EPISODE · Nov 8, 2025 · 51 MIN
Bókaklúbbar fræga fólksins, Nóbell Laxness 70 ára og Frumbyrjur
from Bara bækur
Þessi þáttur fer um víðan völl, við tökum aðeins saman útvarpsefni um þann tíma fyrir 70 árum þegar Halldór Kiljan Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955. Það verða líka bollaleggingar um bókaklúbba fræga fólksins. Dua Lipa, Reese Witherspoon, Sarah Jessica Parker Emma Watson og auðvitað drottningin Oprah Winfrey. Það virðist enginn frægur meðal frægra nema vera með bókaklúbb. Hvaða menningarlegu aðstæður skapar það - hvers vegna vill frægt fólk tengjast aðdáendum í gegnum bækur? Loks er það ný skáldsaga eftir Dag Hjartarson, Frumbyrjur. Það er saga úr íslenskum kjarna, afdalurinn, kýrin að bera, konan ólétt og alveg að koma jól. Undir niðri er nístandi fortíð, draumar og tilvistarlegar vangaveltur um lífið á þessari eyju. Viðmælendur: Dagur Hjartarson.
Embed this episode
NOW PLAYING
Bókaklúbbar fræga fólksins, Nóbell Laxness 70 ára og Frumbyrjur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.