EPISODE · Jun 27, 2026 · 44 MIN
Borgin, Bretland og Brexit á röngunni
from Gímaldið · host Gímaldið
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið.Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar?Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „labba og tala“-myndböndum? Hvaða mistök kostuðu breska Evrópusinna aðild að ESB?Breskur borgarstjóri verður næsti forsætisráðherraJá-eða-nei-fylkingar farnar að þjappa sér saman. Hvor fylkingin situr uppi með hræðsluáróðurinn um ESB?Hvað stendur í nýrri úttekt um Græna gímaldið og hvernig tengist hún tiltekt á skrifstofu borgarstjóra?Dýrasti matur í Evrópu og neytendaáherslur Gímaldsins Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Embed this episode
NOW PLAYING
Borgin, Bretland og Brexit á röngunni
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.