocyanin-þykkni úr villtum bláberjum og sólberjum. Þar er áherslan meðal annars á andoxunarvirkni og stuðning við æðakerfið.Og svo er nýtt á dagskránni hjá mér creatine monohydrate. Það er líklega eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið sem til er og tengist fyrst og fremst styrk, afkastagetu og viðhaldi vöðvamassa.En þetta er ekki þáttur um það að segja ykkur hvað þið eigið að taka. Þetta er einfaldlega innlit í það sem ég er sjálfur að gera og af hverju þessi efni hafa orðið hluti af mínu daglega prógrammi.Og auðvitað eru Heilsuhornið og Betri dagar stuðningsaðilar Geimsýrunar.Heilsuhornið er með úrval af vörum frá Upakarma og eru þessa dagana meðal annars með 3 fyrir 2 tilboð á Shilajit.Og Betri dagar hefur verið stuðningsaðili Þvottahússins og síðan Geimsýrunar í meira en sex ár. Þau eru með mikið úrval af hágæða vítamínum, bætiefnum, CBD og öðrum vörum og eru staðsett í Urriðaholtsstræti 24. Þú getur líka skoðað úrvalið í vefverslun þeirra og fengið vörurnar sendar heim.Svo skulum við kafa aðeins í þetta – hvað er í þessum efnum, hvað eiga þau að gera og hvað er það sem ég er sjálfur að sækjast eftir með þessu prógrammi?heilsuhornið.isbetridagar.isOg notið afsláttarkóðann Geimsýran

  9. 122

    PURSUE opnar dyrnar fyrir uppljóstrara

    Send us Fan MailPURSUE – nýjar dyr opnaðar fyrir UAP-uppljóstrara?Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út sérstaka lagalega undanþágu sem gerir fólki með aðgang að trúnaðarupplýsingum um UAP kleift að koma þeim upplýsingum til PURSUE.Hvað þýðir þetta í raun? Hverjir geta nú komið fram og hvað gætu þessar upplýsingar innihaldið? Og gæti þetta orðið ný leið til að koma áður lokuðum UAP-gögnum í átt að afklassíferingu?Við skoðum hvað gerðist, hvað heimildin segir – og fyrst og fremst hvað þetta gæti þýtt fyrir UAP-uppljóstrun??

  10. 121

    Mannlega hornið, COVID og fjöldageðrofið

    Send us Fan MailÍ mannlega horninu mætti ég kröfum hlustanda Geimsýrunar og talaði örlítið um viðbrögð mín að aðgerðir hvað varðar COVID, fyrir öllum þessum árum síðan. Super merkilegt að fara til baka og skoða hvernig maður brást við, hvernig maður hegðaði sér og þá kannski í samræmi við hvernig maður hefði mögulega í dag hegðað sér eða brugðist við á anna hátt. patreon.com/geimsyran

  11. 120

    Mannlega hornið er kallinn stendur á brúninni

    Send us Fan MailÞetta er svo týpískt og þið tengið kannski við það. Þetta eirðarleysi sem fær mann til að hlaupa um eins og apaköttur. Þegar lífið er svo skemmtilegt að maður tímir varla að sofa. Í kvöld fór ég í gusu eins og ég geri vikulega og enn og aftur fékk ég hugljómun um að slaka á. Skilaboð sem ég er að fá til mín reglulega þessa dagana og hvað getur maður gert? Hvernig getur maður tamið þetta dýr sem gefur og gefur en svo auðveldlega snýst upp í andhverfu sína? Hvernig forðumst við burn-out öðruvísi en að kæla sig niður.

  12. 119

    Mannlega hornið var tekið í morgun

    Send us Fan MailGeimsýran er komin á Patreon. patreon.com/geimsyran Í morgun henti ég í mannlega hornið. Ég fór á per´sonulegar nótur. Í þessum þætti var gerð tilraun. Ég óð í míkróphóninn áður en ég talaði við sálu og enn í hálfgerðu draumaástandi. Ég fór á svið sem ég hef aldrei farið áður. Persónuleg mál sem ég finn tilbúin til að ræða um loksins. Hvað ætlum við lengi að burðast með allt þetta drasl í bakpokanum sem engin bað okkur um að burðast með?

