EPISODE · Apr 16, 2024 · 52 MIN
Börsenbruninn, tónlist Kambódíu og American Fiction
from Víðsjá
Bandaríska kvikmyndin American Fiction í leikstjórn Cord Jefferson hlaut á dögunum óskarsverðlaun fyrir besta aðlagaða handrit. Kvikmyndin byggir á bók eftir Percival Everett frá árinu 2001 sem nefnist Erasure og fjallar um prófessorinn og rithöfundinn Monk sem skrifar í stríðni nóvellu þar sem hann notast við slæmar staðalímyndir svarts fólks og sendir umboðsmanni sínum. En þessi gjörningur hefur ófyrirséðar afleiðingar. Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Að þessu sinni fer hann með okkur til Kambódíu ársins 1953. Við hugum að brunanum í Kaupmannahöfn í þætti dagsins. Guðjón Friðriksson, sagnfræðing, kemur til okkar og bregst við brunanum á Börsen, þessari sögufrægu byggingu sem menningarmálaráðherrann Jakob Engel-Schmidt hefur sagt að hann muni gera allt sem í hans valdi standi til þess að endurgera sem og hinn íkóníska turn sem hefur verið kennileiti í borginni í 400 ár.
Embed this episode
NOW PLAYING
Börsenbruninn, tónlist Kambódíu og American Fiction
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.