Bókmenntahátíð í Reykjavík II episode artwork

EPISODE · May 3, 2025 · 50 MIN

Bókmenntahátíð í Reykjavík II

from Bara bækur

Strax frá fyrsta viðburði Alþjóðlegu Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík var ljóst að áhugi fólks var mikill og aðsóknin góð. Þegar dansk-grænlenska ljóðskáldið Kuluk Helms og Bresk-tansaníska nóbelshöfundinn Abdulrazak Gurnah ræddu við Þóru Arnórsdóttur í Norræna húsinu, meðal annars um gildi bókmennta eða vægi í stóru samhengi. Þóra spurði hvort bækur skiptu enn máli, og orðið enn fór illa ofan í Gurnah sem varði kröftuglega mikilvægi bókmenntanna, það hefur ekkert breyst síðan fyrstu mennirnir settust við varðeldinn og sögðu hver öðrum sögur. Við ræðum gildi og vægi bókmennta og bókmenntahátíða við tvo gesti sem sóttu Bókmenntahátíð af kappi, þau Bjargeyju Ólafsdóttur og Val Gunnarsson. Við lítum líka aðeins inn á viðburð utandagskrár á Bókmenntahátíð þegar Tunglið útgáfa gaf út þrjár bækur í ritröðinni Svarthol. Á hótel Holt var kakófónískur ljóðalestur, ljóðalest í kappi við tímann og óvænt tónlist. Tunglið gaf út þrjár nýjar bækur eftir Dinçer Güçyeter og Anne Carson sem bæði voru gestir hátíðarinnar og einnig Wolfgang Schiffer sem hefur verið ötull útgefandi og þýðandi íslenskrar ljóðlistar í Þýskalandi. Viðmælendur: Bjargey Ólafsdóttir og Valur Gunnarsson. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

NOW PLAYING

Bókmenntahátíð í Reykjavík II

0:00 50:01

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Bara bækur?

This episode is 50 minutes long.

When was this Bara bækur episode published?

This episode was published on May 3, 2025.

What is this episode about?

Strax frá fyrsta viðburði Alþjóðlegu Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík var ljóst að áhugi fólks var mikill og aðsóknin góð. Þegar dansk-grænlenska ljóðskáldið Kuluk Helms og Bresk-tansaníska nóbelshöfundinn Abdulrazak Gurnah ræddu við Þóru...

Can I download this Bara bækur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!