  13. 118

    Project Blue Beam. Sýndar-áras úr geimnum

    Send us Fan MailÍ þessum þætti af Geimsýrunni förum við inn í eina af furðulegustu og umdeildustu hugmyndum UFO-sögunnar — Project Blue Beam.Við byrjum hjá Serge Monast árið 1994 og förum í gegnum kenninguna um falskar fornleifauppgötvanir, hologram á himninum, skilaboð inn í huga fólks og að lokum sviðsetta „geimveruárás“ sem gæti sameinað mannkynið gegn sameiginlegum óvini.En svo förum við lengra.Við skoðum frásagnir Carol Rosin um Wernher von Braun og hið svokallaða „alien card“, kenningar Steven Greer um false flag-aðgerðir og svo tengjum við þetta við það sem Jeremy Corbell og Chris Bledsoe hafa sagt um árið 2027, „incoming craft“ og hið dularfulla orð Armada.Og þá kemur stóra spurningin:Erum við að horfa á gamla samsæriskenningu sem hefur einfaldlega lifað af í nýrri mynd — eða erum við að verða vitni að raunverulegri breytingu á því hvernig stjórnvöld og mannkynið tala um ógnir frá geimnum?Við skoðum líka kalda stríðið, þróun geimhernaðar, UAP-uppljóstranir, 3I/ATLAS og nýja áherslu Bandaríkjanna á hernaðarlegt geimkerfi.Að lokum förum við aftur til ársins 1987.Þá stóð Ronald Reagan fyrir framan Sameinuðu þjóðirnar og spurði:Hvað myndi gerast ef við stæðum frammi fyrir sameiginlegri ógn utan úr geimnum?Það sem hann sagði þá hljómar ótrúlega áhugavert í dag.Velkomin í Geimsýruna á patreon.com/geimsyran

  14. 117

    Patreon þættirnir eru byrjaði að rúlla inn

    Send us Fan MailEinn brjálaður þáttur komin á Patreon og tveir á leiðinni inn á næstu dögum. Jake Barber og Skywatchers, DMT og Ayahuascha og síðasti þáttur sem kemur út næstu helgi, Grænu geislarnir yfir Michigan... Full Blown langir topic þættir sem þið viljið ekki missa af. 1.500,- á mánuði fyrir 4-8 langa topic þætti um UFO, allskonar andlegt og heimspekilegt og svo má ekki gleyma mannlega horninu. Lets go, lock in!! Lock in á http://patreon.com/geimsyran

  15. 116

    Það er rosaleg stemning á kallinum og Geimsýran að hluta á leið í áskrift

    Send us Fan MailÞað er rosaleg stemmning á kallinum. Já sem meinti nei tapaði fyrir þeim sem sögðu nei en meintu já. Geimsýran á leið í Patreon áskrift sem þýðir 4-8 topicþættir á mánuði á meðan probono verða stuttir teaserþættir og fleirra skemmtilegt. Lock in á http://patreon.com/geimsyran

  16. 115

    ALIEN fundur í Mosvku!!

    Send us Fan MailTalið er öruggt að John Ratcliffe, forstjóri leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hafi verið um borð í bandarísku herflutningavélinni sem óvænt lenti á Vnukovo-flugvelli í Moskvu í morgun.Heimildir CBS herma að hann sé í borginni til að eiga fundi við ráðamenn.Hvað er í gangi? Eru geimverurnar að taka stjórnina og er ætlunarverk þeirra að sameina mannkyn í frið og ást á kostnað ofbeldis og sundrungar?

  17. 114

    Edrúkallinn á leið annað hugvíkkandi ferðalag

    Send us Fan MailÉg held áfram á persónulegum nótum. Hvernig hefur edrúmennska mín samræmst aðferðum sem þykja jaðarkenndar? Hvernig hef ég náð að brjóta mér leið úr ánauð alkóhólisma og stjórnleysi? Stórar spurningar sem hafa fengið að marinerast í mér í langan tíma. Hér er þessu deilt með ykkur, vonandi geta einhverjir tekið þetta til sín.

  18. 113

    Mannlegi þátturinn, þar sem segl eru dregin niður

    Send us Fan MailÍ Geimsýrunni í kvöld fer ég í mannlega þáttinn og dreg niður segl. Ég fer ekki frá borði en ákveðið hefur verið að setja vissa hluti í samhengi. Þykir vænt um ykkur og er þakklátur fyrir þau ykkar sem hafið hlustað og horft á Geimsýruna

  19. 112

    Er Cern búið að f%$#/a tímalínunni okkar upp??

    Send us Fan MailHvað gerist þegar við tökum örsmáar agnir, hraðum þeim upp í næstum ljóshraða og látum þær skella saman? Í þessum þætti förum við inn í hinn risastóra Stóra hraðalinn í CERN, 27 kílómetra langan hring djúpt undir jörðu á landamærum Sviss og Frakklands.Við skoðum hvernig vísindamenn nota þessa mögnuðu vél til að rannsaka grundvallarefni alheimsins – allt frá Higgs-bósóninu og andefni til aðstæðna sem líkjast þeim sem voru til skömmu eftir Miklahvell. Við skoðum líka hvað gæti gerst þegar CERN verður að High-Luminosity LHC árið 2030 og hvers vegna vísindamenn vonast eftir óvæntum uppgötvunum.En sagan stoppar ekki þar. Við förum í geiminn og skoðum Venera 7, fyrstu geimfarann til að lenda á annarri plánetu og senda gögn heim frá yfirborði hennar. Við ræðum líka Mandela-áhrifin, hugmyndir um aðra tímalínu og sögur um gáttir og aðrar víddir tengdar CERN.Hvað er raunveruleg vísindi, hvað er mögulegt samkvæmt kenningum – og hvað er einfaldlega óstaðfest saga? Það ætlum við að kanna.

