Bókatíðindi í 133 ár, Hrunbókmenntir og Emil Hjörvar Peters episode artwork

EPISODE · Oct 7, 2023 · 50 MIN

Bókatíðindi í 133 ár, Hrunbókmenntir og Emil Hjörvar Peters

from Bara bækur

Bókatíðindi eru árlegur gleðigjafi fyrir bókmenntaáhugafólk. Þessi mikla skrá er nauðsynlegt hjálpartæki þegar kortleggja á flóðið, ná utan um hvað er að koma út og hvað hefur komið út undanfarin misseri. Útprentaða útgáfan er væntanleg en hún er komin á vefinn. Það er Félag íslenskra bókaútgefenda sem gefur út bókatíðindin, skrá yfir útgefnar bækur og má rekja útgáfu þeirra til ársins 1890 sem þá hétu Skrá yfir eignar og umboðssölubækur Bóksalafélagsins í Reykjavík. Skráin spannar sum sé þrjár aldir og nú verður auðveldara að fletta upp í gömlum bókatíðindum. Við heyrum í Bryndísi Loftsdóttur, framkvæmdastjóra FÍBÚT. Við skoðum viðbragð rithöfunda við fjármálahruninu en 15 ár eru liðin frá örlagaríkum upphafsdögum þess haustið 2008. Á þessum árum hafa bókmenntafræðingar rannsakað eitt og annað sem einkennir bókmenntirnar á árunum eftir. Við gröfum í gullkistu Ríkisútvarpsins til að átta okkur betur á því. Og loks förum við í heimsókn til Emils Hjörvar Petersen rithöfundar sem hefur gefið út sína 10. skáldsögu. Höfundur sem hóf sinn ritferil einmitt á árunum eftir hrun, hann skrifar á mörkum bókmenntagreina og á mörkum miðla, prents og hljóðs, við hittum Emil Hjörvar í lok þáttar og rekjum úr honum garnirnar svo notað sé myndmál sem er eins og beint upp úr einhverri subbulegri hrollvekjunni. Viðmælendur: Bryndís Loftsdóttir, Bergljót Kristjánsdóttir, Guðrún Baldvinsdóttir, Viðar Þorsteinsson, Vera Knútsdóttir, Alaric Hall og Emil Hjörvar Petersen. Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Crash - Högni Egilsson, Triennale - Brian Eno. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

NOW PLAYING

Bókatíðindi í 133 ár, Hrunbókmenntir og Emil Hjörvar Peters

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on October 7, 2023.

What is this episode about?

Bókatíðindi eru árlegur gleðigjafi fyrir bókmenntaáhugafólk. Þessi mikla skrá er nauðsynlegt hjálpartæki þegar kortleggja á flóðið, ná utan um hvað er að koma út og hvað hefur komið út undanfarin misseri. Útprentaða útgáfan er væntanleg en hún er...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!