  20. 111

    Hvar liggja gildin þín??

    Send us Fan MailÍ þessum þætti fer ég troðnar slóðir og jaðra við að verða pólitískur. Ég er að tala um gildin okkar. Hver eru þau og hvernig erum við að taka ákvarðanir í lífi okkar? Erum við mögulega búin að missa marks og erum fyrir vikið týnd í ánauð sektarkenndar og skömm? Það er leið til baka úr þessu skítafeni en það er iðrun og eftirgjöf. Það er aldrei of seint að vakna til vitundar og laga til það sem farið hefur úrskeiðis.

  21. 110

    Geimsýran hefur yfirtekið Þvottahúsið

    Send us Fan MailÍ þessum þætti fer ég yfir nýjustu vendingar í UFO málum og fer yfir hvernig meginstraumurinn er farin að bjóða álhöttunum velkomin í góð partý. 

  22. 109

    Frjálshyggjumaðurinn Þórarinn Hjartarson

    Send us Fan MailNýjasti gestur alkasts Þvottahússins er Þórarinn Hjartarson stjórnsýslufræðingur, pistlahöfundur, boxþjálfari og þáttarstjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling. Þórarinn hefur í mörg ár þrátt fyrir ungan aldur verið álitin áberandi rödd frjálshyggju í íslenskri samfélagsumræðu. Hann hefur tjáð sig á opinskáan hátt í málum sem snúa að feminisima, útlendingamálum, transmálum og síðustu vikur verið áberandi í rökræðum við einstaklinga sem skilgreina sig sem woke á hinum og þessum fjölmiðlum. Gunnar spurði hann hvað lægi eiginlega á baki þessari þörf fyrir að vera á móti stefnum og stemningu sem flestir upplifa sem heilbrigða réttindabaráttu minnihlutahópa. Þórarinn segir að það sem dragi hann áfram í þessar áttir sé réttur til tjáninga og skoðanafrelsis innan samfélags. Hann vill meina að hið svokallaða woke stuðli að skoðana og tjáningarkúgun þar sem aðeins ákveðnar skoðanir séu leyfðar og tjáning verði að vera út frá vissum gefnum forsendum og allt sem ekki passar inn í þá hugmyndafræði flokkist sem haturðsorðræða og það sé hann ekki tilbúin að að samþyggja. 

  23. 108

    Einar Mikael er töframaður

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en töframaður Íslands, húsasmiðurinn og þrívíddarprentunar meistarinn Einar Mikael. Einar sem landsþekktur er fyrir töfrabrögð hefur síðustu misseri hefur Einar verið önnum kafin við að þrívíddarprenta hefðbundinn hús, kirkjur og alla vita landsins. Þrívíddar ævintýrið hófst þegar hann var beðin um að prenta kirkju Patreksfjarðar og útkoman var svo stórkostleg að ekki var aftur snúið. Nú skipta kirkjurnar tugum sem Einar hefur prentað og ekki nóg með það þá hefur hann snúið sér að þrívíddarprenta alla vita landsins. 

  24. 107

    Flosi Þorgeirs og tómið

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en sagnfræðingurinn og refsari strengjanna Flosi Þorgeirsson. Flosi hefur í áratugi verið gítarleikari einnar vinsælustu rokkhljómsveitar Íslands, HAM. Þar að auki er hann annar tveggja þáttastjórnenda í einu af vinsælustu hlaðvörðum landsins, Draugum fortíðar.

  25. 106

    Jósa Goodlife; Femina og masculus stinga saman nefjum

    Send us Fan MailNýjasti gestur Þvottahússins er Jósa Goodlife sem er íslenskur orkuheilari búsett í Kaliforníu BNA. Jósa sem Gunnar kynntist fyrir um 20 árum síðan þegar þau bæði voru búsett í Kaupmannahöfn hefur fengið að ganga í gegnum eld og brennistein og mætt öllu því mótvægi sem lífið hefur boðið henni upp á með opnu hjarta. Þessi eiginleiki hennar hvað varðar opið hjarta og skýra úrvinnslu hefur komið henni á þann stað í dag þar sem hún virðist vera orðin að alkemista eða gullgerðarkonu með vald yfir beislun orku. 

  26. 105

    Sálnaflakk og UFO með Gísla Guðmunds

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er tölvunarfræðingurinn Gísli Guðmundsson. Gísli sem einnig situr í stjórn Sálarrannsóknarfélagsins hefur áhugaverða sögu að segja hvað varðar andleg ferðalög og sýnir tengt UFO. Frá því að hann var drengur hefur hann haft aðgengi að veru eða innri rödd sem gefur honum leiðbeiningar um hvernig hann skuli haga lífi sínu. Svolítið svipað og skrifað var um í bókaflokknum  “Samræður við Guð” sem naut mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum síðan. Þar að auki sagði Gísli einnig um að frá því hann var ungur hefur hann lent í því sem hann kallar sálnaflakk. Sálnaflakk segir Gísli vera er sálin í einföldu máli fari úr líkamanum og öðlist getu til að fara nánast hvert sem er, hvort sem sé um á aðra staði í hans nærumhverfi eða hreinlega flakki á milli sólkerfa og heimsæki aðra menningarheima eins og hann lísti vel í viðtalinu. 

  27. 104

    Galactic Federation og gúrúrar með fjarstýrða USB buttplugs

    Send us Fan MailÍ þessum þætti fóru strákarnir yfir kenningar um Galactic Federation og Schumann Resonans. Enn ein af áhugaverðustu kenningunum sem tengjast UFO og geimverum eru hugmyndir um Galactic Federation, eða bandalag vetrarbrautarinnar, sem samanstendur af verum frá mörgum mismunandi plánetum og vetrarbrautum. Kenningin um þessi bandalög hefur verið viðurkennd af ákveðnum hópum innan andlegra og vísindalegra samfélaga, þar sem hún varpar ljósi á möguleg tengsl okkar við geimverur og hið óþekkta. Megináherslan á þessum kenningum er að Galactic Federation, sé “alþjóðlegt” bandalag sem sér um að fylgjast með og vernda þróun jarðar og lífverur hennar,  stuðla að friði, samvinnu og allt í nafni stöðugrar þróunar alheimsins. Gunnar vill meina að þetta bandalag sé í tengslum við þróun okkar sem tegund, og það hafi mikil áhrif á þróun okkar á jörðinni í gegnum háþróuð og vísindarleg verkefni, sem jafnvel snúa að því að hækkun á tíðni mannlegrar meðvitundar.Hvað það varðar þá er talið að menn séu nú að ganga í gegnum ákveðna þróun sem er tengd við hækkun á orkutíðni – sem í raun tengist Schumann resonans.Schumann resonans vísar til náttúrulegra hljóðbylgna sem myndast í lofthjúp jarðarinnar. Gunnar segir þessa tíðni venjulega í kringum 7,83 Hz, sem hefur verið talin náttúrulegur „hjartsláttur“ plánetunnar. Þessar bylgjur hafa mikil áhrif á lífverur jarðarinnar, sérstaklega menn, þar á meðal gríðarleg áhrif á heilastarfsemi okkar og almennt líkamlega heilsu.

  28. 103

    Birkir Fjalar rokkar á vinstrinu

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og hlaðvarpsþætti sem heita Stokkið í eldinn þar sem þungarokkið er rætt og skilgreint niður minnstu eindir. Birkir er mikill eldmóðsmaður og tekur hlutverk sín og skyldur mjög alvarlega og kemur það best fram í hlutverki hans sem faðir þriggja barna. Hann segir það svo mikið verkefni fyrir sig að mynda þessi nauðsynlegu tengsl við börnin sín og gefa sig algjörlega í því ferli. Hann vill meina að allt annað falli á undan tíma og samneyti með börnunum sínum og gerir sér grein fyrir að ef ekki er haldið rétt á spilinum í þessum málum geti maður sitið uppi með sárt ennið þjakaður af skömm og sektarkennd. 

  29. 102

    Íslenskt UFO og nýjasti uppljóstrarinn andsetin feminískri orku

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir félagarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áframhaldandi umræðu um fljúgandi furðuhluti. Í þættinum fóru strákarnir yfir nokkrar nýjar frásagnir íslendinga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafnleynd og talsvert myndefni fylgdu frásögnunum. það sem vakti mestu athyglina voru myndbönd sem tekin voru í Njarðvík og Gravarvogi í nóvember og desember á síðasta ári. Myndböndin sýna það sem virðist vera óvenju skærar stjörnur en þegar zoomað er inn sést að ekki er um hefðbundnar stjörnur að ræða. Það sem sést er að um svokallað hnetti eða orbs að ræða, þeir virðast iða af einkennilegri orku eða einna heldur virðast vera hrein orka. 

  30. 101

    UFO’ið heldur áfram

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður álhattarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í framhaldi af hinum stóra UFO þætti sem kom út í síðustu viku. Í kjölfar síðasta þáttar sem 2% þjóðarinnar hlustuðu og horfðu á höfðu margir samband við þáttastjórnendur Alkasts Þvottahússins með frásagnir og teikningar sem lýsa allskonar undarlegu. Engin þessara einstaklinga sagðist vera klár til að koma fram undir nafni en strákunum væri frjálst að deila sögunum. Ein sagan þótti afar athyglisverð en kona ein hafði samband og er frásögn hennar hér fyrir neðan í fullri lengd ásamt mynd sem hún málaði af flygildinu sem hún sá.

  31. 100

    Stóri UFO þátturinn. Mögulegt upphaf af endalokunum

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður kumpánarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríðarlegri aukningu meintra tilfella fljúgandi furðuhluta.  Síðan í lok nóvember á síðasta ári hefur tilfellum fjölgað alveg gríðarlega þar sem venjulegt fólk segist verða vitni af fljúgandi furðuhlutum eða UFO. Ferlið sem virtist hefjast með dularfullum hnetti sem virtist bara svífa um á flugvellinum í Manchester varð svo að dularfullri atburðarrás í New Jersey í BNA sem ekki er útséð hvernig muni enda. 

  32. 99

    Sölvi Tryggva og heiðarleikinn

    Send us Fan MailSölvi Tryggvason er nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkasti Þvottahússins. Í viðtalinu við Sölva fóru drengirnir um víðan völl og má segja að samtalið hafi að miklu leiti snúist um heiðarleika og það hugrekki sem til þess þarf. Sölvi er búin að vera lengi viðriðinn fjölmiðlun og þegar hann hóf feril sinn í hlaðvarpi hafði hann langan og farsælan feril að baki sem einn af vinsælustu fjölmiðlamönnum landsins. 

  33. 98

    Ívar Örn, aka, Dr Mister hefur fundið Jesús

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er Ívar Örn Katrínarson sem gekk einnig undir listamannsnafninu Dr. Mister í dúetnum Dr. Mister & Mr. Handsome hér um árið. Ívar hefur vakið talsverða eftirtekt síðustu mánuði fyrir útgáfu bókar, Ég ætla að djamma  þar til ég drepst, þar sem hann fer yfir söguna sína í heljargreipum fíkniefna, glæpa og ofbeldis. Eftir að hafa framið rán í 10/11 og útfært misheppnaða handrukkun þar sem hann skaut á útidyrahurð þess sem skuldaði honum peninga með haglabyssu var hann dæmdur í 2 ára fangelsi. 

  34. 97

    Sigmar og Sandra eru núdistar

    Send us Fan MailNýjustu gestir Alkasts Þvottahússins eru bændurnir og núdistarnir Sigmar Örn Aðalsteinsson og Sandra Dís Sigurðardóttir. Fyrir um tíu árum síðan fóru þau nakin í heita pottin í sumarbústaðarferð með vinum og upp frá því var ekki aftur snúið. Smátt og smátt þróaðist það hjá þeim hjónum í að í dag skilgreina þau sig sem núdista og tilheyra sífellt stækkandi hóp manna og kvenna sem hittast reglulega við hin ýmsu tækifæri til að stunda sína nekt. Hópurinn sem nú telur um rúm hundrað manns hafa fram að þessu stundað sín samskipti í gegnum Facebook hópin Naturist Iceland en til stendur að stofna samtök núdista sem hluti af að getað rammað inn hina og þessa viðburði sem hópurinn stendur fyrir. Má nefna strandblak og yoga ásamt að gamal sundlaugin í Hafnarfyrði hefur verið leigð með jöfnu millibili fyrir svokallaðan nektarsunds eftirmiðdag. Einnig hefur hópurinn staðið fyrir skipulögðum hópferðum í hinar og þessar náttúrulaugar og hefur það vakið mikla lukku og þjappað hópnum saman.

  35. 96

    Alrún Ösp, aka, VARGYNJA

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahúsins er engin önnur en BDSM drottningin og bindarinn Alrún Ösp. Alrún Ösp, sem gengur undir nafninu Vargynja, fór yfir í viðtalinu hvernig hún fór að finna fyrir hvötum sem snúa að sársauka og valdbeitingu þegar hún var unglingur. Til fróðleiks má nefna að BDSM er skammstöfun sem stendur fyrir bindingar, drottnun og undirgefni; síðan er sadó masókismi í lokin.Vargynja segir að finna megi mismunandi ásetning eða forsendur þeirra sem leiti inn í BDSM. Sumir fara þar inn í leit af smá spennu og eru svo kannski að daðra við BDSM í mörg ár þó án þess að vera haldin þessari djúpu kink hneigð sem svo einkennir aðra.

  36. 95

    Ívar á gröfunni er ekki vóg þrátt fyrir mikla árvekni

    Send us Fan MailNýjasti gesturinn í Alkast Þvottahússins er engin annar en Ívar Pétur Hannesson, aka Dj Ívar eða Ívar á gröfunni.Ívar hefur komið víða við og rak meðal annars hin vinsæla og umdeilda næturklúbb Diablo hér í kringum aldarmótin. Ívar var virkur plötusnúður hér á árum áður og spilaði að eigin sögn frekar svona comercial danstónlist og í því samhengi segir hann á þeim tíma fundið fyrir talsverðum fordómum af hálfu þeirra plötusnúða sem þóttu meira töff og vinsælir. Plötusnúðabransinn vatt upp á sig og má segja að með lokum Diablo klúbbsins hafi Ívar fundið sinn botn hvað varðar drykkju og fíkniefnaneyslu. Fljótlega eftir að klúbburinn lokaði var hann komin á hálan ís í neyslu og farin að stunda vafasöm viðskipti sem leiddu til þess að hann var handtekin og dæmdur til fangelsisvistar. Hann fór þó í meðferð áður en hann hóf afplánun sem fór fram á Litla hrauni og svo Kvíarbryggju. Eftir að Ívar kom út úr fangelsi hefur hann haldið sér á beinu brautinni og getur státað sig af rúmlega 20 ára edrúmennsku. Í viðtalinu var farið á hluti sem snerta pólitískan réttrúnað því Ívar hefur þótt frekar liðtækur í komenntakerfum samfélagsmiðla og þá einna helst í málum sem snúa að hinsegin fólki, hælileitendum og almennri skilgreiningu á hugtökum sem snúa að karlmennsku. 

  37. 94

    Ingibergur Þorkelsson kennir hugræna endurforritun

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkasts Þvottahússins er engin annar en Ingibergur Þorkelsson dáleiðandi og skólastjóri dáleiðsluskóla Íslands.Ingibergur flutti til Edinburgh um síðustu aldamót með konu sinni og fljótlega eftir hóf hann nám í dáleiðslu. Mörgum árum seinna flutti Ingibergur svo aftur til Íslands og þá staðráðin í að halda menntun sinni áfram sem og að kenna öðrum dáleiðslu. Í kjölfarið urðu námskeið og fluttir kennarar frá öllum heimshornum á sviði dáleiðslu sem hafa svo haft mikil áhrif á Ingiberg og hans nálgun í sínu starfi og nú í dag öllum þessum árum seinna hefur hann kennt dáleiðslu mörg hundruð manns. Af þeim einstaklingum sem lært hafa dáleiðslu hjá Dáleiðsluskóla Íslanda starfar um helmingur þeirra við dáleiðslu að einhverju leyti. Í viðtalinu fór Ingiberg yfir hvernig dáleiðslukennsla virðist hefur horfið úr sálfræðideild Háskóla Íslands á síðastliðnum 20 árum. Og í því samhengi minnist Ingibergur á að það þyki frekar sérstakt hér á landi að svo sé því ef litið er á sálfræðideildar annarsstaðar í heiminum þá er dáleiðsla kennd af miklum dugnaði og nefnir hann í því samhengi í sálfræði deild Stanford háskólans í Californiu í BNA. 

  38. 93

    Arnór Sveinsson er algjör heilsugúrú

    Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnar og Arnórs í Alkasti Þvottahússins er engin annar en meistarinn Arn­ór Sveins­son heilsu kennari. Arnór er búin að nema hin og þessi fræði tengd kulda, öndun, kakóathöfnum og hljóð eða óm heilun. Í viðtalinu var farið um víðan völl en þar sem Arnór hefur komið í þáttinn áður þar sem hann fór yfir sögu sína var stefnan frekar tekin á tæknilegu hlið þessara iðkana sem Arnór kennir.

  39. 92

    Hafsteinn Ægir elskar að hjóla

    Send us Fan MailNýjast gestur þeirra Arnórs og Gunnars í Alkastinu er Hafsteinn Ægir Geirsson. Hafsteinn hefur um margra árabil verið einn af fremstu hjólreiðaköppum Íslands þar sem ferilsskrá hans samanstendur af fjölmörgum íslandmeistaratitlum í ólíkum greinum hjólreiða; götuhjólreiðum, fjallahjólum og malarhjólum (gravel) svo eitthvað sé nefnt.

  40. 91

    Sævar Kolandavelu, aka Poetrix er liðast í sundur

    Send us Fan MailALKASTIÐ FÓR Í HEIMAVITJUN Í ÞETTA SKIPTIÐ OG ÞVÍ ERU HLJÓMGÆÐI EKKI EINS OG Á AÐ VENJAST.Nýjasti gestur Alkastsins sem er í boði Þvottahús-samsteypunar er engin annar en Sævar Kolanduvelu sem einnig gengur undir listamannsnafninu Poetrix. Þetta viðtal krafðist heimavitjunar í fyrsta skiptið í sögu Þvottahússins því Sævar er stórslasaður og á því erfitt með samgöngur. Því fór viðtalið fram í eldhúsinu hjá Sævari í Kópavogi. Sævar, sem var áberandi fyrir tæpum tveim áratugu á íslenskri rapp senunni, er staddur á tímamótum þar sem líf hans hangir á bláþræði. Fyrir um átta árum síðan varð hann fyrir meiðslum sem ofan á genetískan stoðkerfisgalla er búinn að setja allt stoðkerfið og andlega heilsu hans bókstaflega á hvolf. Meiðslin lýsa sér þannig að liðband sem heldur saman spjaldhrygg, neðstu hryggjarliðum og mjaðmagrindinni og festir hrygginn við mjöðm, er slitið. Sævar lýsir því svo að vegna þessa séu þessir líkamshlutar hreinlega að rifna sundur og hryggurinn að losna smám saman frá mjöðminni. Slitið veldur því að hryggur hans togast langt umfram eðlilega hreyfigetu, en slíkt kallast á ensku out of save limits og öll liðbönd í baki hans eru hreinlega að rakna upp.Þetta ferli veldur svo keðjuverkun og er Sævar í dag með a.m.k. 16 aukaáverka víðsvegar um líkamann. Til þess að fá bót sinna meina þarf að festa saman á honum spjaldhrygginn, neðstu hryggjarliðina og mjaðmagrind með skrúfum og gera aðgerð á mjaðmakúlunni sem er farin að losna úr liðnum.

  41. 90

    Valgerður Guðsteins er pro-fighter með byssur

    Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu sem er í boði Þvottahússamsteypunar er engin önnur en Valgerður Guðsteinsdóttir; eina atvinnukonan í hnefaleikum á Íslandi í dag. Valgerður, sem hefur keppt sem atvinnumanneskja í hnefaleikum í nokkur ár, er að horfa fram að á sinn stærsta bardaga fram að þessu við hina 32 ára gömlu Jordan Dobie. Dobie sem er í 19 sæti á heimslistanum yfir kvenkyns boxara í sínum þyngdarflokk og hefur unnið alla 4 atvinnumanna bardaga sína. Dobie hefur mikla reynslu af bardagaíþróttum og hefur meðal annars orðið heimsmeistari í Muay Thai. Það er því ljóst að Valgerði bíður mikil áskorun. Valgerður segist aldrei hafa verið í betra formi og er ákveðin í að sigra í þessum bardaga. Frá því að hún byrjaði fyrst að boxa 19  ára gömul hefur hún breyst mikið sem boxari. Þá hafi hún á ákveðnum tímapunkti þurft að taka sjálfan sig alveg í gegn hvað varðar mataræðið þar sem hún fór að nota vörurnar frá Herbalife. Með auknum þroska fór hún einnig að huga meira að andlegri heilsu sem hún segir að sé alveg nauðsynlegt ef þú ætlar að ná langt sem boxari. Álagið sem fylgir bæði undirbúningnum sem og bardaganum sjálfum hverju sinni krefst þess að hausinn sé í lagi og að hægt sé að hugsa skýrt svo að viðbrögð og snerpa séu upp á tíu. Mikil sálfræði fylgir boxinu og beita andstæðingar allskonar aðferðum til að koma hvor úr öðrum úr jafnvægi

  42. 89

    Sprengju Kata brýtur heilann

    Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkastinu sem er í boði Þvottahússins er engin annar en meistarinn Katrín Lilja Sigurðardóttir. Katrín sem er betur þekkt undir nafninu Sprengju Kata starfar dags daglega sem aðjúnkt í efnafræðikennari við Háskóla Íslands. Auk þess er hún mjög virk í allskonar íþróttum eins og hlaupi, hjólreiðum og sundi. Katrín eignaðist sitt fyrsta barn aðeins sextán ára gömul sem þýddi að hún var í raun þrem árum á eftir í sinni mennta- og háskólagöngu. Engu að síður hélt hún ótrauð áfram þrátt fyrir að á námsárunum í HÍ hafi hún eignast tvö börn til viðbótar. Snemma á sínum háskólaárum snerist hún til kennslu; fyrst sem stundakennari og nú, tíu árum síðar er hún enn að. Nú sem kennari í almennri-, lífrænni- og ólífrænni efnafræði.

  43. 88

    Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi er rosalegur

    Send us Fan MailNýjasti gestur Gunnars og Arnórs í  Alkastsinu er enginn annar er Jón Arnar Magnússon. Jón Arnar er flestum landsmönnum kunnugur fyrir frækna frammistöðu á frjálsíþróttavellinum þar sem hann átti farsælan íþróttaferil sem spannaði yfir hartnær 20 ár. Á afrekaskránni hjá honum eru verðlaun á Íslands-, Norðurlanda-, Evrópu- og Heimsmeistaramótum, auk þess að hafa verið kosinn íþróttamaður ársins í tvígang. 

  44. 87

    Kolbrún Karlsdóttir ferðalangur er nýkomin úr Amazon

    Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er ferðfrumuðurinn Kolbrún Karlsdóttir. Kolla eins og hún er kölluð er þó ekki bara ferðafrumuður í hefðbundnum skilning heldur er einnig um hugvíkkandi ferðalög að ræða. Kolla sem kynntist Ayahuasca fyrir mörgum árum síðan hefur tekið algjöra stefnubreytingu í lífi sínu síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í yfir 100 athafnir og upplifir að í gegnum það ferli hafi hún öðlast alveg nýja sýn á bæði sitt eigið líf sem og samfélagið sem hún tilheyrir. 

  45. 86

    Snorri Óttarson er fimmtándi forsetaframbjóðandinn

    Send us Fan MailNýjasti gestur Alkastsins er forsetaframbjóðandi númer 15 af 18 að svo stöddu; Snorri Óttarsson. Snorri er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Horsens í Danmörku síðan 2007. Rétt fyrir kreppu fluttu þau hjónin og voru mjög heppin því þau borguðu aðeins 300 þúsund fyrir leigu á 20 feta flutningagám sem hálfu ári seinna hefði kostað nálægt milljón vegna hruni á íslensku krónunni. Snorri er menntaður húsasmiður en hefur svo í Horsens bætt við sig tveimur háskólagráðum. Hann hefur starfað við ýmislegt og verið mikið í akstri síðustu árin ásamt öðru. Snorri er mikil fjölskyldumaður og nefnir í viðtalinu að nú sé hann á landinu því faðir hann er mjög veikur á spítala um þessar mundir. Börn Snorra eru komin úr hreiðri að mestu leyti og munu því að öllum líkindum ferðast með honum á Bessastaði ef af því verður. Eiginkonan hans styður hann heilshugar og myndi líklega koma með og standa sína plikt sem hin íslenska first lady, enda vön álagi. 

  46. 85

    Óskar Grétuson AKA Boris, sterkasti nuddarinn

    Send us Fan MailNýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkastinu er engin annar en Óskar Grétuson, einnig þekktur sem Boris. Óskar Vann fjíögur ár í röð frá 2005 - 2008 sterkasti maður Íslands og keppti einnig í sterkasti maður heims með góðum árangri. Óskar ólst upp á Grundarfyrði áður en hann flutti í Fellahverfið í Raykjavík. Þasr upplifði hann að vera talsvert á skjön og átti erfitt með að eignast vini og upplifði mikið einelti og þá einna helst því hann var þykkur í vextinum. Sem unglingur hóf hann störf hjá Landhelgisgæslunni og upplifði mikið áfall við björgun flutningarskipsins Víkartinds er gæsluskipið fékk á sig tvöfalt brot og lagðist bókstaflega á hliðini með þeim afleiðingum að lærimeistari hann Elli lést eftir alvarlegt höfuðhögg. Óskar kynntist kraftlyftingum og sýndi þar mikla hæfileika og metnað. Hann óx fljót í metorði og lærði af mörgum af bestu kraftlyftingarmönnum Íslands. Í sinni síðustu lyftu á hans síðasta móti sem hann tók þátt í stórslasaðist hann og að eigin sögn bókstaflega murkaði á sér taugakerfið með þeim afleiðingum að hann keppti aldrei aftur. Hann fór inn í tímabil þar sem hann glímdi við allskonar verki og undarleg einkenni sem læknar áttu erfitt með að kortleggja en einn ráðlagði honum að skella sér bara í nudd og það átti eftir að hafa miklar aðfleiðingar í för með sér. 

  47. 84

    Ástþór Magnússon okkar ástkæri fossetaframbjóðandi

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni. Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. Hann stofnaði friðarsamtökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu samtökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tuttugu árum síðan. Hann hefur ítrekað boðið sig fram tl forsetaembættis síðan og þá með það að leiðarljósi að virkja embættið til friðar og sáttar í heiminum. Hann er knúin áfram af sýn sem segir aðÍsland verði miðpunktur friðar á jörðu og skapi þannig fordæmi fyrir viðleitni sem hann vill meina að sé í undanhaldi í alþjóða samskiptum. 

  48. 83

    Töframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis

    Send us Fan MailTöframaðurinn og dávaldurinn Jón Víðis kom í Alkastið og lék listir sýnar.

  49. 82

    Sara Páls er ekkert að grínast með þessa dáleiðslu!

    Send us Fan MailAlkastið heldur innreið sína á hljóðvarpsmakraðinn áfram. Að þessu sinni settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleiðaranum og orkuheilaranum Söru Pálsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í viðtal hjá Gunnari því að á tímum Þvottahússins mætti hún tvisvar í viðtal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þessu sinni átti að taka örlítið annan pól í hæðina og sjá hvort væri hægt að dáleiða Arnór og tengja hann aftur við fyrra líf. Arnór komst að því að hann var eitt sinn með hárkollu og í froðuskyrtu að meika bökk í suður franskri hafnarborg árið 1700 og súrkál.

  50. 81

    Davíð Karl, hann gæti fokkað þér upp

    Send us Fan MailÍ nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti. Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðilinn DV sem bætist við Mannlíf sem hafa staðið á bakvið Þvottahúsið og nú Alkastið síðan að Marta á Smartland kanselaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum.Kannabis, sveppir, fljúgandi furðuhlutir, swingmenningin, butplugs, slaufun og margt fleyrra í þessum þætti.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra Breiðholt ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland.

HOSTED BY

Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt

Frequently Asked Questions

How many episodes does Þvottahúsið have?

Þvottahúsið currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Þvottahúsið about?

Þvottahúsið er áhugamanna lífsspeki hlaðvarp í umsjón bræðranna, Davíðs Karls Wiium og Gunnars Dan Wiium. Fúsi óttars sér um tæknimál og semur einkennisstef þáttarins.Alkastið er örverpi Þvottahússins. Alkastið samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium a.k.a Cliff W. og Arnóri Jónssyni a.k.a Nóra...

How often does Þvottahúsið release new episodes?

Þvottahúsið has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Þvottahúsið?

You can listen to Þvottahúsið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Þvottahúsið?

Þvottahúsið is created and hosted by Boxing David - Cliff W - Nóri Breiðholt.
URL copied to clipboard!